Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Page 45
DV Ferðalög föstudagur 30. mars 2007 47
U m s j ó n : S n æ f r í ð u r I n g a d ó t t i r . N e t f a n g : s n a e f r i d u r @ d v . i s
á ferðinni Ævintýraferð fyrir krakkaHálendisferðir bjóða upp á tvo þriggja daga hálendisskóla fyrir krakka inn í Landmannalaugar. fyrri ferðin verður 2.-4.apríl og sú seinni 8.-10.júní. Þetta er sannkölluð ævintýraferð fyrir krakka á aldrinum 9-14 ára þar sem boðið verður upp á gönguferðir, kvöldvökur, húslestur, fjallateygjur og litaæfingar. Leiðsögumenn
eru Ósk Vilhjálmsdótir, margrét H. Blöndal og Ingibjörg g. guðmundsdóttir.
Ferðaskrifstofan Heimsferðir býður í
haust upp á tvær ferðir til einnar feg-
urstu eyju Karíbahafsins, Jamaíka.
Náttúrufegurð eyjunnar er róm-
uð en þar eru hinir frægu Dunn‘s-
fossar sem hlutu heimsfrægð í Jam-
es Bond-myndunum. Veðurfarið á
þessari þriðju stærstu eyju Karíba-
hafsins þykir einstakt sem og tón-
listarlífið en eyjan er fæðingarstaður
Bobs Marley. Eyjan er þar með vagga
reggítónlistarinnar sem hljómar
við hvert fótmál. Á Jamaíka er ýmis
skemmtileg afþreying í boði fyrir
ferðamenn. Þar er til dæmis hægt
að klífa hina frægu Dunn‘s-fossa,
fara í rafting, á hestbak, í golf, í mót-
orhjólaferðir eða kafa í silfurtærum
sjó. Einnig er kjörið að skella sér í
krikket sem er ein vinsælasta íþrótt-
in á eyjunni. Áhuga íbúanna á íþrótt-
inni má rekja til þess tíma sem eyj-
an var nýlenda Breta, en hún hlaut
sjálfstæði árið 1962. Íbúar Jamaíka
eru afar blandaðir en koma þó flestir
frá Afríku. Eyjaskeggjar eiga sitt eigið
tungumál sem er einhvers konar af-
bökun á ensku. Höfuðborgin heitir
Kingston en vinsælasti áfangastað-
ur ferðamanna er Ocho Rios sem er
á norðurströnd eyjarinnar. Þar er að
finna glæsihótel, hvítar strendur og
einstakar aðstæður til algerrar slök-
unar. Lesið ykkur nánar til um Jam-
aíka á heimasíðunum jamaicans.
com og jamaica.com
Haustferð með Heimsferðum:
Náttúruperlur á Jamaíka
Undraverð hönnun
Á morgun verður opnuð áhugaverð
sýning í dansk design Center í
Kaupmannahöfn sem ber nafnið
magisk design. Eins og nafnið gefur til
kynna verður þar að finna undraverða
hönnun sem breytt hefur lífi okkar
síðustu 50 árin. sem dæmi um hluti
sem falla þar undir eru vekjaraklukkur,
rakvélar, ryksugur, kaffivélar og
íþróttaskór. sýningin stendur til 10.
júní.
Í síðasta helgarblaði sagði Smári
Stefánsson útivistarkennari við
íþróttabraut KHÍ við Laugarvatn
frá norðlenska fjallinu Kerlingu og
skoraði um leið á Frey Inga Björns-
son, formann ÍSALP, að segja frá sínu
uppáhaldsfjalli. Freyr valdi berg-
drangann Þumal sem hann hefur
tvisvar klifið. „Ég er mjög hrifinn af
Skaftafelli og Öræfasveitinni, því þar
er hæstu fjöll landsins að finna,“ seg-
ir Freyr Ingi sem dagsdaglega starfar
sem leiðsögumaður.
„Þessi tindur er svakalega flott-
ur á að líta, þar sem sem teygir sig
nær lóðrétt upp úr jöklinum. Á aðra
hönd sér maður Skaftafellsfjöllin og
til norðurs blasir Vatnajökull við stór
og fallegur.“
Þumall sem er 1279 metra hár var
lengi vel talinn ókleifur eða þar til
þrír piltar úr Vestmannaeyjum klifu
hann árið 1975. Síðan þá hefur þeim
farið fjölgandi sem klifið hafa tind-
inn en þó fælir frá hin langa göngu-
leið að tindinum. „Það er um 10
kílómetra löng ganga inn að kletta-
spírunni sem alls ekki allir nenna að
leggja á sig,“ segir Freyr Ingi og bætir
við að til þess að komast að fjallinu
sé lagt af stað frá Skaftafelli og geng-
ið inn Morsárdal. Þar gista margir og
reyna svo við drangann daginn eftir
en þó er vel hægt að ná bæði göng-
unni að dranganum og klifri á hann
á einum löngum degi. „Bergið er
mjög brothætt og molnar auðveld-
lega og á toppnum hef ég velt því fyr-
ir mér hvað haldi eiginlega þessum
dranga uppi,“ segir Freyr Ingi sem
hefur stundað fjallaklifur síðan 1996.
