Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2007, Side 60
Föstudagur 30. Febrúar62 Síðast en ekki síst DV
veðrið ritstjorn@dv.is
föstudagurfimmtudagur
Sandkorn
auðir skemmtistaðir
Nú hafa húsnæðin sem hýstu
áður Pasta Basta og Nelly´s staðið
auð í miðbæ Reykjavíkur um þó
nokkurt skeið og virðist ekkert
vera gerast. Vorið 2006 tók DV
viðtal við eigendur staðanna
beggja og voru þá framkvæmdir í
fullum gangi og var stefnt að því
að opna um sumarið og haust-
ið. Á gamla Pasta Basta átti að
opna einskonar smárétta-, vín-
og kaffihús með skemmtistaða
ívafi. Þar sem Nelly´s var á horni
Bankastrætis og Þingholtsstrætis
átti að opna Buddah bar en núna
er húsnæðið auglýst til sölu. Það
verður spennandi að sjá hvaða
rekstur verður næst í þessum
húsum.
Kveðjupartí rÚV
Síðasti virki vinnudagurinn hjá
stofnuninni Ríkisútvarpinu er í
dag. Starfsmönnum RÚV er boðið
í einskonar kveðjupartí á Mark-
úsartorgi. Þar mun starfsfólk hitt-
ast, ræða málin og þiggja léttar
veitingar. Á sunnudaginn kemur
mun svo hið nýja Ríkísútvarp
taka við eða Ríkisútvarpið ofh.
Breytingunum fylgja uppsagnir
og eru því sumir starfsmenn RÚV
ekki bara að kveðja gamla form
stofnunarinnar heldur einnig
starfið
reyna að kaupa ókeypis
Fyrirspurnum hefur rignt yfir for-
svarsmenn hátíðarinnar Aldrei
fór ég suður, um hvar sé hægt að
kaupa miða á hátíðina. Kvartað
hefur verið yfir því að hvergi sé
hægt að nálgast miða eða upp-
lýsingar um miðaverð. Stað-
reynd málsins er sú að ókeypis
er á þessa ísfirsku tónlistarhátíð
líkt og undanfarin ár og því ekki
mikils árangurs að vænta í miða-
kaupum. Ekkert aldurstakmark
er á hátíðinni heldur en lands-
lög varðandi útvistartíma eru
sjálfðsögðu gildandi á Ísafirði líkt
og annars staðar á landinu.
Kabbalah.is
Búið er að opna síðuna www.
kabbalah.is. Þegar síðan er opn-
uð hefst svokallað intro þar sem
taktföst tónlist og litrík listform
bregða fyrir. Inn á milli bregður
fyrir spurningunum, „Hver ert
þú? Hvaðan ert þú? Hefur spurt?
Veistu svarið?“ Þegar inn á vef-
inn er komið er yfirskrift hans,
„Spurðu, leitaðu, fáðu svör.“
Markmið vefsins er að fræða al-
menning um trúna og gera hana
aðgengilegri. Hægt að finna upp-
lýsingar um fundi og viðburði
tengda Kabbalah á Íslandi.
7
7
7
12 4
7
7
7
77
8
9
9
6
9
9
13
9
1210
4
4
4
7
1
4
7
7
47
8
7
8
6
9
9
12
6
98
Tengsl
sverri stormsker að skera sig úr
fjöldanum.
sverrir stormsker á það sameigin-
legt með Hemma gunn að hafa búið
á tælandi.
Hemmi gunn
á það
sameiginlegt
með Valdísi
gunnarsdótt-
ur, að vera með
útvarpsþátt á
Bylgjunni.
Valdís á það
sameiginlegt
með
Kristínu Helgu gunnarsdóttur,
rithöfundi að búa í garðabæ.
Kristín Helga á það sameiginlegt
með
Bubba morthens tónlistarmanni að
hafa skrifað barnabók.
Bubbi morthens á það sameiginlegt
með Jóni Baldvin Hannibalssyni,
pólitíkus að búa með fegurðar-
drottningu.
Jón Baldvin á
það sameigin-
legt með
sigrúnu
Hjálmtýsdótt-
ur, diddú,að
búa í mosfells-
bæ.
diddú á það
sameiginlegt með
tinnu Hrafnsdóttur leikkonu að
hafa leikið á sviði og í kvikmyndum.
tinna
Hrafns-
dóttir á
það
sameigin-
legt með
megasi að
búa við
Þórsgötu.
...megas á það
sameiginlegt með
Veturinn fyrir bí?
„Þau eru ansi hreint afgerandi
veðrabrigðin sem við eigum í vænd-
um nú um helgina. Svo er að sjá sem
mildur sunnanvindurinn ætli svo
að segja að steypa sér yfir okkur frá
og með föstudegi. Það virðist vera
ansi hreint hlýtt þetta loft sem há-
þrýsingur fyrir suðaustan landið ber
til okkar alla leit sunnan úr höfum,“
segir Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur.
