Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Side 27
DV Helgarblað föstudagur 30. mars 2007 27
samkynhneigðina heldur bíða allt-
af eftir að ég tali um hlutina,“ segir
Ingibjörg. Elfa Rún sér að mestu um
tímapantanir í tengslum við óléttuna
og hefur hún gaman af því að segjast
vera að panta tíma fyrir konuna sína,
því yfirleitt kemur örlítið á þann sem
er hinum megin á línunni. En þær
segja um að gera að tala um sam-
kynhneigðina og barneignir því ekki
megi umgangast það sem eitthvert
tabú.
Eiga meira sæði frá sama gjafa
„Við ætlum alla vega að byrja á
þessu barni og svo kannski einu í
viðbót. Við eigum allavega sæði frá
sama sæðisgjafanum, því við keypt-
um fimm skammta en aðeins tveir
voru notaðir síðast,“ segir Elfa Rún.
Með því að nota sæði frá sama sæðis-
gjafanum í næstu tilraun geta börnin
þeirra Ingibjargar orðið hálfsystkin í
raun en til eru dæmi um slíkt.
Par getur fengið að leggja fram
óskir um háralit, augnlit og hæð
sæðisgjafans og reyndu þær Ingi-
björg og Elfa að velja þannig að líkur
væru á að barnið gæti líkst þeim báð-
um. Þær segja ekki alltaf ganga eftir
að fá allar óskir um útlit sæðisgjafans
uppfylltar en reynt er að fara eins ná-
lægt þeim og hægt er.
Ekki í þjóðkirkjunni
Báðar komu þær út úr skápnum
um tvítugt og segja þær það allt-
af vera ákveðið ferli sem þurfi að
ganga í gegnum. Auðveldara sé að
taka ákvörðunina um að koma út úr
skápnum heldur en að láta svo verða
af því að segja fólki frá því. „Það tók
mig tvö til þrjú ár að segja foreldrum
mínum frá,“ segir Elfa Rún. Þær hafa
nýverið látið skrá sig í Fríkirkjuna
og eru mjög ánægðar með afstöðu
hennar til samkynhneigðra. „Það er
langt síðan ég skráði mig úr þjóðkirkj-
unni og það er alltaf svolítið sterkt í
mér að koma ekki nærri henni út af
afstöðu hennar til málefna samkyn-
hneigðra,“ segir Ingibjörg. Elfa segir
kaldhæðnislega að það vanti nánast í
fermingarfræðslu þjóðkirkjunnar að
krakkar séu spurðir út í kynhneigð,
svo samkynhneigðir fái ekki að ferm-
ast frekar en að giftast í kirkju.
Viðurkenndar sem hæfir
foreldrar
Báðar segja þær lagabreyting-
arnar á síðasta ári skipta gífurlega
miklu máli. „Mestu skiptir að við
fáum sömu réttindi og erum við-
urkenndar sem hæfir foreldrar, því
samkynhneigðir vilja eignast börn
alveg jafnheitt og gagnkynhneigð-
ir,“ segir Elfa Rún og Ingibjörg tekur
undir og bætir við að lagabreyting-
unum fylgi frelsistilfinning. Báð-
ar telja þær marga hafa haldið fyrir
lagabreytingarnar að réttindi sam-
kynheigðra væru mun meiri en þau
voru í raun. Annars segja þær gott
að vera samkynhneigður á Íslandi
þótt alltaf séu einhverjar gagnrýn-
israddir á lofti. Fólk hefur misjafn-
ar skoðanir. Þær segja að svo verði
að vera, þótt neikvæð viðhorf snerti
þær alltaf eitthvað. „Mér fannst
ótrúlegt að heyra í Gunnari í Kross-
inum á Bylgjunni í síðustu viku. Það
virðast alltaf vera einhverjir sem
vilja fá hann til að viðra skoðanir
sínar,“ segir Elfa Rún.
hrs@dv.is
Ætlaði alltafað eignast börn
„Það var svolítið gaman að koma foreldrum mín-
um og systrum í opna skjöldu með þessum frétt-
um, því ég hef sama og ekkert talað um að langa í
barn í gegnum árin.“
Elfa Rún og Ingibjörg
Einn af veigameiri þáttunum í
nýjum lögum um réttindi
samkynhneigðra segir Elfa vera að
hún þurfi ekki að ættleiða barnið
heldur sé hún skráð foreldri um leið
og tæknifrjóvgunarferlið hefst.
dV myndIR gúndI