Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Blaðsíða 47
DV Helgarblað föstudagur 30. mars 2007 49
Sakamál
Deilur um hass og peninga urðu þess valdandi
að hinn 38 ára gamli Arshad Mahmood pyntaði
þrjá Marokkómenn í fleiri daga. Mahmood sem
býr í Osló hélt Marokkómönnunum föngnum í
kjallara húss síns og var kjallarinn sérstaklega út-
búinn til pyntinga. Mahmood, sem er foringi klíku
sem kallast Young Guns, og félagar hans rændu
með nokkurra daga millibili þremur meðlimum
keppinauta sinna. Þeir tilheyra hassgengi sem er
með rætur í Marokkó. Í kjallaranum var mönn-
unum haldið í níu, átta og þrjá daga, hettur voru
settar yfir höfuð þeirra og þeir voru berstrípaðir og
þurftu að þola grófar pyntingar, en verðir við kjall-
aradyrnar komu í veg fyrir flótta.
Hinn 38 ára gamli höfuðpaur segist hafa verið
neyddur til aðgerðanna; honum hafi sjálfum verið
hótað af keppinautunum, sem og fjölskyldu hans,
ef hann reiddi ekki af hendi fjárhæð sem nemur 18
milljónum norskra króna. „Ég fékk þrjá daga til að
útvega 18 milljónir. Svo ég tók þá. Ég vildi hræða þá
svo þeir létu af hótununum,“ segir hann í viðtali við
hverfisblað. Arshad Mahmood ku vera þekktur og
alræmdur glæpamaður og á marga óvildarmenn.
Árið 2001 varð hann fyrir skotárás og hann hefur
áður verið dæmdur fyrir ofbeldi, kúgun, hótan-
ir og frelsissviptingu. Ákærurnar núna eru vegna
líkamsmeiðinga, kúgunar, þjófnaðar, ólöglegrar
vopnaeignar, peningafals og dópsölu. Hann hefur
játað sig sekan um flest ákæruatriðin, en eins og
kemur fram að ofan, telur aðstæður sínar að sumu
leyti mildandi.
Pyntaði keppinauta í sérútbúnum kjallara:
Telur aðstæður sínar mildandi
Lee Shelton fæddist 16. mars,
árið 1865 í Texas. Flestar sögur
segja hann hafa verið fjárhættu-
spilara, en ekki er loku fyrir það
skotið að hann hafi gert út vænd-
iskonur sér til lífsviðurværis. St.
Louis hafði, líkt og New York, San
Francisco og New Orleans, rautt
hverfi og ríkti Lee yfir hverfi sem
var kallað Deep Morgan. Það var
eitt af fáum hverfum borgarinn-
ar þar sem samgangur var á milli
hvítra og þeldökkra. Það var á krá í
þessu hverfi sem Lee Shelton skaut
Billy Lyons til bana.
Samkvæmt George McFaro sem
var vitni að atburðinum kom Stagg-
er Lee inn á Curtis-krá um klukkan
10 að kvöldi jóladags árið 1895 og
settist fljótlega að drykkju með Billy
Lyons og fór vel á með þeim drjúga
stund eða þar til umræðurnar fóru
að snúast um stjórnmál. Lyons var
nefnilega stækur repúblikani líkt
og nær allir 25.000 þeldökkir íbúar
St. Louis. Marie Brown, stjúpmóðir
hans, var kráareigandi og sterkefn-
uð og tengdasonur hennar Henry
Bridgewater var sagður ríkastur
þeldökkra í St. Louis. Billy Lyons
tilheyrði því voldugri ætt og var
hún fylgispök repúblikanaflokkn-
um. Stagger Lee var á hinn bóginn
fylgismaður demókrata og átti sem
slíkur ekki upp á pallborðið hjá Ly-
ons og hans nótum.
Allt að einu. Þegar stjórnmála-
deilur þeirra höfðu staðið ein-
hverja stund tóku þeir að skiptast á
höggum með því að slá í hatta hvor
annars og endaði það með því að
Stagger Lee reif til sín harðkúluhatt
Lyons og setti í hann brot. Lyons
krafði þá Stagger Lee um bætur
fyrir hattinn og fór fram á „six-bits“
sem samsvaraði 75 sentum. Fyr-
irvaralaust greip Billy Lyons hatt
Lees og skyndilega varð Stetson-
hattur Staggers Lee aðalþrætuefn-
ið. Lee heimtaði hatt sinn og til að
leggja áherslu á kröfur sínar dró
hann upp Smith & Wesson skam-
byssu og sló Lyons í höfuðið, en allt
kom fyrir ekki, Lyons lét ekki hatt-
inn af hendi. Stagger Lee sagðist
þá myndu drepa Lyons ef hann af-
henti ekki hattinn.
Skambyssa og hnífur
Dró þá Lyons hníf úr pússi sínu,
gekk að Lee og sagði „Þú rang-
eygi tíkarsonur, ég ætla að láta þig
drepa mig.“ Þá hörfaði Stagger Lee
og miðaði byssu sinni. Flestir krá-
argestirnir þustu þá til dyra, en eft-
ir voruw barþjónar og örfáir gestir.
