Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Qupperneq 24
föstudagur 30. mars 200724 Helgarblað DV
Orðið „smjörklípa”
hefur farið eins og
eldur um sinu í
þjóðfélaginu á síð-
ustu mánuðum.
Virðulegir pólitíkus-
ar, lögmenn, ritstjór-
ar, unglingar, dómar-
ar og bloggarar nota
orðið við ýmis til-
efni en alls óvíst er
hvort fólk viti hvað-
an smjörklípuað-
ferðin er upphaf-
lega. Við kynnumst
heimi hönnuðar
smjörklípuaðferðar-
innar.
Ungir sem aldnir nota orðið smjör-
klípa í ræðu og riti, en tilurð orðsins
er ekki öllum kunn; það sést af því að
lesa það sem fólk hefur að segja á Ver-
aldarvefnum. Smjörklípuaðferðin er
gömul og góð aðferð, sem iðkuð var
af látlausri alþýðukonu á Laufásveg-
inum; konu sem elskaði börn og dýr.
Fólkið sem þekkir hönnuð orðsins best
eru þau Davíð Oddsson og systir hans,
Lillý Valgerður, enda dvöldu þau oft
hjá orðsmiðnum. Við náðum ekki tali
af Davíð vegna þessa, en Lillý Valgerð-
ur Oddsdóttir systir hans, sagði okkur
af konunni sem notaði smjörklípuna
fyrst og telur hana ekki hafa gert það
til að beina sjónum frá óþægilegum
aðstæðum eins og margir telja.
„Þetta var hún Ingibjörg Briem
Ólafsdóttir, föðursystir okkar, alltaf
kölluð Íja,“ segir Lillý Valgerður, sem
segir að hún telji líklegra að Íja hafi
sett smjörklípu á kisuna Mikku til að
gleðja hana.
„Ég held að Íja hafi nú bara verið
að dekra kisu, enda var hún ákaflega
góð við börn og dýr,“segir Lillý Val-
gerður.„Ég hugsa að Íja hefði kosið að
smjörklípuaðferðin væri notuð í ögn
jákvæðari merkingu en nú ert gert,
en ef það léttir lund hjá fólki að nota
þetta orð og Íja hefur tök á að fylgjast
með því, þá hefur hún örugglega bara
gaman af!“
Uppdúkað veisluborð fyrir
börnin
Ingibjörg var fædd 29. mars árið
1907 og í gær var því öld liðin frá fæð-
ingu hennar. Ingibjörg var stórbrot-
in alþýðukona, sem var ein af fyrstu
talsímavörðum landsins og Lillý Val-
gerður fellst fúslega á að segja okkur af
þessari merku konu.
„Íja frænka var elst í sínum syst-
kinahópi. Eftir að afi, Ólafur Odds-
son, ljósmyndari lést, hélt hún heimili
með ömmu, Valgerði Briem. Við syst-
kinin vorum einu barnabörnin henn-
ar ömmu og við heimsóttum þær því
oft og fengum oft að gista hjá þeim.
Þær tóku alltaf á móti okkur eins og
höfðingja bæri að garði,“ segir hún og
brosir hlýlega. „Það voru einkum við
fjögur elstu systkinin sem heimsótt-
um þær mest, Ólafur, Davíð, ég og
Runólfur, sem er fjórum árum yngri
en ég. Vala Agnes er þrettán árum
yngri en ég og hún þekkti því ömmu
aldrei en hún þekkti Íju vel. Svo átt-
um við einn bróður, Harald, sem lést
ungur. Þegar við komum í litlu íbúð-
ina þeirra beið okkar uppdúkað borð
og þar var tjaldað til öllu því besta.
Heimili þeirra var sérstakur heim-
ur að koma í. Mér er minnistæðast-
ur tíminn þegar þær leigðu litla kjall-
araíbúð á Laufásveginum, skáhallt á
móti bandaríska sendiráðinu, en síð-
ar fluttu þær í Skipholtið.“
Engum hallmælt
Þegar inn í íbúðina var komið
barst ilmandi kaffilykt að vitum gest-
anna. Kaffið var malað í kaffikvörn og
systkinin sáu oft um að snúa kvörninni
fyrir ömmu og frænku.
„Það var ákaflega gestkvæmt hjá
þeim, enda áttu þær margar vinkon-
ur sem heimsóttu þær oft, enda góðar
konur heim að sækja. Þá var spilað og
talað saman og við Davíð fengum að
sitja til borðs með þeim og hlusta á allt
sem spjallað var um. Oft þurftum við
að vera tilbúin með púða til að bregða
eldsnöggt fyrir andlit okkar ef við feng-
um hláturskast yfir því sem rætt var
um!“ segir Lillý og hlær. „Davíð bróðir
var býsna góður í að herma eftir þeim
og leika sumar þeirra. Þarna, strax á
barnsaldri, komu leikarahæfileikar
hans í ljós, okkur til mikillar ánægju.“
Lillý Valgerður segir að við borð-
stofuborð mæðgnanna hafi margt ver-
ið rætt.
„Stofan hjá þeim var ekki stór og
borðstofuborðið miðdepillinn. Þar var
rætt um bæjarlífið, pólitíkina og ástina
en amma lagði á það áherslu að aldrei
væri talað illa um nokkra manneskju.“
Lillý Valgerður minnist þess þegar
þau systkinin fengu að upplifa það æv-
intýri að gista í litlu íbúðinni á Laufás-
veginum.
Jákvæð alþýðukona
sem elskaði börn og dýr
Talsímavörðurinn Ingibjörg
Briem Ólafsdóttir, Íja
stórbrotin alþýðukona, sem var
ein af fyrstu talsímavörðum Íslands.