Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 37
Menning
Blásarar
í Salnum
Á tónleikum Blásarasveitar
Reykjavíkur í Salnum á laug-
ardag verða flutt verk eftir þrjú
tónskáld, en verkin eiga það
öll sameiginlegt að vera sam-
in við upphaf tónskáldaferils
höfundanna. Svíta R. Strauss
er samin þegar hann var undir
verndarvæng Heinz von Bülow
og markaði jafnframt upphaf
að farsælum ferli Strauss sem
stjórnanda. Kurt Weill samdi
konsertinn á námsárum sínum
hjá Ferruccio Busoni í Berlín.
Verk Benedikts Hermanns Her-
mannssonar er lokaverk hans
frá Tónlistardeild Listaháskóla
Íslands. Stjórnandi er Kjartan
Óskarsson og einleikari Una
Sveinbjarnardóttir. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 17 og aðgangur er
ókeypis.
Tríóið TRISFO
Íslensk-færeyska tríóið TRISFO heldur útgáfutónleika í Nor-
ræna húsinu sunnudaginn 1. apríl kl. 20. Aðalhvatamaður að
stofnun og starfi tríósins er færeyski kontrabassaleikarinn
Edvard Nyholm Debess, en auk hans skipa tríóið
íslendingarnir Kjartan Valdemarsson á píanó og Sigurður
Flosason á saxófóna.
DV Menning föstudagur 30. mars 2007 37
Vinnustofa
Snorra
Snorri Ásmundsson opnar á
laugardaginn sýninguna „Ég og
vinnustofan
mín,“ í sýn-
ingarrýminu
Suðsuðvest-
ur í Reykja-
nesbæ.
Sýningin
samanstend-
ur af sjálfs-
mynd,
teikningum af listunnendum
og myndbandi sem er tekið
upp í vinnustofu Snorra í Ála-
fosskvosinni, þar sem fylgst er
með störfum hans. „Ég þekki
marga myndlistamenn og hef
stundum hugleitt hvað þeir að-
hafast á vinnustofum sínum. Í
myndbandinu sem er einhvers
konar sjálfsmynd sýni ég hinar
ýmsu aðfarir sem eiga sér stað á
vinnustofu minni, “ segir Snorri
um sýninguna.
Grettir æfður
Æfingar á söngleiknum
Gretti eru hafnar að nýju, en
Halldór Gylfason, sem leik-
ur titilhlutverk sýningarinn-
ar meiddist á baki nýverið og
frumsýningu var frestað í kjöl-
farið. Frumsýning verksins hef-
ur verið ákveðin í Borgarleik-
húsinu sunnudagskvöldið 22.
apríl næstkomandi. Bergur Ing-
ólfsson leikari hefur lært hlut-
verk Grettis til vonar og vara og
mun hann taka að sér hlutverk-
ið ef með þar.
Færeyskir tónlistarmenn heim-
sækja Ísland um helgina og halda
tónleika á Nasa við Austurvöll. Tón-
listarhátíðin Atlantic Music Event
var haldin hérlendis í fyrsta skipti í
fyrra, en hátíðin er haldin reglulega í
Færeyjum og Danmörku. Tónlistar-
mennirnir sem koma fram á hátíð-
inni að þessu sinni eru allir í fremstu
röð færeyskra tónlistarmanna og
hafa margir náð góðum árangri víð-
ar en í Færeyjum.
„Markmið þessarar hátíðar er að
vekja athygli á færeyskri tónlist og
minna okkur svolítið á þessa frænd-
ur okkar,“ segir Ásgeir Eyþórsson,
einn skipuleggjenda hátíðarinnar.
„Þetta hefur heppnast svo vel í Fær-
eyjum og Danmörku hingað til að
það þótti tilefni til að færa út kvíarn-
ar og halda hátíðina hérlendis. Svo
stendur til að halda hana í London
seinna á árinu.“
Ásgeir segir færeyska tónlist-
ar-menn ná góðum árangri utan
heimalandsins um þessar mundir og
bendir sérstaklega á söngvarann Teit
Lassen í því samhengi, en hann fékk
verðlaun sem söngvari ársins í Dan-
mörku nýverið. Teitur kemur hingað
til lands beint frá Bandaríkjunum,
en hann verið verið á tónleikaferð
þar og í Ástralíu undanfarið. Héðan
fer hann svo til Danmerkur og Bret-
landseyja. „Danir eru mjög hrifnir af
honum og hafa gert hann að sínum,
svolítið eins og við tókum á móti Ei-
vöru Pálsdóttur þegar hún sló í gegn
hérlendis,“ segir Ásgeir. Eivör kem-
ur einnig fram á hátíðinni, en hún
hefur verið meðal vinsælustu söng-
kvenna hérlendis síðustu ár. Und-
anfarið hefur hún einnig látið að sér
kveða í Danmörku og víðar. Von er á
nýrri hljómplötu frá henni í vor.
