Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Síða 36
FösTUdagUr 30. mars 200736 Sport DV
Liverpool tekur á móti Arsenal í
stórleik helgarinnar í ensku úrvals-
deildinni. Arsenal er í þriðja sæti
deildarinnar með 55 stig, einu stigi
meira en Liverpool sem er í fjórða
sæti.
Liðin hafa þrisvar sinnum mæst
á leiktíðinni, tvisvar á heimavelli
Liverpool og einu sinni á heimavelli
Arsenal. Óhætt er að segja að Arsen-
al hafi haft yfirhöndina í viðureign-
um liðanna.
Fyrsti leikurinn fór fram 12.
nóvember á Emirates Stadium,
heimavelli Arsenal, þar sem
heimamenn unnu örugg-
an sigur, 3-0, með mörkum
frá Mathieu Flamini, Kolo
Toure og William Gallas.
6. janúar tók
Liverpool á
móti Ars-
enal á
Anfield í ensku bik-
arkeppninni. Ars-
enal vann þann leik
3-1 með tveimur
mörkum frá Tom-
as Rosicky og einu
frá Thierry Henry.
Dirk Kuyt skoraði
mark Liverpool í
leiknum.
Þremur dögum
síðar tók Liverpool
aftur á móti Arsen-
al, nú í deildarbikarn-
um. Leikmenn Arsenal fóru á
kostum og unnu 6-3. Brasilíu-
maðurinn Julio Baptista skor-
aði fjögur mörk fyrir Arsen-
al, Jeremie Aliadiere eitt og
Alexandre Song eitt. Robbie
Fowler, Steven Gerrard og Sami
Hyypia skoruðu sitt markið hver
fyrir Liverpool.
Arsenal hefur sem sagt unnið
þrjá leiki gegn Liverpool á leiktíð-
inni, skorað 12 mörk og fengið á
sig fjögur.
Liverpool vann leik liðanna á An-
field á síðustu leiktíð, 1-0, með marki
frá Luis Garcia. Hann verður þó fjarri
góðu gamni að þessu sinni vegna
meiðsla sem hann hlaut í leik Liver-
pool og Arsenal í deildarbikarnum
fyrr á þessari leiktíð.
Annar leikmaður Liverpool sem
missir af leiknum er Harry Kewell, en
hann hefur ekkert getað spilað með
liðinu á leiktíðinni vegna meiðsla. Að
öðru leyti eru allir leikmenn klárir í
slaginn hjá Liverpool.
Hjá Arsenal eru tveir markahæstu
leikmenn liðsins meiddir.
Robin van Persie varð fyr-
ir því óláni að fótbrotna
í leik gegn Manchest-
er United fyrr á leik-
tíðinni og Thierry
Henry er kviðslit-
inn. Þá er Theo Wal-
cott meiddur á
öxl og leikur ekk-
ert meira með á
þessari leiktíð.
Jermaine
Pennant, leik-
maður Liverpool,
telur að liðið sem
vinnu r leikinn á laugardaginn
endi í þriðja sæti deildarinnar.
„Það lið sem vinnur leikinn
endar í þriðja sæti. Fyrir þær sakir
er þetta einn stærsti leikur tímabils-
ins. Fyrir utan þennan leik þá eiga
bæði lið frekar auðvelda leiki eftir og
því er þetta mjög mikilvægur leikur.
Ef við spilum eins og við getum
best þá ættum við að vinna leik-
inn. Þeir hafa unnið okkur nokkrum
sinnum á þessari leiktíð, þannig að
það er kominn tími á að við vinnum,“
sagði Pennant.
Liverpool og Arsenal eru und-
ir stjórn tveggja af færustu fram-
kvæmdastjórunum í boltanum í dag,
Rafael Benitez og Arsene Wenger.
Benitez segir að hann beri mikla
virðingu fyrir kollega sínum hjá Ars-
enal.
„Mér finnst hann vera frábær
stjóri. Horfið á liðið áður en hann
kom og horfið svo á liðið eins og það
er núna. Arsenal spilar góðan fót-
bolta og hefur unnið marga titla,“
sagði Benitez.
