Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 10
Þ að var nú bara kominn tími á þetta. Þetta eru hús sem voru byggð snemma á sjöunda áratugnum og
þörfnuðust endurbóta,“ segir Sigurður Kr.
Friðriksson, framkvæmdastjóri Félagsbú-
staða, í samtali við Fréttatímann um fram-
kvæmdir á vegum fyrirtækisins á tveimur
blokkum þess á Meistaravöllum í Vesturbæ
Reykjavíkur.
Efri blokkin stendur tóm en Sigurður
segir að til standi að flutt verði inn í fyrsta
stigagang hennar fyrir jól. „Við byrjuðum
framkvæmdirnar í apríl og ætlum okkur að
klára báðar blokkirnar fyrir árslok 2011.
Þetta er auðvitað heljarinnar dæmi því
það er verið að taka blokkirnar í nefið. Það
verður allt endurnýjað og við höfum meira
að segja komið fyrir lyftu í fyrsta stigagang-
inum – nettri lyftu sem breytir miklu fyrir
þá íbúa sem eru orðnir fótafúnir,“ segir
Sigurður. Upphaflega var ætlunin að byggja
eina hæð ofan á blokkirnar en fyrir því
fékkst ekki leyfi.
Og hvert fóru íbúarnir? „Við vorum svo
heppnir að eiga lausa tvo stigaganga í Yrsu-
felli 1 og 3 þannig að fólkið á Meistaravöll-
um gat flutt þangað á meðan framkvæmdir
standa yfir. Flestir tóku afskaplega vel
í þetta enda fá þeir afslátt af leigunni á
meðan. Einhverjir vildu fara annað og þá
hjálpuðum við þeim með það. Flutningurinn
gekk. Við erum með flutningateymi sem
hjálpar fólki að flytja frítt,“ segir Sigurður.
Til að allt gangi upp þarf skipulag og Sig-
urður segir að það sé klárt. „Um leið og við
getum flutt íbúa í fyrri blokkina, á Meistara-
völlum 19-23, hefjumst við handa við seinni
blokkina,“ segir Sigurður.
Spurður um fjármögnun á þessum síð-
ustu og verstu tímum segir Sigurður hana
hafa gengið ótrúlega vel. „Við fáum lán frá
Íbúðalánasjóði á fínum kjörum. Síðan má
ekki gleyma því að þetta skapar vinnu fyrir
40 til 50 iðnaðarmenn og er í takt við vilja
borgarinnar um atvinnuskapandi uppbygg-
ingu,“ segir Sigurður.
Óskar Hrafn Þorvaldsson
oskar@frettatiminn.is
Stórglæsileg þriggja binda
útgáfa Sturlungu
er nú fáanleg að nýju
„Sturlunga eykur skilning á mannlegu eðli
og er fátt betra í skammdeginu en að lesa
stórkostlegar sögur um átök vina og frænda
þar sem valdagírugir höfðingjar hygla
gæðingum sínum en svífast einskis við
að koma höggi á andstæðinginn.“
K at r í n Ja Kobsd ó t t ir me n n ta m á l a r á ðhe r r a
„Kænska og stjórnmál fléttast í harðpólitískri
atburðarás þar sem voldugustu ættum
Sturlungaaldar er þeytt saman í blóðug átök
um það hverjir eiga Ísland. Meistaraleg
frásögn, lifandi og litríkar persónur,
sígildur samtímaspegill.“
Ös su r sK a r phé ði ns son u ta n r íK isr á ðhe r r a
„Í öllu því mannhafi sem Sturlunga greinir
frá og hinni rammflóknu atburðarás má finna
einhver stórbrotnustu örlög og ægilegustu
fegurð samanlagðra bókmenntanna.“
e i na r K á r a son r i t hÖf u n du r
Falleg og
eiguleg
gjöF
Gjöfin hennar
Hæðasmára 4
rétt fyrir ofan Smáralind
s. 553 7355 / www.selena.is
Opið alla daga til jóla!
Undirföt
Náttföt
Sloppar
Félagsbústaðir Endurnýjun á tvEimur blokkum í vEsturbæ
Íbúar úr Vesturbæ
selfluttir í Breiðholt
Leigjendur tuttugu íbúða Félagsbústaða á Meistaravöllum í Vesturbænum þurftu að flytjast upp í
Yrsufell í Breiðholti á meðan blokkin var tekin í gegn. Allir ánægðir, segir framkvæmdastjórinn.
Við vorum
svo heppnir
að eiga
lausa tvo
stigaganga
í Yrsufelli 1
og 3 þannig
að fólkið á
Meistara-
völlum gat
flutt þangað
á meðan
fram-
kvæmdir
standa yfir.
Eins og sjá má er verið að taka alla blokkina á Meistaravöllum í gegn. Ljósmynd/Hari
Lyftan góða tekur sig vel út í anddyrinu á
Meistaravöllum 19. Ljósmynd/Hari
10 fréttir Helgin 17.-19. desember 2010