Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 41
DV Ættfræði föstudagur 30. mars 2007 41
kona VIkUnnaR
Valgerður
Sverrisdóttir
utanríkisráðherra
Starfsferill
Valgerður fæddist á Lómatjörn í
Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyj-
arsýslu 23.3. 1950 og ólst þar upp.
Hún lauk prófi frá Kvennaskólanum
í Reykjavík 1967, stundaði þýskunám
við Berlitzschool í Hamborg 1968-69,
og enskunám við Richmond School í
London 1971-72.
Valgerður var ritari hjá Rannsókn-
arstofnun landbúnaðarins 1967-68,
ritari kaupfélagsstjóra KEA 1969-70,
var læknaritari á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri 1970-71, kennari
við Grenivíkurskóla 1972-76, í hluta-
starfi 1977-82, húsfreyja og bóndi
á Lómatjörn frá 1974, var varaþm.
Norðurlandskjördæmis eystra frá
1984, alþm. kjördæmisins 1987-2003
og alþm. Norðausturkjördæmis frá
2003, var iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra 1999-2006, samstarfsráðherra
Norðurlanda 2004-2005 og hefur
verið utanríkisráðherra frá 2006.
Valgerður sat í stjórn KEA 1981-
92, í stjórn SÍS 1985-92, í stjórn Kjör-
dæmiasambands framsóknarmanna
í Norðurlandskjördæmi eystra 1983-
87 og stjórnarformaður 1985-86, í
miðstjórn Framsóknarflokksins frá
1983, var vararitari Framsóknar-
flokksins 1990-97, sat í Norðurlanda-
ráði 1987, 1990, 1995 og 1999 og var
formaður Íslandsdeildar 1995, sat í
stjórn Slippstöðvarinnar á Akureyri
1989-91, í skólanefnd Samvinnuhá-
skólans 1990-96 og formaður 1995-
96, í stjórn Norræna menningar-
málasjóðsins 1991-93 og 1995-98
og formaður 1995, var varaformað-
ur þingflokks Framsóknarflokks-
ins frá 1987 og formaður 1995-99,
sat í umhverfisnefnd Alþingis 1991
og 1992, menntamálanefnd 1991 og
1995, efnahags- og viðskiptanefnd
1995-99, allsherjarnefnd 1995-99,
kjörbréfanefnd 1995-2000, utan-
ríkismálanefnd 1999, sérnefnd um
stjórnarskrármál 1999, landbúnað-
arnefnd 1999, heilbrigðis- og trygg-
inganefnd 1999 og formaður henn-
ar og í félagsmálanefnd 1999. Þá sat
hún í Íslandsdeild Norðurlandaráðs
1995 og 1999 er hún var formaður
hennar, og í Íslandsdeild ÖFS þings-
ins 1999.
Fjölskylda
Valgerður giftist 29.6. 1974 Arvid
Kro, f. 13.9. 1952, bónda á Lómatjörn.
Hann er sonur Ingrid og Magne Kro
sem stunduðu lengst af búskap í
Hauge í Noregi.
Dætur Valgerðar og Arvid eru
Anna Valdís Kro, f. 12.12. 1978, leik-
skólakennari í Reykjavík; Ingunn
Agnes Kro, f. 27.3. 1982, lögfræði-
nemi en sambýlismaður hennar
er Hjalti Þór Pálmason handknatt-
leiksmaður; Lilja Sólveig Kro, f. 4.11.
1989.
Systur Valgerðar eru Sigríður
Sverrisdóttir, f. 31.5. 1948, kennari
við Grenivíkurskóla en maður henn-
ar er Heimir Ingólfsson bóndi; Guð-
ný Sverrisdóttir, f. 15.9. 1952, sveitar-
stjóri á Grenivík en maður hennar er
Jóhann Ingólfsson bóndi.
Foreldrar Valgerðar voru Sverrir
Guðmundsson, f. 10.8. 1912, d. 6.1.
1992, bóndi og oddviti á Lómatjörn,
og k.h., Jórlaug Guðrún Guðnadóttir,
f. 9.5. 1910, d. 15.4. 1960, kaupakona
í Reykjavík og síðar húsfreyja á Lóm-
atjörn.
Ætt
Sverrir var sonur Guðmundar,
b. á Lómatjörn Sæmundssonar, b.
í Gröf í Kaupangssveit Jónasson-
ar. Móðir Guðmundar var Ingileif
Jónsdóttir, b. í Uppsölum í Svarfað-
ardal Jónssonar. Móðir Jóns var Þór-
unn Björnsdóttir, b. á Moldhaugum
Björnssonar, og Halldóru Jónsdótt-
ur, pr. á Völlum Halldórssonar, afa
Páls Melsteð amtmanns. Móðir Ingi-
leifar var Helga Pálsdóttir, b. í Hofs-
árkoti Jónssonar, og Guðrúnar Jóns-
dóttur, b. á Uppsölum Arasonar, pr. á
Tjörn Þorleifssonar, prófasts á Múla
Skaftasonar.
