Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 10
föstudagur 30. mars 200710 Fréttir DV
með hníf í kjarnorkustríð
Spennan fyrir kosningar um stækk-
un álvers í Hafnarfirðir er að verða
óbærileg ef marka má talsmenn
Sólar í Straumi og Hags Hafnar-
fjarðar. Samtökin hafa staðið fyr-
ir lýðræðislegri og opinni umræðu
um afleiðingar kosninganna. Bær-
inn virðist hafa logað í deilum und-
anfarið. Sjálfur segir Ingi B. Rúts-
son formaður Hags Hafnarfjarðar,
að ástandið sé öfgafullt. Talsmaður
Sólar í Straumi lýsir baráttu þeirra
við það að fara í kjarnokustríð vopn-
aður vasahníf. Kosning um framtíð
álversins verður á morgun, laugar-
daginn 31. mars. Það er ljóst að bar-
ist verður upp á hvert atkvæði.
„Við höfum verið að hringja í fólk
og bera út pósta,“ segir Pétur Ósk-
arsson, talsmaður Sólar í Straumi,
um það mikla starf sem samtökin
hafa staðið fyrir undanfarið. Hann
segir bæjarbúa taka þeim mjög vel.
Hann segir stemninguna í bæn-
um ólýsanlega enda sé gríðarleg
spenna á milli stríðandi fylkinga.
Kosningarnar eru gríðarlega mikil-
vægar fyrir bæinn og þá ekki síst fyr-
ir landspólitíkina. Pétur áréttar að
kosningaþátttaka unga fólksins sé
mjög mikilvæg. Hann segir að það
sé unga fólkið sem þurfi súpa seyðið
ef af stækkun verður.
Ójafn leikur
„Að berjast við svo stórt fyrirtæki
er eins og að fara með hníf í kjarn-
orkustríð,“ segir Pétur um mikinn
mun á því að vera samtök sem berj-
ast gegn stórfyrirtæki. Hann segir
íbúalýðræðið gott og gilt en það sé
ljóst að það þurfi að skerpa verulega
á fyrirkomulaginu verði þetta end-
urtekið. Samtökin hlutu 400 þús-
und krónur í styrk frá bænum en
öll vinna er unninn af sjálfboðalið-
um. Hann segir laugardaginn mikil-
vægan dag í sögu Hafnarfjarðar en
þá munu íbúarnir ákveða hvernig
bæjarmyndin líti út næstu fimmtíu
árin.
Með góðan málstað
„Tíðarandinn vinnur með okkur
og við erum með góðan málstað,“
segir Pétur um erfiða mánuði í bar-
áttunni. Hann hefur trú á því að
stækkun verði hafnað. Hann segir
sjálfboðaliðana þreytta eftir mikið
starf en aðspurður segist hann bara
ætla að taka lífinu með ró á laugar-
daginn. Hann líkir ástandinu í bæn-
um við íþróttakappleik og segir að
þeir hafi skorað og eins hafa hinir
skorað á móti.
Samtökin munu halda kosninga-
vöku á laugardaginn en hún verður
á Hótel Víking þar sem Fjörukráin
er.
Mikil heift
„Það virðist mikil heift vera kom-
in í suma en annars finnum við
fyrir ágætis meðbyr,“ segir Ingi B.
Rútsson, formaður samktaka Hags
Hafnarfjarðar, sem eru hlynntir
stækkun álvers. Mikið hefur geng-
ið á í herbúðum þeirra en sjálf-
boðaliða á vegum samtakanna var
hrint af andstæðingi stækkunar-
innar fyrir um tveimur vikum. Þá
hafa þeir ítrekað orðið fyrir munn-
legum árásum af hálfu andstæð-
inga stækkunarinnar að sögn Inga.
Hann segir það þó heyra til undan-
tekninga. Núna liggur beint við að
einfalda umræðuna því hann seg-
ir fólk orðið leitt á tölum og pró-
sentureikningum. Samtökin munu
því einfalda sitt mál enda vilja þeir
meina að rekstur þeirra fyrirtækja
sé beinlínis í hættu.
Tvísaga flokkur
„Mér fannst fáránlegt það sem
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði
á fundi á miðvikudaginn en þá
lét hún í veðri vaka að flokkurinn
myndi beita sér gegn stækkuninni
verði hún samþykkt,“ segir Ingi og
bendir á að Samfylkingin virðist
vera tvísaga í þessum málum. Það
var Samfylkingin í Hafnarfirði sem
ákvað að leyfa íbúum að kjósa um
stækkunina en ef mark er takandi á
orðum formanns flokksins þá mun
kosningin hugsanlega draga dilk á
eftir sér. Þó lætur Ingi engann bil-
bug á sér finna því hann segir starf
þeirra í rífandi siglingu og menn
séu almennt jákvæðir fyrir stækk-
uninni.
Hefði hugsað sig tvisvar um
„Maður hefði kannski hugsað
sig tvisvar um hefði maður gert sér
grein fyrir allra vinnunni í upphafi,“
segir Ingi sem sjálfur rekur fyrirtæki
á daginn en ver hagsmuni fyrirtækis
síns og fleiri sem hafa hag af álver-
inu. Hann ætlar líkt og Pétur að taka
laugardaginn rólega en mesta starf-
ið mun fara fram í dag og á morgun.
Í kvöld munu talsmennirnir tveir
hittast á Stöð Tvö og ræða sín mál.
Aðspurður hvort Ingi ætli sér
ekki að sofa út á laugardaginn segir
hann hlæjandi, „veit ekki með laug-
ardaginn en á sunnudaginn mun ég
sofa langt fram yfir hádegi.“
Hagur Hafnarfjarðar mun hitt-
ast á Aroma í miðbæ Hafnfarfjarðar
á laugardagskvöldið. Fyrsta talning
atkvæða verður klukkan sex og taln-
ingu mun vera lokið um níu leytið á
laugardagskvöldinu.
valur greTTisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
Gríðarleg spenna er í Hafnarfirði fyrir kosningar um stækkun álversins í straumsvík á laugardaginn. Tals-
maður sólar í straumi, Pétur Óskarsson, segir baráttuna hafa verið erfiða og ójafna en þeir eru andvígir
stækkun álversins. Formaður Hags Hafnarfjarðar, ingi B. rútsson, segir gríðarlega heift vera í sumum bæjar-
búum vegna málsins. Hann segist þó finna fyrir ágætis meðbyr.
spennan stigmagnast
gríðarleg spenna er í Hafnarfirði á
síðustu metrunum fyrir kosningar
um stækkun álversins í Hafnarfirði.