Þeir staðfestu síðar að Stagger Lee
hefði skotið Billy Lyons. Eitt vitn-
anna, Leslie Stevenson, sagði að
Billy hefði, eftir að hafa verið skot-
inn, haltrað að barnum, hallað sér
upp að skenknum og haldið um
hattinn, virst verða veikburða og
því sleppt hattinum. Í sömu andrá
hafi Stagolee sagt: „Láttu mig fá
hattinn minn, negri“, tekið upp
hattinn og gengið út í hressandi
goluna.
Dómur
Farið var með Billy Lyons á
sjúkrastofu og kom í ljós að skotið
hafði hæft hann í kviðinn og ekk-
ert hægt að gera og honum ekki lífs
auðið. Stagger Lee var handsam-
aður og dreginn fyrir dóm.
Verjandi Staggers Lee var hvítur
lögfræðingur að nafni Nat Dryden.
Dryden var ópíumfíkill og bóhem,
en hvað sem því leið eða kannski
þess vegna, því Dryden fór ekki
hefðbundnar leiðir sem verjandi,
gat kviðdómur ekki komið sér sam-
an um sekt eða sakleysi Lees og var
hann ekki sakfelldur.
En tveimur árum síðar, eftir að
málið hafði þvælst fram og til baka
í réttarkerfinu var það tekið upp
aftur. Árið 1997, með nýjum dóm-
ara og Dryden fjarri góðu gamni,
var Stagger Lee dæmdur til 25 ára
fangelsisvistar.
Fangelsisdvöl hans var þó stytt
af demókrötum og honum sleppt
og um nokkurra ára skeið gat hann
um frjálst höfuð strokið. Hann var
seinna dæmdur til fangelsisvist-
ar fyrir að berja annan mann með
skambyssu. Stagger Lee dó árið
1912 í ríkisfangelsi. Hann var 46
ára að aldri.
Goðsögnin Stagger Lee
Þessi glæpur var í eðli sínu
hvorki merkilegri né forvitnilegri en
hver annar. En fyrir einhverjar sakir
hefur sagan lifað með fólki allar göt-
ur síðan í formi tónlistar. Fyrsta út-
gáfan kom út árið 1910 og var eftir
John Lomax, en síðan þá hafa útgáf-
ur af sögu Staggers Lee skipt hundr-
uðum.
Meðal þeirra sem gert hafa
Stagger Lee ódauðlegan eru Chuck
Berry; Brown Eyed Handsome
Man, Muddy Waters; Rollin’ Stone,
Wilson Pickett; Midnight Mover og
fleiri.14 ára
handtekin
fyrir morð
Aðkoman var ekki falleg þeg-
ar lögreglan kom í íbúð í Halifax
á Englandi á þriðjudaginn. Þar
lágu hlið við hlið tvær systur
og blæddi báðum mikið eftir
hnífsstungur. Áverkar þeirrar
eldri voru það slæmir að hún
lést síðar á sjúkrahúsi. Nú hefur
lögreglan handtekið þá yngri, 14
ára gamla, vegna morðsins. Ekki
er vitað hverjar orsakir verknað-
arins voru, en systurnar bjuggu
ásamt þriðju systurinni hjá
móður sinni og manni hennar.
Að sögn nágranna var þetta
róleg fjölskylda sem blandaði
ekki mikið geði við aðra. Lög-
reglu hefur ekki tekist að varpa
ljósi á atburðinn þrátt fyrir að
hafa yfirheyrt hina 14 ára gömlu
stúlku.
Braveheart
Lögfræðingar Mel Gibson
hafa látið stöðva framleiðslu
á Braveheart bjór.
Málið er búið að vera
í gangi í hálft annað
ár og var eigandi hins
fjónska brugghúss
ekki á því láta undan
kröfum Gibson og
lögfræðinga hans.
Hinn 72 ára gamli
bruggmeistari, Keld
Andersen, gaf þó á
endanum eftir. Hon-
um finnst þó súrt í
broti að einhver geti
haft einkarétt á ein-
hverju orði. Braveheart bjórinn
naut mikilla vinsælda.
Pyntingarklefi Ekki sá sem um ræðir í greininni.
Dáin
í baðkari
Í japanska bænum Ichik-
awa, austur af Tokíó höfuðborg
Japan, fannst líkið af Lindsay
Ann Hawker. Lindsay var bresk
og hafði unnið við kennslu
í Japan frá því í október síð-
astliðinn. Hennar hafði verið
saknað síðan á mánudaginn,
er hún skilaði sér ekki heim
frá vinnu. Lík hennar fannst
í baðkari fullu með sandi á
svölum íbúðar í bænum. Gefin
hefur verið út handtökuskip-
un á hendur Tatsuya Ichihashi,
atvinnulausum athafnamanni,
sem náði að flýja á síðustu
stundu, er lögreglan bankaði
uppá hjá honum. Ekki hefur
verið upplýst hvor hann og
Lindsay þekktust.
Ekki ferð til fjár
David Posman frá Rhode Island hafði ekki erindi sem erfiði þegar hann
rændi peningasendingu úr brynvörðum bíl. Eftir að hafa rotað bílstjór-
ann greip hann fjóra peningasekki sem næstir voru. Seinna kom í ljós
að þeir voru fullir með 800 dollurum hver, í penníum og vó hver um sig
um 15 kíló. Lögreglan átti ekki í erfiðleikum með að handsama hann
þar sem hann staulaðist af vettvangi með ránsfenginn öll 60 kílóin.
Jóladagskvöld
á Curtis-kráNNi