Síðustu tvö tímabil hafa Liver-
pool og Arsenal spilað fimm leiki
og þeim hafa verið skoruð 20
mörk. Síðasta
0-0 jafnteflið
í innbyrgðis-
leik liðanna
leit dagsins
ljós 9. janúar
1999.
dagur@dv.is
LiverpooL
sæti L s J T m st
4. Liverpool 30 16 6 8 44:20 54
TiTLar
Deildarmeistaratitlar: 18
evrópukeppni meistaraliða/Meis-
taradeild evrópu: 5
evrópukeppni félagsliða: 3
enska bikarkeppnin: 7
Deildarbikarkeppnin: 7
arsenaL
sæti L s J T m st
3. arsenal 29 16 7 6 51:24 55
TiTLar
Deildarmeistaratitlar: 13
evrópukeppni bikarhafa: 1
enska bikarkeppnin: 10
Deildarbikarkeppnin: 2
síðusTu Tíu Leikir Liðanna
29. jan. 2003 Liverpool - arsenal 2-2
Mörk Liverpool: John Arne Riise og
Emile Heskey
Mörk Arsenal: Robert Pires og Dennis
Bergkamp
4. okt. 03 Liverpool - arsenal 1-2
Mark Liverpool: Harry Kewell
Mörk Arsenal: Sami Hyypia (sjálfsm.)
og Robert Pires
9. apr. 04 arsenal - Liverpool 4-2
Mörk Arsenal: Thierry Henry 3 og
Robert Pires
Mörk Liverpool: Sami Hyypia og
Michael Owen
28. nóv. 04 Liverpool - arsenal 2-1
Mörk Liverpool: Xabi Alonso og Neil
Mellor
Mark Arsenal: Patrick Vieira
8. maí 05 arsenal - Liverpool 3-1
Mörk Arsenal: Robert Pires, Jose Anto-
nio Reyes og Cesc Fabregas
Mark Liverpool: Steven Gerrard
14. feb. 06 Liverpool - arsenal 1-0
mark Liverpool: Luis garcia
12. mar. 06 arsenal - Liverpool 2-1
Mörk Arsenal: Thierry Henry 2
Mark Liverpool: Luis Garcia
12. nóv. 06 arsenal - Liverpool 3-0
Mörk Arsenal: Mathieu Flamini, Kolo
Toure og William Gallas
6. jan. 07 Liverpool - arsenal 1-3
Mark Liverpool: Dirk Kuyt
Mörk Arsenal: Tomas Rosicky 2 og
Thierry Henry
9. jan. 07 Liverpool - arsenal 3-6
Mörk Liverpool: Robbie Fowler, Steven
Gerrard og Sami Hyypia
Mörk Arsenal: Julio Baptista 4, Jeremie
Aliadiere og Alexandre Song
Fyrri viðureignir Liðanna
samtals: 197
Liverpool sigrar: 79
arsenal sigrar: 70
Jafntefli: 48
L=leikir, s=sigrar, J=jafntefli, T=tap,
M=mörk skoruð : mörk fengin á sig,
s=stig
Liverpool - Arsenal
arsenal hefur farið
illa með Liverpool á
leiktíðinni. Á laug-
ardaginn gefst leik-
mönnum Liverpool
tækifæri til að hefna
ófaranna þegar
arsenal kemur í
heimsókn á anfield.
skepnan Julio
Baptista gengur
gjarnan undir
gælunafninu
skepnan. Hann
skoraði fjögur mörk
í síðasta leik
liðanna.
Hefur vaxið
ásmegin Craig
Bellamy fór ekki vel
af stað með Liver-
pool en hefur sýnt
hvers hann er
megnugur að
undanförnu.
Hörkutækling Leikir Liverpool og arsenal hafa oft einkennst
af hörðum tæklingum og hér gerir Xabi alonso sig líklegan til
að brjóta á Thierry Henry.
skoraði tvö mörk Tomas rosicky skoraði
tvö mörk gegn Liverpool í enska
bikarnum en hann hefur skorað þrjú
mörk alls fyrir arsenal í vetur.