Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Side 19
DV Fréttir föstudagur 30. mars 2007 19
ÁTTA Af ELLEfU sEndihErrUm
Spilling í íslenskum stjórnmálum birtist einkum í því hvernig staðið er að mannaráðning-
um. Starfsmenn í utanríkisþjónustunni þrýsta á Valgerði Sverrisdóttur að forðast pólit-
ískar embættisveitingar. Eiríkur Bergmann segir utanríkisráðuneytið hafa verið nýtt sem
ruslakistu fyrir stjórnmálamenn. Breytingar hafi þó orðið þegar Valgerðurtók við.
Pólitískt
skiPaður
sendiherra
Pólitískt
skiPaður
sendiherra
Pólitískt
skiPaður
sendiherra
Pólitískt
skiPaður
sendiherra
Pólitískt
skiPaður
sendiherra
mundur Árni Stefánsson, Sighvatur
Björgvinsson, Kristján Andri Stef-
ánsson, Júlíus Hafstein og Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir.
Allt þetta fólk var skipað í stöðu
sendiherra, án þess að hafa starf-
að í utanríkisráðuneytinu til lengri
tíma. Í bréfinu til ráðherrans segir
að þetta stingi í stúf við þá áherslu
að forstöðumenn á sendiskrifstof-
um hafi aflað sér víðtækrar reynslu
í utanríkisþjónustunni.
Þar liggur spillingin
„Ég tel að spilling á Íslandi
liggi fyrst og fremst í
því hvernig stjórn-
málaflokkarn-
ir ráðstafa
embættum
til sinna
manna,“
sagði Ragn-
ar Arnalds,
fyrrverandi
ráðherra, í
DV síðustu
helgi í um-
fjöllun um
spillingu á
Íslandi. Hann
segi þessa teg-
und spill-
ingar vera landlæga hér og hafa
þrifist frá fyrstu tíð, í mismiklum
mæli.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðiprófessor gerði í fyrra at-
hugun á pólitískum embættisveit-
ingum hér á landi. Hann bendir á
að veiting embætta á grundvelli
klíkustjórnmála geti ekki talist spill-
ing nema að lög mæli fyrir um að
faglega sé staðið að ráðningunum.
„Störf hjá hinu opinbera geta
verið hluti af lögmætum sigurlaun-
um í stjórnmálum, þetta leiðir til
sóunar, óskilvirkni og
skorts á hæfni í op-
inbera geiran-
um. Að baki
liggur dulin
þörf stjórn-
mála-
manna
fyrir að út-
vega störf
handa
fólki sem
þeir telja
að verð-
skuldi
slíkt að
launum
fyrir
pólitískan stuðning,“ skrifar Gunn-
ar Helgi.
Jákvæðar breytingar
Eiríkur Bergmann segist ekki
vita dæmi þess að starfsfólk í ráðu-
neyti hafi sent viðlíka áskorun til
ráðherrans. „Ég les þetta þannig að
fólkið hafi vitað að Valgerður myndi
ekki taka þessu óstinnt upp.“
Á fundinum með Starfsmanna-
ráðinu þakkaði Valgerður enda
þann stuðning sem fram kemur í
yfirlýsingunni og lét í ljós ánægju
með þann mannauð sem í utanrík-
isráðuneytinu væri.
Yfirlýsingar Valgerðar um að
hún hyggist ekki ráða sendiherra á
pólitískum forsendum eru nýlunda
hér á landi. Eiríkur bendir á að Val-
gerði Sverrisdóttur hafi fylgt breyt-
ingar til hins betra í utanríkisþjón-
ustunni. Hún hafi til dæmis fært
starfsemi íslensku friðargæslunn-
ar frá beinum hernaðarverkefnum
og yfir í verkefni sem raunveru-
lega hafa með friðargæslu að gera.
