Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Síða 39
DV Helgarblað föstudagur 30. mars 2007 39
„Ég uppgötvaði mér
til mikillar hrellingar
að eftir að ég var orðin
mamma var ég orð-
in annars flokks þjóð-
félagsþegn. Fram að
því að ég kaus að vera
heima og ala upp börn-
in mín, hafði ég aldrei
orðið vör við karlremb-
ugang eða kvenfyrir-
litningu. Allt í einu var
það orðin fyrirstaða að
vera heimavinnandi
húsmóðir.“
henni var ég svo í grænum jakka sem
ég saumaði á mig.“
Skrapp úr vinnunni í
keppnina „Miss World“
Þegar Ásdís skráði sig til náms á fyr-
irsætuskóla í London, vissi hún ekki að
áður en að því kæmi að hún settist þar
á skólabekk hefði hún verið kjörin önn-
ur fegursta stúlka Íslands.
„Já, ég skellti mér í Fegurðarsam-
keppni Íslands árið 1978 og varð í öðru
sæti. Það leiddi til þess að ég var send
í keppnina „Miss World“ sem hald-
in var í London, en sigurvegarinn fór
í „Miss Universe“. Það þótti nú ekki
fínt að taka þátt í fegurðarsamkeppni
á þessum tíma og skólafélagar mínir í
MH, félagarnir í Heimdalli og mamma
áttu ekki til orð yfir mig! Þetta þótti sko
bera vott um greindarskort! Pabbi var
sá eini sem skildi mig, enda leikari og
hann skildi þörfina fyrir að sýna sig.“
Eftir námið í fyrirsætuskólanum
fékk Ásdís fjölda tilboða. Einu þeirra
þurfti hún að hafna þar sem keppnin
um Ungfrú heim fór fram sömu daga
og tökurnar voru áætlaðar.
„Mér fannst svo eðlilegt að segja
að ég gæti því miður ekki tekið þetta
verkefni að mér því ég væri að fara
að keppa í „Miss World“ – en þá varð
uppi fótur og fit! Meðleigjendur mínir
litu mig allt öðrum augum eftir þessa
uppgötvun og það lá við að fólk bukk-
aði sig og beygði fyrir mér! Þetta var
ævintýralegt líf, ég flutti úr kommún-
unni í leiguíbúðinni - þar sem ég hafði
þurft að merkja eggin mín svo enginn
borðaði þau! – inn á fimm stjörnu
hótel og lifði drottningarlífi í hálfan
mánuð! Síðan tók við daglegt líf og ég
starfaði sem fyrirsæta í tæp tvö ár fyrir
bresk og þýsk fyrirtæki.“
Svo kvaddi hún Bretland – en bara
til bráðabirgða - og hélt til náms í
hönnun í Los Angeles.
„Ég var staðráðin í að verða hönn-
uður, kom heim fór í Öldungadeild-
ina í MH og vann með í tískuverslun-
um. Tveimur árum seinna fór ég út í
nám og lauk BA prófi í því sem kallast
„Fashion Merchandising and design“
(tískuvörufræði og tískuhönnun). Ég
var í tvö ár í Los Angeles og lauk nám-
inu frá sama skóla í London.“
Mæður ekki gjaldgengar
í stjórnmálum
Ásdís segist vera fædd pólitísk og
hefur alltaf stutt Sjálfstæðisflokkinn.
Hún var kjörin varaformaður Heim-
dallar árið 1981 og sat síðar í stjórn
Hvatar.
„Afi minn var mjög pólitískur, sem
og mamma. Ég held ég hafi fæðst
pólitísk. Pabbi var hins vegar meira
„easy going“ leikari. Hann hefði átt
að verða óperusöngvari á Ítalíu hann
pabbi, hann er besti maður í heimi,
mikill sögumaður, skrifar sögur og
ljóð og er mikill listamaður. Þegar ég
bjó á Akureyri, ´89-´91, var ég á lista
Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn-
arkosningum og var varaformað-
ur Jafnréttisnefndar Akureyrarbæjar
hálft kjörtímabil.“
En hvað, hvers vegna hættirðu af-
skiptum af stjórnmálum?