Hann bætir við að Þumall sé vinsæll
viðkomustaður jeppamanna sem
komast að honum með því að keyra
innan af Vatnajökli. Frá þeirri hlið
hafa einhverjir farið á tindinn en það
sé auðvitað hálfgert svindl að sögn
Freys Inga.
Eins og fyrr segir er Freyr Ingi for-
maður Íslenska alpaklúbbsins sem
fagnar 30 ára afmæli í ár. „Afmælis-
dagurinn var 11. mars og þá ætluð-
um við að ganga á Skessuhorn en
þangað lá fyrsta ferð félagsins fyr-
ir 30 árum síðan. Ferðinni var hins-
vegar frestað vegna veðurs en önnur
tilraun verður gerð þann 14. apríl,“
segir Freyr Ingi og upplýsir að sami
fararstjóri verði í ferðinni og þeirri
sem farin var fyrir 30 árum síðan.
Félagsmenn í ÍSALP eru nú um
400 talsins og er starfsemin öflug. Auk
þess að standa reglulega fyrir nám-
skeiðum og ýmsum ferðum held-
ur félagið líka úti líflegri heimasíðu,
www.isalp.is, þar sem er að finna
ýmsan fróðleik varðandi klifurleið-
ir á Íslandi og líka talsvert af monti.
„Áður en netið kom til sögunnar stóð
félagið reglulega fyrir opnu húsi, þar
sem menn báru saman bækur sínar
og sýndu myndir úr ferðum sínum.
Nú fer þetta mestmegnis fram á Net-
inu en við höfum verið duglegir við
að skrá niður leiðarlýsingar á nýjum
leiðum og halda utan um þær,“ segir
Freyr Ingi. Nýafstaðin er Telemarks-
kíðahátíð á Akureyri og í febrúar stóð
félagið fyrir ísklifurfestivali. Páskana
sjá svo félagsmenn í miklum hylling-
um. „Ég held að flestir ÍSALP félagar
séu búnir að skipuleggja einhverjar
fjallaferðir um páskana. Sjálfan lang-
ar mig til þess að prófa nýja leið en
hún er ekki gefin upp að sinni,“ segir
Freyr Ingi leyndardómsfullur. Hvort
kajakmaðurinn Erlendur Þór Magn-
ússon verði eins leyndardómsfullur í
næsta helgarblaði DV kemur í ljós en
Freyr Ingi skorar á hann til frásagn-
ar.
snaefridur@dv.is
Lærðu að sörfa
Þeir, sem alltaf hefur dreymt um að
læra á brimbretti, geta látið drauminn
rætast hjá surfing australia sem rekur
70 brimbrettaskóla vítt og breitt um
Ástralíu. Þótt starfsemin sé öflugust í
Ástralíu rekur fyrirtækið líka skóla víða
annars staðar í heiminum eins og á
Ítalíu, Kostaríka og Jamaíka. skólinn
býður upp á prógramm sem er skipt
upp í fimm áfanga en ekki er
nauðsynlegt að taka þá alla í einu.
Einnig er reglulega boðið upp á
sérstakar æfingabúðir en til þess að
komast í þær verða menn að hafa
lokið byrjendanámskeiði. Nánari
upplýsingar má finna á surfingaustra-
lia.com
Menningarferð
til Parísar
Icelandair býður upp á spennandi
lista- og menningarferð til Parísar 18.-
22. apríl. Það er listfræðingurinn
Laufey Helgadóttir sem leiðir hópinn á
alla helstu merkisstaði Parísar og á
söfn eins og monet-safnið í giverny og
Orsay eða marmottan-safnið. Laufey
hefur verið fararstjóri hjá Icelandair
um árabil og er því öllum hnútum
kunnug í borginni.
Frábær ferðasíða
Á heimasíðunni ferdalangur.net er að
finna ýmsan skemmtilegan og
hagnýtan fróðleik fyrir sjálfstæða
ferðalanga sem gaman hafa af
ferðalögum um meginland Evrópu.
Það er margrét gunnarsdóttir sem
stendur á bak við vefinn en hún er
ekki bara forfallinn ferðalangur sjálf
heldur hefur hún einnig starfað sem
fararstjóri. Hægt er að gerast
áskrifandi að mánaðarlegu fréttabréfi
á síðunni þar sem ódýr hótel og
sniðugir áfangastaðir eru kynntir. Falleg eyja Það er nóg að skoða á þriðju stærstu eyju Karíbahafsins.
Frá því að blágrýtisdranginn Þumall var fyrst klifinn fyrir 32 árum hefur ferðum þang-
að farið fjölgandi. Útivistarmaðurinn Freyr Ingi Björnsson, sem er nýkjörinn formaður
Íslenska alpaklúbbsins, er einn þeirra sem klifið hafa bergdrjólann.
Reisuleg klettaspíRa
Víðförull freyr Ingi ásamt félaga
sínum Jóni Heiðari andréssyni á
toppi mera Peak í Nepal.
Þumall tindurinn Þumall er í
skaftafellsfjöllum. til þess að
komast að honum þarf að leggja á
sig um 10 kílómetra göngu.
Fjallabrölt að vetri menn verða að vera vel græjaðir til þess að klífa Þumal hvort sem
er að sumri eða vetri.