„Tólf til þrettán gráðu hiti er ekki
ólíklegur á laugardag norðan og
austanlands. Svo er sjá sem rigning-
in verði allveruleg einnig á laugardag
um landið suðvestan – og vestanvert
og þessu fylgir S-átt sem gæti orð-
ið hvöss um tíma sums staðar
á landinu. Reynslan sýn-
ir að svæðin frá norðan-
verðu Snæfellsnesi vestur
og norður um í Eyjafjörð
geti orðið fyrir barðinu á
slíkri vindátt þegar loftið
er þetta hlýtt í kjarnann.“
„Á sunnudaginn, pálma-
sunnudag er síðan að sjá
nokkuð hvassa vest-
anátt, lítilsháttar úr-
koma vestantil, en
eystra léttir til. Eitthvað kólnar, en
þó frystir nú ekki. Á mánudag og
þriðjudag í dymbilvikunni hlýnar
síðan aftur þannig að Norðlend-
ingar og íbúar Austurlands
geta hæglega aftur séð hitann
stíga upp fyrir 10 gráður.“
„Vorlegir dagar framundan,
líkast til er veturinn fyrir bí,“
segir Einar. „Norðanhretin
munu þó áreiðanlea sýna
sig mislöng og kröft-
ug langt fram í maí
og þessvegna fram
í júní.“
Um helgina mæta konur frá Fjöl-
skylduhjálp Íslands í Kolaportið og
verða þar með tvo sölubása. Þær
ætla að þann leik fyrstu helgina í maí.
Bryndís Schram, verndari Fjölskyldu-
hjálparinnar, segist geta lofað því að
þar geti allir fundið eitthvað við sitt
hæfi, stórir og smáir, feitir og mjóir.
,,Hugmyndin er að vera með
nokkurs konar flóamarkað. Þeir sem
hafa búið í útlöndum, eins og ég og
fleiri, hafa vanist því að geta farið á
flóamarkaði, gramsað þar og fund-
ið sniðug föt og fleira fyrir lítinn pen-
ing. Í húsakynnum Fjölskylduhjálpar-
innar er til dobía af fatnaði, skóm og
leikföngum sem verslanir og heild-
sölufyrirtæki hafa gefið og hanga
í þúsundatali í húsakynnum Fjöl-
skylduhjálparinnar í Eskihlíð. Ástæða
þess að fatnaðurinn hefur safnast fyr-
ir gæti verið sú að fólk veigri sér fyr-
ir að koma til okkar og einnig sú að
margir vita ekki hvar Fjölskylduhjálp-
in er til húsa, en hún er svolítið falin í
skjóli breiðra bílaakeina, neðst í Eski-
hlíðinni.”
Bryndís hvetur alla til að koma í
Kolaportið og gera góð kaup.
flíkur á 500 kall
,,Við ætlum að selja hverja flík, skó
eða leikfang á fimm hundruð kall.
Ef slegist verður um flíkurnar gæti
verðið hækkað upp í þúsund kall!
Aðstandendur Kolaportsins ætla að
vera svo elskulegir að láta okkur eftir
básana tvo án endurgjalds og styrkja
þannig málstaðinn og kunnum við
þeim okkar bestu þakkir fyrir. Pen-
ingarnir sem safnast munu renna
óskiptir í lyfjasjóð Fjölskylduhjálpar-
innar en hann var stofnaður til hjálp-
ar fólki sem hefur ekki efni á því að
kaupa lyfin sín sem það þarf nauð-
synlega á að halda.”
Bryndís segir að sér hafi fundist
mikill heiður þegar Ásgerður Jóna
Flosadóttir, formaður Fjölskyldu-
hjálparinnar, ásamt konunum sem
starfa með henni, hafi komið á sinn
fund og falast eftir því að hún gerðist
verndari Fjölskylduhjálparinnar.
guð gerir ekki mannamun
,,Ég varð fúslega við þeirri bón
og hef verið verndari í eitt ár og
mun verða það áfram næsta ár. Ég
mæti í Eskihlíðina hvenær sem ég
hef tækifæri til og heimsóknirnar
þangað hafa verið mikil lífsreynsla.
Fólk getur komið í Eskihlíðina einu
sinni í viku, á miðvikudögum, og
fengið góðan mat sem allur er gef-
inn af alls kyns fyrirtækjum. Þarna
hitti ég fólk sem ég man eftir úr at-
vinnulífinu, fólk sem hefur veikst
og misst vinnuna, einstæðar mæð-
ur sem eiga ekki fyrir mat handa
börnunum sínum og öryrkjar sem
geta engan veginn fætt sig og klætt
á örorkubótunum.
Guð gerir ekki mannamun og
við getum öll lent í aðstæðum sem
við ráðum ekki við. Hjá Fjölskyldu-
hjálpinni vinna konur í sjálfboða-
starfi, eldri konur sem hafa nægan
tíma og vinna þetta starf af mikilli
gleði. Ég dáist að þeirri miklu orku
og gleði sem þessar konur gefa frá
sér.”
Það væri ekki amalegt að geta keypt sér falleg föt fyrir páskana á
góðu verði. Bryndís schram segir Fjölskylduhjálp Íslands ætla
að gera þann draum að veruleika í Kolaportinu um helgina. And-
virði nýju fatanna rennur óskipt í lyfjasjóð Fjölskylduhjálpar Ís-
lands og aðstandendur Kolaportsins bjóða Fjölskylduhjálpinni
ókeypis aðstöðu.
Flott Föt á Fimm
hundruð kall!
falleg föt og leikföng anna
auðuns, Inga birna Jónsdóttir,
bryndís schram og Ingibjörg velja
fatnað til sölu í Kolaportinu.
d
V-m
YN
d
stEfÁ
N
K
a
rLssO
N