„Ég uppgötvaði mér til mikill-
ar hrellingar að eftir að ég var orðin
mamma var ég orðin annars flokks
þjóðfélagsþegn. Fram að því að ég
kaus að vera heima og ala upp börnin
mín, hafði ég aldrei orðið vör við karl-
rembugang eða kvenfyrirlitningu.
Allt í einu var það orðin fyrirstaða að
vera heimavinnandi húsmóðir. Mið-
stelpan mín er mikill feminísti og það
er mikið talað um pólitík á heimil-
inu, en ég er alveg sannfærð um að
það verður aldrei fullkomið jafnrétti
fyrr en við förum að meta það að það
þarf að sinna börnum. Ég tók að mér
hlutastörf eftir að stelpurnar mínar
fæddust, en lagði aðal áhersluna á að
sinna þeim. Ég var heimavinnandi í
tíu ár og var þar með dæmd úr leik.
Ég hafði alltaf þráð að eignast börn og
gat ekki hugsað mér að hafa beðið til
þrítugs eftir að sjá drauminn rætast til
þess eins að setja barnið í hendurnar
á öðrum að ala það upp. Það var ekki
það sem mig hafði dreymt um. Við
vorum blönk en það var þess virði að
vera hjá stelpunum. Ég saumaði allt á
þær og brúðarfötin á okkur Gumma
auk þess sem ég tók að mér sauma
fyrir aðra.“
Diza með zetu
Umræddur Gummi er Guðmund-
ur Sigurbjörnsson, byggingameist-
ari, „þorpari“ frá Akureyri og gamall
skíðakappi segir hún mér. Fundum
þeirra bar óvænt saman fyrir tuttugu
árum.
„Vinkona mín bauð okkur í mat.
Guðmundur var þá nýfráskilinn, við
horfðumst í augu og höfum ekki skil-
ið síðan. Við bjuggum á Akureyri í rúm
tvö ár, en urðum að flytja suður vegna
atvinnuástandsins þar. Nú búum við
í Kópavogi með dætrunum þrem-
ur, kettinum Cleo Laine, hvolpinum
Yoko Ono og svarta labradorhundin-
um Tryggi.“
Ásdís rekur verslunina Dizu, en það
fyrirtæki stofnaði hún upphaflega árið
1986 sem „Diza fatahönnun“.
„Þá hannaði ég lopajakka, peys-
ur og einkennisfatnað, meðal ann-
ars fyrir Hampiðjuna, tannlæknastof-
ur og fleiri,“ segir hún en svo kynntist
hún heimi fjölmiðlanna. „Um tíma
sá ég um þáttinn „Í takt við tímann“
í Sjónvarpinu ásamt Jóni Gústafssyni
og Elínu Hirst; sá um þáttinn „Í dags-
ins önn“ vikulega í útvarpinu,var flug-
freyja nokkur sumur, kenndi fatahönn-
un við Tómstundaskólann og skrifaði
tískupistla fyrir Morgunblaðið...“
Þegar ég spyr hvort hún hafi virki-
lega aldrei unnið í frystihúsi skellir hún
upp úr.
„Hvað heldurðu?! Auðvitað vann
ég í frystihúsi. Þar tíndi ég orma úr
fiskum... en reyndar bara í sex vikur.
