Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Qupperneq 9
VILJA bAnn VIð fóstureyðIngum
legar fóstureyðingar á ári á móti
eitthundrað og fimmtíu nú. Talið er
að um tvöhundruð þúsund ólögleg-
ar fóstureyðingar séu framkvæmd-
ar í Póllandi ár hvert á sama tíma
og þúsundum kvenna er neitað um
aðgerð sem þær samkvæmt lögum
eiga rétt á. Ólögleg fóstureyðing
kostar á milli 500 og 1000 banda-
ríkjadala. Innan Evrópusambands-
ins er einungis á Möltu, þar sem
fóstureyðingar eru bannaðar, og Ír-
landi í gildi harðneskjulegri lög en
í Póllandi.
Kynsvall landsliðs-
manna hneykslar
Fjölmiðlar í Tékklandi segja
veisluhöld knattspyrnulandsliðs-
ins á laugardags-
nótt vera mesta
hneyksli í sögu
knattspyrnunn-
ar í landinu.
Eitt slúðurblaða
landsins hefur
birt myndir og
frásagnir frá
veislunni sem
fór fram á hóteli liðsins í Prag eftir
tapleik gegn Þjóðverjum fyrr um
daginn. Samkvæmt frétt blaðsins
létu landsliðsmennirnir gleðikon-
ur taka þátt í kynsvalli og drukku
ótæpilega af áfengi langt fram á
nótt. Einn landsliðsmannanna
sem átti afmæli þennan dag á að
hafa borgað fyrir þjónustu vænd-
iskvennanna. Hann segir um-
fjöllun slúðurblaðsins uppspuna
en samkvæmt fréttum annarra
fjölmiðla styðja myndir blaðsins
frásögnina. Knattspyrnusamband
Tékklands hefur sektað landsliðið
fyrir veisluhöldin og segir fram-
komu þeirra ekki sæmandi landi
og þjóð.
Yfirgnæfandi meirihluti borg-
arstjórnar San Francisco borgar í
Bandaríkjunum hefur samþykkt
bann við plastpokum í öllum stærri
matvöruverslunum og apótekum í
borginni. Er tilgangurinn að minnka
verulega notkun plastpoka unna úr
olíu og vonast yfirvöld til þess að
búðirnar bjóði viðskiptavinum sín-
um í staðinn upp á poka úr lífrænum
efnum.
Félag verslunareigenda hefur
samkvæmt frétt breska blaðsins The
Independent reynt að berjast gegn
banninu síðan hugmyndir um það
voru fyrst viðraðar. Ástæðan er meðal
annars sú að lífrænir pokar eru dýrir
í innkaupum. Talið er að sumir versl-
unareigendur muni því grípa til bréf-
poka sem ekki eru umhverfisvænni
en gömlu plastpokarnir samkvæmt
fréttinni. Borgaryfirvöld höfðu reynt
í samstarfi við verslunareigendur að
minnka notkun plastpoka með því
að hækka gjöld á þeim en voru ekki
ánægð með árangurinn.
San Francisco er fyrsta borgin í
Bandaríkjunum til að stemma stigu
við notkun plasts með þessum hætti
en fylgir í fótspor Bangladesh sem
hefur alfarið bannað burðapoka úr
plasti vegna þess skaða sem þeir
valda á holræsakerfi landsins. Sam-
kvæmt frétt The Independent notar
hver íbúi Kaliforníu-fylkis að með-
altali fimm hundruð plastpoka á ári
og árlega eru 180 milljón plastpokar
notaðir í San Francisco. Nýju regl-
urnar munu öðlast gildi þegar borg-
arstjórinn hefur samþykkt þær.
Verslunareigendur ekki ánægðir með ákvörðun borgaryfirvalda í San Francisco:
Plastpokar bannaðir
Plastpokum hlaðið í skottið Borgaryfirvöld í San Francisco ætla að banna notkun
plastpoka í matvöruverslunum.
Fjöldaganga í Varsjá Þúsundir
Pólverja kröfðust algjörs banns við
fóstureyðingum. Kaþólska kirkjan á
mjög sterk ítök í landinu og íhaldssemi
er mikil meðal landsmanna.
DV Fréttir FöStudagur 30. marS 2007 9
Hægt er að sækja um störf hjá Alcoa Fjarðaáli á capacent.is (áður IMG-Mannafl).
Nánari upplýsingar fást á www.alcoa.is og hjá Sigurlaugu Þorsteinsdóttur
(sigurlaug.thorsteinsdottir@capacent.is) og Helgu Snædal
(helga.snaedal@capacent.is) hjá Capacent í síma 540 1000.
Tækifæri til að nýta og njóta
Á Mið-Austurlandi er að myndast öflugur byggðaklasi í skjóli einstakrar
náttúru, friðsæll og fjölskylduvænn staður. Hátt í þúsund ný framtíðar-
störf bjóðast fólki með margs konar menntun og reynslu. Með eflingu
atvinnulífs og fjölgun íbúa skapast fjölbreytt viðskiptatækifæri fyrir
hugmyndaríka frumkvöðla.
Sveitarfélög á Mið-Austurlandi hafa kostað kapps um að styrkja innviði
samfélagsins og hundruð nýrra íbúðarhúsa eru að rísa. Á svæðinu er
yfirbyggður knattspyrnuvöllur, glæsilegar útisundlaugar og frábært
skíðasvæði. Þjónusta á Mið-Austurlandi færist stöðugt nær því sem
gerist á höfuðborgarsvæðinu og neytendur hafa úr mörgu að velja.
Samgöngur til og frá svæðinu eru góðar, á landi, í lofti og á sjó.
Tækifæri til hvers konar útivistar eru fjölmörg. Fallegar gönguleiðir
eru við hvert fótmál, stærsti skógur landsins og góðir hálendisvegir.
Hægt er að stunda hvers kyns veiðar, hestaíþróttir njóta vaxandi
vinsælda og golfurum fjölgar stöðugt. Einnig bjóðast frábær tækifæri
til afþreyingar, listirnar dafna og íþróttastarfsemi er öflug.
www.alcoa.is
Framleiðslustarfsmenn
Okkur vantar fleiri eldhressa starfsmenn í álframleiðslu og
málmvinnslu. Til framleiðslustarfsmanna eru ekki gerðar
ákveðnar kröfur um menntun eða kunnáttu. Allir fá viðamikla
þjálfun og fræðslu í fyrirtækinu. Verkefni hvers starfsmanns
verða fjölbreytt og mikið er lagt upp úr starfsþróun og
símenntun.
Rafiðnaðarmenn og véliðnaðarmenn
Við leitum að faglærðum rafiðnaðarmönnum og véliðnaðar-
mönnum til að sinna viðhaldi tækja og búnaðar í hátæknivæddu
álveri Fjarðaáls. Hjá fyrirtækinu verða um 120 tæknimenntaðir
starfsmenn. Faglegur metnaður og stöðug þróun verða
leiðarljós okkar inn í framtíðina.
Öll störf henta bæði konum og körlum.
Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl.
Viðkomandi munu hefja störf á næstu sex mánuðum.
Síðustu 100 störfin í boði
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/A
L
C
3
69
26
0
3/
07
Gríptu þitt tækifæri
Hjá Fjarðaáli er nú búið að ráða hátt í 300 starfsmenn og
við leitum enn að fólki sem vill starfa með okkur, að konum
jafnt sem körlum. Konur er nú um þriðjungur starfsmanna
hjá Fjarðaáli og hlutfall kvenna af starfsmannafjölda í álveri
er hvergi í heiminum jafnhátt.
Austurland tækifæranna