Móðir Sverris var Valgerður Jó-
hannesdóttir, b. á Kussungsstöðum
Jónssonar Reykjalíns, pr. á Þöngla-
bakka Jónssonar Reykjalíns, pr.á Ríp
Jónssonar, pr. á Breiðabólstað í Vest-
urhópi Þorvarðarsonar, föður Frið-
riks, langafa Ólafs, afa Ólafs Ragn-
ars Grímssonar forseta. Móðir Jóns
á Þönglabakka var Sigríður Snorra-
dóttir, pr. á Hofsstöðum Björnsson,
bróður Jóns, langafa Pálínu, móður
Hermanns Jónassonar forsætisráð-
herra, föður Steingríms, fyrrv. for-
sætisráðherra. Móðir Valgerðar var
Guðrún Hallgrímsdóttir, b. á Hóli í
Fjörðum Ólafssonar, og Ingveldar
Árnadóttur, b. á Sveinsströnd Eyj-
ólfssonar, bróður Kristjönu, Móð-
ur Jóns Sigurðssonar, þingforseta
á Gautlöndum, föður ráðherranna
Kristjáns og Péturs, og langafa Jóns
Sigurðssonar, bankastjóra og fyrrv.
viðskiptaráðherra.
Jórlaug var dóttir Guðna Eyjólfs-
sonar frá Apavatni. Móðir Guðna
var Helga, systir Ragnheiðar, móð-
ur Ingunnar, konu Böðvars á Lauga-
vatni. Helga var dóttir Guðmundar,
b. í Eyvindartungu, bróður Halldóru,
ömmu Björns Þórðarsonar forsætis-
ráðherra. Halldóra var einnig lang-
amma Guðrúnar, móður Ragnars
Arnalds. Guðmundur var sonur Ól-
afs, b. í Leirvogstungu á Kjarlarnesi
Guðmundssonar, bróður Ragnheið-
ar, langömmu Guðlaugar, ömmu
Péturs Sigurgeirssonar biskups.
Móðir Helgu á Apavatni var Ingunn
Magnúsdóttir frá Laugarvatni.
Móðir Jórlaugar var Sigríður Guð-
mundsdóttir, hálfsystir, sammæðra,
Þjóðbjargar, móður Hauks Jörundar-
sonar, fyrrv. skólastjóra og skrifstofu-
stjóra í landbúnaðarráðuneytinu.
Móðir Sigríðar var Guðrún Jóhanns-
dóttir, b. á Hrólfsskála Bjarnasonar,
og Sigríðar Bjarnadóttur.
Valgerður Sverrisdóttir ut-
anríkisráðherra sér enga
ástæðu til að leyna Þingey-
inga eða aðra landsmenn
þeirri skoðun sinni, að vel
sé hugsanlegt að í Þingeyj-
arsýslu rísi álver sem fái
raforku frá jarðhitavirkjun-
um. Þetta kom fram í ræðu
ráðherrans á málþingi At-
vinnuþróunarfélags Þing-
eyinga nú í vikunni.
Framvegis mun DV birta tilkynning-
ar um stórafmæli, afmælisbörnum
að kostnaðarlausu. Tilkynningarnar
munu birtast á ættfræðiopnunni
sem verður í helgarblaði DV á föstu-
dögum. Með stórafmælum er hér átt
við 40 ára, 50 ára, 60 ára, 70 ára, 75
ára, 80 ára, 85 ára, 90 ára, 95 ára og
100 ára afmæli.
Þær upplýsingar sem hægt er að
koma á framfæri í slíkum tilkynning-
um eru nafn afmælisbarnsins, fæð-
ingardagur þess og ár, starfsheiti,
heimilisfang, nafn maka, starfsheiti
maka, nafn barna (án fæðingardags,
starfsheitis eða maka), nafn foreldra
afmælisbarnsins og tilkynning um
gestamóttöku eða önnur áform varð-
andi afmælisdaginn.
Á hverjum föstudegi verða birtar
slíkar tilkynningar um þá sem eiga
afmæli á föstudeginum sem blaðið
kemur út á til fimmtudags í vikunni
á eftir. Þannig verða tilkynningarnar
um afmæli á sjálfum útgáfudeginum
og næstu viku fram í tímann.
Senda skal afmælistilkynningar á
netfangið kgk@dv.is. Tilkynningarn-
ar verða að berast blaðinu eigi síðar
en kl. 15 á miðvikudegi. Það er afar
brýnt að þeim fylgi skýr andlitsmynd
af afmælisbarninu.
AfmælistilkynningAr á ættfræðisíðu
Veisla í miðborginni
Veislukompaníið er alhliða veislu- og
fundaþjónusta, nýr og spennandi valkostur
í miðborginni. Þú gengur að fyrsta flokks
húsnæði með öllum tæknibúnaði, frábærum
veitingum og þjónustu á besta stað í bænum.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is