Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Qupperneq 20
Það er búin að vera mikil umræða um klám upp á síð-
kastið. Ég á erfitt með að fóta mig í umræðunni. Ég
er algjörlega munaðarlaus í þessari umræðu. Ég er í
raun ekki sammála neinum. Mér finnst nekt eiga allan
rétt á sér en einhvern veginn er meirihlutinn af liðinu
í klámbransanum frekar ógeðfelldur. Í dag er ekkert
klám nema það sé hrækt upp í fólk, gubbað og helst
að stelpan koki öfgastórum lók meðan gaurinn held-
ur fyrir nefið á henni. Ef hún ælir í kjölfarið þá er það
bara bónus. Í dag teygja
klámararnir á hringvöðv-
anum þannig að hnefi
rúmist þar auðveldlega. Einnig er þvag í klámi orðið
fremur hversdagslegt. Þegar vesturlönd verða síðan
uppiskroppa með góðar hugmyndir þá er náttúrulega
sótt í ævaforna hámenningu austurlanda.
Með endaþarminn fullan af smokkfiski.
Í Japan er gefið út fagblað káfara sem útskýrir bestu
lestarleiðirnar til að káfa á stelpum. Þarna koma einn-
ig fram ýmis heilræði fyrir slíka iðju. Vandamálið er
það raunverulegt að í Tokyo er boðið upp á lestir ein-
göngu fyrir konur sem eru ekki alveg í stuði fyrir slíkt.
Pedófílía er einnig sterk þar og skólabúningar grunn-
skólastelpna eru mikið fetish eldri karlmanna. Rík-
ir gæjar hanga fyrir utan skólana og kaupa nærbux-
ur af skólastelpum sem þær hafa gengið í yfir daginn.
Bukkake er síðan feiknar vinsælt þar í landi. Það fel-
ur í sér nokkurn fjölda karlmanna sem hafa sáðlát
framan í eina stelpu. Í nýrri útgáfum eru stelpurnar
með gleraugu og þær ferskustu eru einnig með span-
gir. Þetta sést víst alveg í sjónvarpi svo lengi sem sjálf-
ir lókarnir eru blörraðir. Japanir státa af fjöldamörg-
um aldagömlum aðferðum við að binda fólk og það
er ekkert til sparað í kynlífi. Úti í hinu raunverulega
lífi hefur það tíðkast að bjóða upp á ferðir til fátækari
Asíulanda, þar sem vændiskona er innifalin í verðinu.
Japanskir kynlífsferðamenn eru þekktir fyrir að sækja
í barnungar stelpur aðallega því þeir telja þær sjúk-
dómalausar. Hneyksli hafa síðan komið upp, þar sem
háttsettir bissnessmenn voru gripnir í fjölmennum
vændisorgíum til að innsigla samninga. Einnig er heitt
að rúnka sér á víðavangi bakvið dagblað og fá það síð-
an á grunlausar stelpur sem eru að sinna heimanámi
í almenningsgarði. Annað sem hefur dottið inn líka
er að koma á hlaupum og girða niður um stelpur úti
á götu. Í teiknimyndaformi birtast skordýr og nauðga
smástelpum. Meira og meira japanskt klám snýst síð-
an um undarlegar sjávarlífverur sem eru af ýmsum
ástæðum staðsettar í endaþarmi fólks.
Kastaðu þessum dverg inn
Þessi Snowgathering ráðstefna sem átti að halda
hér á landi var frekar ósexý og mín vegna í fína að
hún varð ekki að veruleika. En það eru ekki næg rök
til þess að banna þeim að koma. En þeim var víst
ekki bannað að koma. Þeir fengu bara ekki gistingu.
Hvergi (nema í Vestmannaeyjum). Skil það svo sem.
Ég myndi allavega ekki bjóða þeim á beddann hjá
mér. Fyrir 20 árum kannski en eins og klámið er orðið
núna... Oj maður. Þá var klámið mun saklausara og
ef það vantaði upp á frumleikann þá var bara kastað
inn dverg. Í dag er dvergur heppinn ef hann kemst að
sem runner.
föstudagur 30. mars 200720 Umræða DV
Það eru fáar vikur liðnar síðan DV hóf að koma út fimm daga vik-
unnar. Það eru fáir mánuðir frá því nýtt útgáfufélag tók yfir rekstur
DV og ráðin var ný ritstjórn að blaðinu. Nú hefur enn eitt skrefið
verið stigið með kaupum á útgáfufélagi Krónikunnar sem hér eft-
ir mun fylgja helgarblaði DV. Öllum sem að koma er ljóst að með
kaupunum styrkist DV hraðar en annars hefði orðið.
