Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 17
DV Fréttir föstudagur 30. mars 2007 17
LeikskóLabörn í skerandi hávaða
gerðar en fram til þessa hefur
stofnunin lítið aðhafst hvað hávaða-
mengun í leikskólunum varðar. Ól-
afur Hjálmarsson verkfræðingur tel-
ur reglugerðina löngu útrunna. „Að
mínu mati er siðferðilega óverjandi
að horfa upp á þennan vanda að-
gerðarlaus. Skólahúsnæði hefur ver-
ið byggt í stórum stíl án þess að virða
lágmarksákvæði byggingareglugerð-
ar og það er ólíðandi. Opinbert eft-
irlit með þessu virðist í molum og
hönnunarforsendur bygginganna
mjög á reiki, enda reglugerðin löngu
úrelt. Tómlæti umhverfisráðuneytis
og Skipulagsstofnunar veldur veru-
legum áhyggjum,“ segir Ólafur.
Langt komið
Jónína Bjartmarz umhverfisráð-
herra er yfirmaður byggingamála
á Íslandi og yfirmaður Umhverfis-
stofnunar, sem fer með samræming-
arhlutverk heilbrigðiseftirlits. Hún
segir vinnu að breytingum á reglu-
gerð langt komna þar sem sett verða
inn sérstök ákvæði um hljóðvernd
barna. „Niðurstöður um of mikinn
hávaða á leikskólum hafa fengist frá
eftirliti á þessu sviði og því ekki hægt
að álykta sem svo að eftirliti hafi ver-
ið ábótavant. Verið er að endurskoða
reglugerðir og hámark leyfilegs há-
vaða verður lækkað þegar börn eiga
í hlut. Þessi vinna er langt komin,“
segir Jónína. „Heilbrigðisnefnd get-
ur síðan farið fram á sérstakar ráð-
stafanir í þeim tilvikum sem hætta
er talin á að hávaði geti valdið óþæg-
indum eða skaða. Í nýrri reglugerð
verða kröfurnar gerðar strangari og í
fyrsta skipti kveðið á um hljóðvernd
barna. Endurskoðun reglugerðar
og auknar kröfur um sérstakar ráð-
stafanir á eftir að koma bæði starfs-
mönnum og börnunum til góða.“
Gefast upp
Íslenskir leikskólakennarar eru
yngri og með styttri starfsaldur en
margir kollegar þeirra erlendis. Því
má ekki gleyma að stéttin er tiltölu-
lega ung að árum og með tímanum
mun hlutfallið hugsanlega færast
nær samanburðinum. Eðlilegt er að
setja stuttan starfsaldur leikskóla-
kennara í samhengi við óbærileg-
an hávaða og streitu á vinnustað.
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags
leikskólakennara, segir hávaða-
mengun á leikskólum valda miklu
álagi. „Það er ekki nógu vel hug-
að að hljóðmengun. Álagið eykst
því lengur sem börnin eru yfir dag-
inn og leikskólakennarar hafa eng-
in tækifæri til að draga sig í hlé frá
hávaðanum. Það er eiginlega ekki
á það bætandi þegar mikill hávaði
bætist ofan á álagið sem fylgir starf-
inu,“ segir Björg.
Kristbjörg Lóa Árnadóttir, leik-
skólastjóri Austurborgar, finnur
þreytumerki á sínum starfsmönn-
um vegna álags og hávaða. Hún
telur brýnt að húsnæðismál leik-
skóla verði tekin til rækilegrar end-
urskoðunar. „Þetta er nokkuð sem
við þurfum að kljást við á hverjum
degi og hávaðinn er gríðarlegur. Ég
sé þreytumerki á mínu starfsfólki og
sumir þeirra eru dauðuppgefnir eft-
ir daginn,“ segir Kristbjörg Lóa.
Þrjár stofnanir í eftirliti
Þrjár opinberar eftirlitsstofnanir
koma að þessum vanda. Bygginga-
reglugerðin fellur undir Skipulags-
stofnun og hlutverk stofnunarinn-
ar er að gæta þess að sveitarfélög
framfylgi ákvæðum reglugerðarinn-
ar um ómtíma hljóðs. Fram til þessa
hefur því ekki verið sinnt með full-
nægjandi hætti þar sem ómtíminn
mælist víða yfir mörkum. Skipulags-
stjóri ríkisins, Stefán Thors, lofar
aðgerðum á þessu ári og því næsta.
Vinnueftirlit ríkisins skal gæta
hagsmuna starfsmanna og sjá til
þess að vinnuskilyrði þeirra séu
í lagi hvað varðar hljóðmengun.
Á þeim bænum hafa verið fram-
kvæmdar mælingar sem sýna fram
á hættulegan hávaða og ómtíma á
leikskólunum. Samkvæmt viðmið-
um Vinnueftirlitsins er hávaðinn
það mikill að börnin og starfsfólkið
ættu að bera heyrnarhlífar. Í augum
Sigurðar er sú leið neyðarúrræði og
mikilvægt að leita annarra leiða sem
fyrst til að draga úr hávaðamengun.
Þriðja stofnunin, Umhverfis-
stofnun, á síðan að vernda heilsu
leikskólabarnanna. Brynja Jóhanns-
dóttir, fagstjóri hollustuháttadeild-
ar Umhverfisstofnunar, segir að-
gerðir torveldar þar sem öll viðmið
um hávaða í skólum skortir. Henni
finnst erfitt að standa aðgerðarlaus
gagnvart þessu. „Þetta er hörmulegt
ástand. Það vantar eitthvað til að
fylgja þessu eftir. Samstarf þeirra að-
ila sem starfa að þessum málum ætti
að geta gengið en gerir það því mið-
ur ekki,“ segir Brynja.
Hvað er til ráða?
Félag leikskólakennara skipaði
sérstakan starfshóp til að vinna að
tillögum til að bæta úr ástandinu.
Vandinn er tvískiptur í megin at-
riðum, annars vegar ófullnægjandi
húsakostur og hins vegar of mörg
börn á hverri deild. Eftirlitsstofnan-
ir þurfa að samræma eftirlit sitt og
setja viðunandi hávaðaviðmið þar
sem tekið er tillit til þeirrar starf-
semi sem ætlast er til að fara fram
á leikskólunum. Sveitarfélögum er
skylt að fara eftir byggingareglu-
gerðum hvað hljóðstig varðar og
nauðsynlegt að þau bretti upp erm-
ar og fari rækilega yfir þessi mál.
Í ljósi þess að flestar eftirlits-
stofnanir vita af vandanum er erfitt
að skilja hvers vegna ekki hafi tafar-
laust verið brugðist við sláandi nið-
urstöðum hávaðamælinga á leik-
skólum. Ótækt er að ímynda sér að á
fyrsta skólastigi landsins skapist að-
stæður þar sem fræðsla og tjáskipti
eru illmöguleg og þar að auki hætta
á því að framtíð landsins, börnin,
verði fyrir óbætanlegu heyrnartjóni
vegna hávaðans.
Röddin eða
starfið? segir
friðrik rúnar
guðmundsson,
formaður félags
talmeinafræðinga
Huga ekki að
þessu segir Björg
Bjarnadóttir,
formaður félags
leikskólakennara
Minni hávaði „Hámark leyfilegs hávaða
verður lækkað þegar börn eiga í hlut,“
segir Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra.