Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Blaðsíða 52
Eins og áður hefur komið fram í dóm-
um mínum er ég veikur fyrir gömlu Nin-
tendo-klassíkunum og Castelvania er
klárlega ein af þeim. Upprunalegi leik-
urinn á NES er ennþá einn af mínum
uppáhalds og því töluverðar væntingar
gerðar til Castlevania: Portrait of Ruin.
Í leiknum er maður í raun tvær sögu-
persónur. Annars vegar vampírubaninn
Jonathan og hins vegar vinkona hans
Charlotte. Þetta gefur leiknum skemmti-
lega tilbreytingu þar sem hægt er að
slást með báðum persónum í einu eða
þá annari þeirra að eigin vali. Leikurinn
gerist í lok seinni heimsstyrjaldarinnar
og reynir Drakúla að ná sínum fyrri styrk
þegar mannkynið er sem veikast fyrir.
Saga leiksins er nokkuð góð þó svo að
langdregin samtöl í honum geti verið
þreytandi.
Helstu kostirnir við leikinn eru að hann
er flottur og óvinirnir fjölbreyttir. Hægt
er að fá mjög mikið af mismunandi
vopnum fyrir bæði Jonathan og Char-
lotte. Einnig er mikið af skemmtilegum
göldrum og brellum sem þau læra eftir
því sem leikurinn er spilaður meira.
Það sem mér fannst ábótavant var að
leikurinn er í styttra lagi. Borðin eru flott
en það hefði verið hægt að gera betur
enda Castlevania-leikirnir þekktir fyrir
flott og fjölbreytt borð.
Þegar upp er staðið er þetta samt góður
leikur sem ætti skilið 3 og 1/2 stjörnu en
við hjá DV gefum aðeins í heilum. Hann
er hins vegar ekki nógu góður til þess
að vera meðal þeirra bestu í fjórum eða
þeirra allra bestu í fimm stjörnum.
Ásgeir Jónsson
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 30. mars 200754 Helgarblað DV
leikirtölvu
Command & Conquer - Tiberium Wars - PC
Xiaolin showdown - PsP
medal of Honor Vanguard - Ps2/Wii
Virtual tennis 3 - PC/Ps3/PsP/XbOX360
diner dash - NDs/PsP
Kíktu á þessa
leiKjatölvur
Command & Conquer leikirnir líða seint úr minnum manna, en þeir lögðu línurnar
fyrir hernaðarleiki nútímans. Í gær kom út Command & Conquer Tiberium Wars, sem
er þriðji leikurinn í seríunni. Mannkynið er í öngum sínum eftir að loftsteinn hefur
breytt landslaginu til frambúðar. Bræðralag Nods reynir að ná því landsvæði sem eftir
er og þurfa leikmenn að hafa sig alla við til þess að stöðva það, já nú eða öfugt.
XboX fyrir
byssur
Lögreglan í mexíkó hefur nú brugðið
á það ráð að gefa íbúum hverfisins
Tepito Xbox
leikjatölvur í
skiptum fyrir
vopn. er
þetta hluti af
nýrri herferð
lögreglunn-
ar til þess að
sporna við
vopnaeign og drápum í hverfinu.
Vopnunum verður svo eytt af
mexíkóska hernum og þurfa þeir
sem skila þeim inn ekki að gera grein
fyrir máli sínu. Herferðin hófst á
þriðjudaginn og var þá heilum 17
byssum skilað inn.
f.E.A.r.
kEmur á Ps3
skotleikurinn vinsæli f.E.a.r. mun koma
út á Playstation 3 þann 24. apríl.
Leikurinn hefur áður aðeins verið
fáanlegur á Xbox360 og PC. f.E.a.r. þykir
einn af betri skotleikjum síðari ára og
muna nokkrar nýjungar koma fram í Ps3
útgáfu leiksins. meðal annars koma ný
borð og ný vopn en svo verður einnig
hægt að spila „instant action“ fítusinn,
sem kom fyrst á Xbox360.
Civ AukAPAkki
kEmur í sumAr
Civilization leikirnir eru stórkostlegir.
Í sumar kemur úr Civilization iV:
beyond the sword, en það er sérlegur
aukapakki við sjötta leik seríunnar
sem kom út árið 2005. Í auka-
pakkanum má finna 12 ný borð, eða
scenario og tíu nýjar hersingar til að
velja úr, þar á meðal Portúgal,
babylon og Niðurlöndin. svo verða
einnig kynnt til leiks, fimm ný undur
heimsins, sem leikmenn verða að
finna upp með réttum leiðum.
Það muna eflaust margir eftir Comm-
and & Conquer leikjunum en þeir voru
afar vinsælir fyrir nokkrum árum síð-
an. Í gær kom út þriðji leikurinn í serí-
unni, Tiberium Wars, en leikjagagn-
rýnendur úti í hinum stóra heimi, eru
afar hrifnir af leiknum og líta sýnis-
hornin afar vel út. Árið er 2047 og loft-
steinn hefur skollið á jörðina. Heim-
urinn er laskaður og líkist einna helst
fjarlægri plánetu. 30% af landsvæði
jarðar hefur glatast og nú þarf mann-
kynið að sætta sig við að búa í meng-
uðum heimshlutum. Óvinir mann-
kynsins eru Nod-bræðralagið undir
forystu hins kaldrifjaða Kane, en her-
ir hins siðmenntaða heims þurfa að
hafa sig alla við til þess að verja þau
landsvæði sem eftir eru. Leikurinn
er uppfullur af góðgæti. Grafíkin er
fyrsta flokks, atriði á milli borða með
eindæmum og stýringarnar til fyrir-
myndar. Búið er að einfalda og bæta
allar skipanir og hefur nú aldrei ver-
ið jafnauðvelt að stjórna heilum her.
Yfir 30 verkefni eru í leiknum en um
leið og þau klárast er hægt að spila
á netinu. Gervigreindin hefur aldrei
verið jafnöflug og þurfa leikmenn að
hafa sig alla við að verða ekki und-
ir. Einnig hafa bæst við óteljandi teg-
undir af nýjum hermönnum, vígvél-
um og hernaðarlegum mannvirkjum.
Þá á sagan einnig að vera mjög sterk
og nógu sannfærandi til þess að láta
leikmenn trúa því að örlög heims-
ins ráðist af þeirra dugnaði. Leikur-
inn spilast á PC-tölvur og fæst í öllum
betri tölvuleikjaverslunum.
dori@dv.is
C&C 3er lentur Command & Conquer: Tiberium WarsÞriðji leikurinn í þessari geysivinsælu seríu.
Harðir bardagar
Óvinir mannkynsins
herja á það af miklum
krafti.
Ótrúleg grafík
tiberium Wars hefur
fengið rosalega dóma.
Castlevania:
Portrait of Ruin
Ævintýraleikur
Nintendo DS
tölvuleiKur
H H H H H
Castlevania: Portrait of ruin
fínn leikur en ekki á meðal
þeirra bestu.
Vampírur og draugagangur