Það eru bjartir tímar framundan hjá DV. Ritstjórnin styrkist og
sama má segja um aðra deildir DV. Markmiðið er að efla útgáfuna
og hefja DV til þeirra virðingar sem það áður naut. Efnistök hafa
breyst sem og útlit og framsetning. Nú þegar öflugir starfsmenn
bætast við er ljóst að sóknin verður léttari.
Krónikan verður hér eftir fylgiblað helgarblaðs DV og munu les-
endur því fá meira og ítarlegra lesefni en áður var. Það er eindreginn
vilji allra að nýta þetta tækifæri til
að efla blaðið, gera það betur hæft
til að keppa á markaði, bæði við
hin dagblöðin tvö sem eru seld
þeim sem vilja kaupa og ekki síður
við þau blöð sem borin eru óum-
beðið heim til margra.
Öllum er ljóst að kraftur DV er
sóttur til kaupenda og þá um leið
lesenda. Eina framtíð blaðsins er
fólgin í því að höfða til sem flestra
á vandaðan og yfirvegaðan hátt.
Tekist hefur að breyta ásýnd DV
og viðhorfum flestra til blaðsins.
Með því sem nú er að gerast opn-
ast enn fleiri tækifæri til að efla sóknina enn frekar.
Það er ekkert nýtt að fjölmiðlar hætti eða breytist. DV hefur
lengsta sögu allra dagblaða hér á landi, en Vísir var stofnaður árið
1910. Það er öllum sem starfa á DV, hér eftir sem hingað til, keppi-
kefli að elsta dagblað landsins verði einnig helsta dagblað lands-
ins. Það er á brattann að sækja og þess vegna er fagnaðarefni, fyrir
starfsfólk og lesendur, að nú hefur verið stigið stórt skref til fram-
tíðar. Krónikan mun skapa verðugan sess í helgarblaði DV, blaðinu
sem er stærst og mest þeirra fimm tölublaða sem gefin er út í hverri
viku. Áhugafólk um frjálsa fjölmiðla fær sterkara frjálst blað en áður.
Ekki veitir af öflugu, frjálsu og óháðu blaði.
Ekki var lengur búandi við að hér væru aðeins eitt almennt dag-
blað, það er Morgunblaðið, og tvö dreifiblöð. Viðskiptablaðið telst
varla almennt blað. Ákvörðunin um að endurreisa DV hefur reynst
happadrjúg og með henni hefur orðið til annað almennt dagblað
við hlið Morgunblaðsins. Þessi tvö blöð munu í framtíðinni keppa
um hylli lesenda. Það er á brattann að sækja og það eru allir sem
að DV koma vissir um. Útgáfa DV er áskorun og ögrun og verkefnið
sem er hafið spennandi og gengur vonum framar.
Sigurjón M. Egilsson
DV og KróniKan
gubbiklám 2007
Kjallari
Brautarholti 26 · 105 Reykjavík · 512 7000 · dv@dv.is
DV greiðir 2.500 krónur fyrir þau fréttaskot sem
leiða til frétta. Fyrir besta fréttaskot hverrar viku
eru greiddar 5.000 krónur og 10.000 fyrir besta
fréttaskot mánaðarins.
512 7070
frettaskot@dv.is
Það er á brattann að
sækja og það eru allir
sem að DV koma vissir
um. Útgáfa DV er áskor-
un og ögrun og verkefn-
ið sem er hafið spenn-
andi og gengur vonum
framar.
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Prentsmiðja morgunblaðsins. Dreifing: Árvakur. dV áskilur sér rétt til að
birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framKVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal
ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson auglýSingaStjóri: auður Húnfjörð
Erpur Þ. Eyvindarson
tónlistarmaður skrifar
Í Japan er gefið út fagblað
káfara sem útskýrir bestu
lestarleiðirnar til að káfa á
stelpum.