Fleiri ungir og efnilegir tónlist-
armenn koma fram á hátíðinni.
Hljómsveitin Gestir þykir ein at-
hyglisverðasta rokksveit Færeyja
um þessar mundir og fyrsta hljóm-
plata hennar „Burtur frá Toftunum“,
vakti mikla athygli í Færeyjum þeg-
ar hún kom út á síðasta ári. Gest-
ir komu fram á hátíðinni hérlendis
í fyrra. Það gerði líka Högni Lisberg
sem kemur fram á tónleikunum, en
hann lék einnig á Iceland Airwaves í
fyrra. Þá er ónefndur Brandur Enni,
sem kom hingað til lands fyrir fimm
árum síðan, þá12 ára gamall og var
gjarnan nefndur í sömu andrá og ís-
lenska barnastjarnan Jóhanna Guð-
rún á þeim tíma. Brandur er með
hljómplötusamning í Svíþjóð og
starfar þar um þessar mundir. Það
verður því boðið upp á bestu tón-
list sem Færeyjar hafa fram að færa
um þessar mundir á Nasa á laugar-
daginn.
Eivör Pálsdóttir Nýtur mikilla vinsælda.
Teitur Lassen Kemur beint úr tónleikaferð
um Bandaríkin og Ástralíu.
Gestir Léku líka á hátíðinni í fyrra.
„Þetta er svolítið vísindaleg sýning,
eða nokkurskonar könnun,“ segir
ljósmyndarinn Spessi um sýninguna
Úrtak sem hann opnar í gallerí Anima
í dag. Á sýningunni eru myndir sem
hann
tók á
Ísafirði
um páskana 2004 og sýndi þar um
sumarið. Á myndunum má sjá 50
manna tilviljunarkennt úrtak, sem að
sögn Spessa telst vera 1,4% Ísfirðinga.
Úrtakið var unnið þannig að Spessi
var staddur á aðalgötum Ísafjarðar
um páskana 2004 og myndaði gesti
og gangandi sem áttu leið um. „Ég
ákvað að taka portrett af Ísafirði og fór
þá leið að gera eins konar skoðana-
könnun. Fór út á göturnar og spurði
fólk hvort ég mætti taka mynd af því,“
segir Spessi. Hann kom fólki gjarnan
fyrir á óþægilegum stöðum - eins og
úti á miðri götu. „Þetta er einskonar
tilraun með portrettið. Ég hef áður
gert portrettmyndir þar sem ég stillti
til dæmis mönnum upp í sömu jakka-
fötunum með hvítan bakgrunn. Svo
hef ég líka tekið portrett af „venjulegu
fólki“, ef svo má segja. Fólkinu sem
maður sér ekki annars,“ segir hann.
Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísa-
fjarðar opnar sýninguna og bein út-
sending verður meðan á sýningunni
stendur frá vefmyndavél sem hefur
verið komið fyrir á Silfurtorgi, í mið-
bæ Ísafjarðar. Þá verður gjörningur-
inn „Byggðarstefna“, fluttur á torginu
undir forystu Elfars Loga Hannes-
sonar, leikara og leikstjóra. Sýningin
er þriðja sýning Spessa undanfarið
hálft ár og von er á ljósmyndabókinni
Locations frá honum í vor.
Spessi opnar sýningu í gallerí Anima í dag:
ÚRTak SpeSSa í anIma
LJÓSMYNDUN
Tónlistarhátíðin Atlantic Music Event verður haldin á Nasa á laugardagskvöldið. Þar
koma fram vinsælustu tónlistarmenn Færeyja um þessar mundir.
tÓNLiStarhátíð
FÆREYINGARNIR
ko a