Ég var ekki lengi að stökkva til þegar
ég uppgötvaði að það vantaði stelpu í
sjoppuna! Einn vetur vann ég á dæg-
urmálaútvarpi Rásar 2, tók mér svo
frí í nokkur ár og síðustu þrjú árin hef
ég rekið verslunina mína Dizu. Zetan
er þarna vegna þess að vinkona mín
í Bretlandi vildi bera nafnið mitt rétt
fram og með því að skrifa það „Aus-
diz“ tókst henni það. En ég verð að
segja það, að af öllum þeim störfum
sem ég hef gegnt er móðurhlutverkið
það lang skemmtilegasta.“
Fordekraður dugnaðarforkur
Það er auðvitað dæmigert að búð-
in fyllist af viðskiptavinum á slag-
inu ellefu. Þegar Ásdís fer að pakka
inn bútasaums-tehettu fyrir einn við-
skiptavinanna, spyr ég hana hvaðan
þessar tehettur séu fluttar inn.
„Þær eru ekki innfluttar,“ svarar
hún brosandi. „Ég hef verið að sauma
þessar bútasaumshettur í ellefu ár
og þær hafa verið seldar í Te og Kaffi,
Whittard of London – og í verslunum
víða um land. Ég fór út í bútasaum-
inn til að hafa eitthvað að gera. Núna
stend ég hins vegar frammi fyrir því
að hætta að selja efni og breyta Dizu í
tískuverslun. Það er sorglegt, en efna-
vöruverslanir eru að líða undir lok á
Íslandi.“
Í ljósi þess hversu mikla sjálfsbjarg-
arviðleitni þessi kona hefur, stenst
ég ekki mátið að spyrja hana hvern-
ig henni hafi tekist að verða svona
sjálfbjarga með fjóra eldri bræður sér
við hlið. Ofdekruðu þeir þig virkilega
ekki?
„Nei... - Og þó... Þegar ég var kom-
in í menntaskóla vildi Jón bróðir ráða
í hvernig fötum ég færi á böll, Hreinn
var á gægjum bak við gardínur þeg-
ar ég kom heim af böllunum til að
tryggja að ég skilaði mér heim á rétt-
um tíma og örugglega ein (!), Magn-
ús sat og hlustaði á sorgarsögurnar
og sagði mér að það kæmi að því einn
daginn að ég hitti einhvern sem þyldi
mig nákvæmlega eins og ég væri og
Guðjón, sá elsti, tók annaðhvort upp
seðlaveski eða bíllyklana ef ég nefndi
nafnið hans í ákveðnum tón. Ég er
fordekruð!“
Áður en ég kveð Ásdísi spyr ég hana
hvernig tískuvöruverslun við meg-
um eiga von á í haust þarna á horni
Laugavegs og Frakkastígs.
„Þar verður lögð áhersla á peysur.
Minn stíll, sem er eins og ég er sjálf.
Sígild með uppábroti, eða eins og
Bretinn segir: „Classic with a twist“!
Ég er íhaldssöm og sígild – en vil ekki
neina flatneskju. Þessi verslun verð-
ur mitt mótvægi við alheimsvæðing-
unni. Búðin verður sköpuð eftir mín-
um hugmyndum, engar keðjur, engar
eftirlíkingar.“
annakristine@dv.is
Fordekraður dugnaðarforkur
Ásdís Loftsdóttir er ósérhlífin,
hugmyndarík og hörkudugleg.
fjórir eldri bræður vernduðu hana,
hlustuðu á hana og hún segir þá
hafa dekrað sig.
Á bikini baðfötum á sviði „stelpurnar
mínar sögðu nú bara: „mamma! Þú
varst ekki með nein brjóst!“ þegar þær
sáu þessa mynd.
Stuttklippt í sjónvarpinu Þegar Ásdís
fór að vinna í sjónvarpinu skipti hún
um stíl og varð stutthærð og virðuleg!
Fyrsta fyrirsætumyndin apríl 1977.
Í „Miss World“ kjólnum Ásdís á leið í keppnina „miss World“.
Sigurvegari Ásdís vann til verðlauna í
hönnunarkeppni skólans sem hún
nam við í Los angeles. Heppni að
hönnuðurinn gat sjálfur sýnt eigin
framleiðslu!