Lýt minni þjóð
Hafnfirðingar ákveða á morgun
hvort álverið í Straumsvík stækk-
ar eða ekki. Mikil spenna ríkir
og harðvítug
kosningabarátta
er háð. Margir
hafa komið fram
og lýst skoð-
un sinni á hvor
leiðin skuli far-
in, stækkun eða
ekki. Einn hefur
þó þagað þunnu
hlóði, Gunnar Svavarsson for-
maður bæjarstjórnar, sem segir í
aðsendri grein í Fréttablaðinu að
hann lúti sinni þjóð. Því kemur
væntanlega í ljós þegar atkvæði
verða talin hvaða skoðunar
Gunnar verður.
Gjafir alcans
Hrannar Pétursson, talsmað-
ur Alcan, birtist áhorfendum
Sjónvarpsins fjórum dögum fyrir
kosningar og tilkynnti að raflínur
til álversins yrðu grafnar í jörð ef
af stækkun yrði, sleppti reyndar
að minnast á
að alltaf hefði
verið gengið
út frá þessu.
Rifjuðust þá
upp fyrir sum-
um ýmsar
gjafir Alcan
til Hafnfirð-
inga. Fyrst ber
auðvitað að nefna geisladiskinn
með Björvini Halldórssyni sem
borinn var inn á hvert heimili og
tónleikar hans auk þess sem fyr-
irtækið hefur boðið Hafnfirðing-
um á kappleiki.
okkur að þakka
Fréttablaðsmenn virðast hafa
fundið björtu hliðarnar á nýlegri
lestrarkönnun sem sýnir að öll
dagblöðin þrjú sem voru mæld,
Fréttablaðið, Morgunblaðið og
Blaðið, gefa eftir í lestri. Í gær er
viðtal við Jón Kaldal, ritstjóra
Fréttablaðsins, sem hefur lesið
það út úr könnuninni að blaðið
sitt haldi uppi dagblaðalestri.
Ástæðan sem hann gefur er að
ungt fólk les Fréttablaðið meira
en önnur blöð.
Tilboðin
Múskó-aug-
lýsingar Múr-
búðarinnar
hafa vakið
mikla athygli
að undan-
förnu og er nú
væntanlega
svo komið að
einhverjir velta
fyrir sér hvort
tilbúðin í hinum ýmsu búðum
séu raunveruleg tilboð eða ekki.
Þannig hafa matvöruverslan-
ir löngum auglýst tilboð. Sumir
framleiðendur ganga svo langt að
prenta merkingar sínar með 10
prósenta afsláttarmerki, þannig
að þó svo varan hafi aldrei átt að
fara á uppgefnu verði er látið sem
um afslátt sé að ræða. Hvað gera
samkeppnisyfirvöld?
SandKorn
Neytendur athugið! M
úrbúðin selur allar vör
ur sínar á lágmarksver
ði fyrir alla, alltaf. Ger
ið verð- og gæðasaman
burð!
Endurfundir í miðborginni!
Fallegar innréttingar og fullkomin staðsetning Iðusala,
í Lækjargötunni, gerir þessa tvo sali sem um ræðir að
einum vinsælustu veislusölum borgarinnar. Salirnir rúma
250 manns í sæti eða 400 manns í standandi boði.
Lídó er glæsilegur nýr veislusalur sem byggir á klassísk-
um grunni Versala, upplagður fyrir stærri hópa til að
koma saman og fagna. Aðstaða er fyrir 300 manns í
borðhald og yfir 500 manns í standandi boði.
Veisluþjónustan okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og
spe nandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fagmönnum.
Við sjáum til þess að veislan verði eins og þú vilt hafa
hana: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okk r og skoðaðu matseðla á
www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020
og veislan er í höfn!
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Er kominn tími á endurfundi hjá þínum árgangi?
Veislukompaníið býður glæsilega veislusali með
öllum tæknibúnaði og fyrsta flokks veisluþjónustu
í hjarta borgarinnar.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ég sagði þér að gera kaupmála áður
en þú giftist manneskju. Þær eru með
skilnaðarlögfræðinga og allt!
Já en, við vorum ástfang-
in. Mig grunaði ekki að
hún hafi aðeins gifst mér
fyrir hneturnar.