Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Síða 21
Fyrir aldarfjórðungi eða svo var sýnt
í Þjóðleikhúsinu leikritið „Dagur
og nótt” eða „Day and Night” eftir
enska leikskáldið Tom Stoppard.
Höfundurinn er þekktur fyrir orðfimi
og djúphygli í verkum sínum. Þetta
leikrit fjallar um frelsi fjölmiðla.
Uppreisn hefur verið gerð í Afríkuríki
nokkru gegn einræðisherra landsins
og tveir breskir blaðamenn eru af
þeim sökum sendir á staðinn. Á einum
stað í leikritinu er að finna orðaleik
í samtali annars blaðamannsins og
einræðisherrans. Einræðisherrann
segir: „Do you know what I mean by
a relatively free press, Mr. Wagner?“
Blaðamaðurinn veit ekki svarið og
einræðisherrann svarar þá sjálfum
sér: „I mean a free press is edited by
one of my relatives!”
Á öðrum stað í leikritinu segir
eitthvað á þá leið, að frelsi fjölmiðla
sé síðasta vígi alls annars frelsis. En
hvernig er best að þýða svona orðaleik
á íslensku eins og þann, sem að ofan
greinir?
Hann-
es H.
Gissur-
arson, prófessor, greinir frá því í
bók sinni um Fjölmiðla nútímans,
að Davíð Oddsson, sem er orðhag-
ur maður, hafi stungið upp á þessari
þýðingu: „Veistu, Wagner, hvað ég á
við með því, að frjáls blöð geri skyldu
sína?” Blaðamaðurinn veit ekki svar-
ið og þá segir einræðisherrann: „Ég
á við, að eitthvert skyldmenni mitt
ritstýri þeim!”
Þetta er auðvitað fín lausn á mál-
inu, en mér finnst hún samt ekki al-
veg ná hugsuninni, vegna þess að
þarna fær hugtakið „skylda” of mikið
vægi, en í leikritinu er verið að leika
sér með frelsishugsjónina. Sjálfur
hefði ég því orðað þetta á þennan
veg: „Veistu, Wagner, hvað ég á við
þegar ég segi, að fjölmiðlar séu til-
tölulega frjálsir?” Blaðamaðurinn á
ekki svar við því og þá segir einræð-
isherrann: „Nú, þeir eru tiltölulega
frjálsir þegar ég hef talað þá til!” Það
er kjarni málsins finnst mér. Þetta
hefur ekkert með skyldu að gera og
ekkert með skyldmenni að gera,
nema þá andlegan skyldleika og þý-
lyndi. Einræðisherrann vill bara vera
í aðstöðu til að tala menn til og tuska
þá líka til, ef ekki vill betur.
Á árinu 2004 fór fram mikil bar-
átta um síðasta vígi frelsisins, svo
vísað sé til framangreindra orða.
Stjórnmálamenn vildu tuska fjöl-
miðlana til. Þeir áttu að sinna skyldu
sinni. Reynt var að setja fjölmiðlalög,
sem hefðu sómt sér vel í hvaða ein-
ræðisríki sem var. Meirihluti Alþing-
is var til í að hleypa gerræðinu í gegn
og Morgunblaðið barðist hvað hat-
rammast fyrir málinu. Ekkert varð
úr þessum áformum vegna þess að
frelsið reyndist eiga óvæntan hauk í
horni.
Í fjölmiðlamálinu opinberaðist,
að Morgunblaðið er ekki frjáls fjöl-
miðill. Hann er bara tiltölulega frjáls
fjölmiðill. Hann er fjölmiðill sem
brást á ögurstund og lét að stjórn ger-
ræðisins, gegndi skyldu sinni gagn-
vart valdsherranum. Fjölmiðill sem
ekki stóð með frelsinu heldur veittist
að því. Þetta gerir almenningur sér
grein fyrir og því reytast áskrifend-
ur af blaðinu og munu halda áfram
að gera það á meðan Morgunblað-
ið lætur sér sæma að vera aðeins til-
tölulega frjáls fjölmiðill í stað þess að
varpa af sér oki hagsmunagæslu og
baktjaldamakks.
DV Umræða föstudagur 30. mars 2007 21
lESENDUR
Sammála Sverri Stormsker
Sigríður V. skrifar.
Ég var að lesa viðtal við hann
Sverri Stormsker í Mogganum
áðan. Þar er hann að segja að hon-
um finn-
ist íslensk
dægurtón-
list ekki hafa neitt nýtt fram að færa,
nema að honum finnst gleðisveit-
in Baggalútur góð. Sjálf myndi ég
seint kallast söngkona þótt ég hafi
sungið með kirkjukór árum sam-
an, en þetta er í fyrsta skipti sem
ég er alveg sammála honum Sverri
Stormsker. Hann Sverrir hefur oft
gengið fram af mér en núna hlakka
ég til að heyra nýju plötuna hans.
Baggalútur sýnir það og sannar að
það örlar enn á sköpunarkrafti hjá
þjóðinni, þótt einhver lágdeyða
hafi ríkt á síðustu árum. Ég missi
aldrei af Baggalútsstrákunum þeg-
ar þeir mæta á Rás 2 á laugardags-
morgnum og finnst mér þær mín-
útur sem þar heyrist í þeim gefa
laugardagsmorgnunum mikið líf.
Þeir eru skapandi og skemmtilegir,
svo maður tali nú ekki um hversu
sviphreinir þessir drengir eru.
KjallaRi
Morgunblaðið er tiltölulega frjáls fjölmiðill
Hreinn Loftsson
hæstaréttarlögmaður skrifar
Fjölmiðill
sem ekki
stóð með
frelsinu
heldur
veittist að
því.