Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Qupperneq 50
föstudagur 30. mars 200752 Helgarblað DV
Tr
yg
g
va
g
a
ta
Lífið eftir vinnu Föstudagur Laugardagur
Uffie og Steed Lord á BarnUm
Það verður allt brjálað á
Barnum í kvöld, en þar spilar
hljómsveitin Steed Lord
ásamt hinni bresk/frönsku
Uffie sem gert hefur allt
vitlaust í tónlistarheiminum
undanfarið. frítt er inn á
Barinn en þar sem takmark-
aður fljöldi kemst inn þá er
fólk hvatt til að mæta
snemma. Partýið byrjar
uppúr 23:00 og stendur frameftir nóttu.
dj jói á óLíver
dans-spaðinn og diskó-
drottnarinn dj jói verður bakvið
stálborðin á ólíver um helgina.
jói er er enginn spói spýturass
heldur þjálfaður í hernaðarlist-
um dansgólfsins. ekki missa af
þessu og brunið beint niður á
olla, þar sem dansinn dunar.
Steffarinn á PrikinU
kvöldið hefst snemma á Prikinu í kvöld,
en alt-muligt mennirnir í Playmobile
fara glamra á gítarinn upp úr níu. eftir
það mætir maðurinn með ferskasta
afró sem sést hefur á austurlandi, dj
Stef. dettu í gang, fáðu þér í svang og
svo circa 12 snúninga á gólfinu.
andri og gULLi á PrikinU
Það er aðeins ein regla sem einkennir Prikið, en það
er bannað að fara yfir strikið. Þeir andri og gulli
ósóma hlusta þó aldrei á þá reglu, enda banana-
hundar með meiru. eindalaust partí og sagan
hermir að dyraverðirnir ætli að vera lús á því.
meiStari Biggo á angeLo
Stuðið verður auðvitað að eilífu inn á angelo á
laugardagskvöldið. Þar kemur fram húsplöt-
snúðurinn biggo, svaðalegur fír sem skiptir
um gír. Hefur jafnan verið kallaður Schuma-
cher plötusnúðaheimsins í gegnum tíðina.
ekki væla, ekki kreista, þannig er það bara.
jBk á óLíver
Blaðamaður á daginn, plötusnúður á
kvöldin. já Clark kent plötusnúðanna
sjálfur jóhann Bjarni kolbeinsson sér
um friskóið í kvöld. Sagt verður að
gillzarinn ætli að mæta og spenna
byssurnar, en ekkert hefur fengist
staðfest í þeim efnum. en allaega, þá
er það engin lygi að fjörið verður á ólíver í kvöld.
Bigfoot á HverfiSBarnUm
Hinn svaðalegi, svakalegi og gasalegi
kiddi Bigfoot töfrar fram tónanna á
Hvebbanum alla helgina. Hann tekur
sér þó nokkrar vatnspásur á milli, en
engu að síður er það á kristaltæru að
stemmarinn verður í algleymingi.
dj BörkUr á Café PariS
dj Börkur færir þér tónlist af
hörku á Café Paris í kvöld. Þessir
marmelaðimeistari töfrar fram
tónanna af miklum krafti og
tvistar til að gleyma. meðal
annars, fönk, rogB, jazz og smá
hiphop. dettu í gang laxi!.
fm957 á SóLon
Þeir fm bræður Heiðar austmann og
riggi g sjá um partíið á Sólon í kvöld.
Heiðar er margreyndur og sjóaður í
bransanum og þess vegna mun hann
sjá um efri-hæðina á meðan hin ungi
og æsti rikki g þeytir skífunum á 800
km hraða á þeirri neðri.
aUStanátt á SóLon
Uppáhald allra landsmanna sjálfur Heiðar
austmann sér um kvöldið á Sólon í kvöld. Heiðar er
útvarpsmaður á fm957 og veit því upp á hár hvað
er heitt og hvað er þreytt, enda sefur þessi maður
með puttann á púlsinum. Þannig er það bara.
andrea jónS á diLLon
Það er rokkamman sjálf dj andrea
jónsdóttir sem verður á dillon
laugardagskvöldið. andrea á fastan
aðdáendahóp sem eltir hana hvert sem
er, en oftast þarf ekki að elta lengra inn
á dillon. dans og fjör sem líður
mönnum seint úr minni.
WULfgangtónLeikar á diLLon
Hljómsveitin Wulfgang verður með æsilega
tónleika í kvöld á skemmtistaðnum dillon.
tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og kostar
ekkert inn. Um kl. 23 mætir svo dj-parið dj rod
og Stewart, grimmir til leiks og spila til lokunar.
ekki spurning?, ekki smörning karlinn minn.
amman á Cozy
Sætir rassar dilla sér,eitthvað fyrir
alla.komdu á Cozy, gleymdu þér,
gleðin er að kalla, orti skáldið eitt
sinn. og svo skrapp það niður á
Café Cozy. Það er eitt stykki
úrvalsplötusnúður sem sér um
fjörið um helgina, dj amma.
Partí á Pravda
Það verður Háskólafjör á
Pravda í kvöld og eru þess
vegna allir beðnir um að fægja
stúdentahúfurnar sínar og
smyrja skósvertu á trýnið á sér.
Plötusnúður kvöldsins eru á
huldu en samkvæmt óstöðug-
um heimildum úr undirheim-
um reykjavíkurborgar eru það þeir áki Pain,
maggi flass og dj andri sem er líklegir.
Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er ekki síður mikilvæg en fyrsta
flokks aðbúnaður og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra staðsetningu í
hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði
og fyrirtaks veisluþjónustu.
Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á www.veislukompaniid.is
eða hringdu í síma 517 5020 og veislan er í höfn!
Fundur í miðborginni
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A