Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Side 55
Hljómsveitin Radiohead hefur tekið fyrir þær sögusagnir um að hljómsveitn
hafi gert plötusamning við Starbucks
Hljómsveitin Radiohead hefur neit-
að þeim sögusögnum að band-
ið hafi skrifað undir samning hjá
plötufyrirtæki kaffihúsakeðjunar
Starbucks. Sögusagnirnar kviknuðu
eftir að sást til talsmanns sveitar-
innar á fundi með forsvarsmönn-
um Starbucks. Í kjölfarið var gefin
út yfirlýsingin, „Radiohead er um
þessar mundir í stúdíói að taka upp
sína næstu plötu. Sveitin er ekki í
viðræðum um nýjan plötusamning
við neitt fyrirtæki og mun ekki einu
sinni íhuga hvernig tónlistin verð-
ur gefin út fyrr en nýju plötunni er
lokið. Þær sögusagnir um að sveitin
hafi samið við Starbucks er algjör-
lega ósönn.“
Ekki er langt síðan að bítillinn Paul
McCartney skrifaði undir samning við
Starbucks um að gefa út sína næstu
plötu undir merkjum þess. Í kjölfarið
hafa fjöldi stórra nafna í tónlistargeir-
anum verið orðuð við fyrirtækið
Spila ekki fyrir kaffi
Radiohead
Vinna um
þessar mundir
að nýrri plötu.
Kærður aftur
Hin breska Nona Paris Lola Jackson,
sem heldur því fram að hún sé móðir
þriggja barna popparans Micheal
Jackson, hefur lagt fram þriðju
kæruna á hendur söngvaranum.
Nona fer fram á að fá heimsóknarétt
og meðlag. Þá fer Nona einnig fram á
að Neverland búgarðurinn verði
hennar eign. Tveimur fyrri kærum
Nonu hefur verið vísað frá en sú
breska segist geta sannað að börnin
séu hennar með DNA-prófi. Nona
segir að þrátt fyrir að Debrorah Rowe
sé skárð móðir barnanna á fæðingar-
vottorðum sé það ekki rétt.
Talsmaður Jacksons hafði aðeins eitt
um málið að segja, „fáránlegt.“
Viðurkennir að
hafa pissað á sig
Söngkonan Fergie úr hljómsveitinni
Black Eyed Peas viðurkenndi nýlega að
hafa pissað á sig á tónleikum árið 2005,
en myndir af henni með pissublett
framan á sér fóru út um allt internetið.
Fergie viðurkenndi ósköpin í
spjallþætti Dame Ednu í Bretlandi og
sagði það atvikið hefði átt sér stað
vegna skorts á klósettum. „Við urðum
að drífa okkur á svið og gátum ekki
komist á klósettið áður. Þetta var mjög
vandræðalegt,“ segir Fergie. Áður hafði
hún ekki viðurkennt að hafa pissað á
sig og sagði myndirnar falsaðar.
Starbucks vildu
mig fyrst
Mick Jagger, söngvari hljómsveitarinn-
ar The Rolling Stones segir að
nýstofnað plötufyrirtæki Starbucks hafi
reynt að gera við sig samning heilur ári
áður, en þeir tryggðu sér samning við
Paul McCartney. „Ég talaði við þessa
menn þegar ég fór til Seattle í fyrra, en
ég hafði ekki mikinn áhuga á því,“ segir
Mick. Hann óskar þá kollega sínum
McCartney hjartanlega til hamingju og
óskar honum alls hins besta. „Hann er
búinn að vera í 100 ár hjá Emi
fyrirtækinu, gangi honum vel á nýjum
slóðum,“ segir eilífðarrokkarinn.
FÖSTUDAGUR 30. MARS 2007DV Helgarblað 57