„Þetta er mjög gott fyir utanríkis-
þjónustuna.“
Í ljósi nýlegrar ákvörðunar ráðherra um tilfærslur og flutninga í utanríkis-
þjónustunni og þeirrar umræðu sem verið hefur í fjölmiðlum um hugsanlegar
pólitískar embættisráðningar, ber að fagna þeirri viðhorfsbreytingu sem fram
hefur komið hjá núverandi utanríkisráðherra sem margoft hefur lýst því yfir að
hún hyggist fara sparlega í pólitískar embættisveitingar. Bindur starfsmanna-
ráðið vonir við að þar með hafi baki verið snúið við þeim úreltu stjórnunarhátt-
um sem of oft hafa sett svip á embættisveitingar innan utanríkisþjónustunnar
á undanförnum árum.
Á undanförnum árum hafa pólitískar embættisráðningar í utanríkisþjón-
ustunni aukist til muna. Af forstöðumönnum á 23 sendiskrifstofum, þar sem
rekið er sendiráð, fastanefnd eða aðalræðisskrifstofa eða starfsmaður með
sendiherratitil skipaður í starf hjá alþjóðastofnun, voru í mars 2007 tíu pólit-
ískt skipaðir eða um 45 prósent. Þetta háa hlutfall pólitískt skipaðra sendiherra
á sér enga hliðstæðu annars staðar á Norðurlöndum eða í öðrum vestrænum
ríkjum.
Hafa má til marks um þessa fjölgun að á tímabilinu frá því í október 2004 til
nóvember 2005 skipaði utanríkisráðherra níu nýja sendiherra og einn aðalræð-
ismann, þar af þrjá úr röðum starfsmanna utanríkisþjónustunnar. Af þessum
þremur, var gert ráð fyrir að tveir færu á eftirlaun nokkrum mánuðum síðar.
Samfara fjölgun pólitískt skipaðra sendiherra í utanríkisþjónustunni
hafa nýjar starfsvenjur rutt sér til rúms.
Algengt er að pólitískt skipaðir sendiherrar taki við stöðu forstöðu-
manns sendiskrifstofu, án þess að hafa starfað í utanríkisráðuneytinu
eða sendiskrifstofum þess í lengri tíma. Þetta stingur í stúf við þá áherslu
sem jafnan hefur verið á að forstöðumenn sendiskrifstofa hefðu aflað
sér víðtækrar reynslu í utanríkisþjónustunni.
Athygli vekur að pólitískt skipaðir sendiherrar taka að jafnaði
ekki við skrifstofustjórastörfum í ráðuneytinu líkt og sendiherrar
sem skipaðir hafa verið úr röðum embættismanna. Í raun hefur því
pólitískt skipuðum sendiherrum og sendiherrum úr röðum emb-
ættismanna utanríkisþjónustunnar verið mismunað.
Loks hafa verið brögð að því að pólitískt skipaðir sendiherr-
ar sitji lengur í embættum erlendis en sendiherrar úr röðum
embættismanna og jafnvel fram yfir almenn viðmiðunarmörk
sem yfirstjórn ráðuneytis hefur ákveðið.
Í ljósi framangreindra sjónarmiða hvatti starfsmanna-
ráð utanríkisþjónustunnar utanríkisráðherra til þess í
febrúar 2006 að tryggja að embættisskipanir, líkt og aðr-
ar ákvarðanir í starfsmannamálum, yrðu látnar lúta
faglegum sjónarmiðum, þar sem tekið yrði fyllsta tillit
til reynslu, hæfni og starfsaldurs flutningsskyldra starfs-
manna. Eðlilegt væri að tekið yrði mið af viðteknum
nútíma stjórnunarháttum innan utanríkisþjónust-
unnar og komið í veg fyrir að starfsmannamál henn-
ar yrðu látin lúta öðrum reglum en viðurkenndar
eru í stjórnsýslu annarra vestrænna ríkja.
Viðhorfsbreyting
í embættisVeitingum
-Yfirlýsing frá Starfsmannaráði flutningsskyldra starfsmanna
utanríkisþjónustunnar til utanríkisráðherra
Reykjavík, mars 2007
Eftirfarandi yfirlýsing um pólitískar embættisveitingar var kynnt
fyrir utanríkisráðherra á fundi, miðvikudaginn 21. mars:
MarkúS Örn antonSSon JúlíuS HafStEin Sigríður Dúna kriStMunDSDóttir guðMunDur Árni StEfÁnSSon SigHVatur BJÖrgVinSSon