Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 16
F ramboð fýsilegra fjárfestingarkosta hefur ekki verið upp á marga fiska frá efnahags-hruninu hér á landi haustið 2008 enda
hagkerfið lokað og innlendur fjármálamarkaður
bágborinn, svo ekki sé meira sagt. Hlutabréfa-
markaðurinn er enn rústir einar miðað við það
sem áður var og Íslendingar eru enn, tveimur
árum eftir hrun, í skjóli gjaldeyrishafta og mikil
óvissa ríkir um hvenær þeim verður aflétt. Inn-
lánsvextir eru afar lágir og markaður með íslensk
ríkisskuldabréf nánast eini virki hluti innlenda
fjármálamarkaðarins.
Hvert fara peningar við þessar aðstæður,
hvernig eru þeir ávaxtaðir eða þeim eytt? Ein-
hvern veginn verða þeir sem eiga peninga að láta
þá vinna þegar raunvextir eru neikvæðir, eins
og nú er. Þrátt fyrir allt – og sem betur fer – eru
margir hér á landi sem eiga peninga þótt margir
hafi komið laskaðir út úr hruninu. Greining Ís-
FjárFestingarkostir Hvað gera þeir sem vilja FjárFesta á bágbornum Fjármálamarkaði þegar raunvextir eru neikvæðir?
Fasteignakaup eru í
raun lang öruggasti
fjárfestingarkosturinn
sem er í boði.
Fjársterkir staðgreiða fasteignir og dýra jeppa
Innlánsvextir eru afar lágir og markaður með ríkisskuldabréf nánast eini virki hluti fjármálamarkaðarins. Fjársterkir aðilar virðast beina sjónum í auknum mæli að fasteigna-
markaðnum og staðgreiða minni eignir. Dýrir jeppar seljast frekar en smábílar og klassísk húsgögn sem halda verðgildi sínu seljast jafnt og þétt.
landsbanka hefur lagt mat sitt á íbúðamarkaðinn
og greinir þar breytingu í þá veru að fjársterkir
aðilar leiti í auknum mæli inn á þann markað.
Fasteignamarkaður hrundi nánast hér á landi í
kjölfar falls bankanna, fasteignir lækkuðu mjög í
verði eða urðu jafnvel óseljanlegar með öllu, ekki
síst stórar eignir.
Metvelta frá hruni
Velta á íbúðamarkaði hefur aukist umtalsvert að
undanförnu og segja má að haustið hafi verið líf-
legt, eins og Greiningin bendir á, en gerður var
281 kaupsamningur um íbúðarhúsnæði á höfuð-
borgarsvæðinu í nóvember samanborið við 207
samninga í sama mánuði í fyrra og hefur velt-
an því aukist um 36% milli ára. Heildarveltan í
nóvember nam 7,4 milljörðum króna og var með-
alupphæð hvers samnings í nóvember 26,4 millj-
ónir króna. Endurspeglar það að veltan var lang-
mest með íbúðir í fjölbýli.
Sérfræðingar Greiningarinnar telja að lífleg
fasteignasala á haustmánuðum bendi til þess
að botninum sé náð á íbúðamarkaði og ekki sé
langt í að viðsnúningur verði. Þeir geta metveltu
í september þegar kaupsamningar voru 347 tals-
ins. Þá voru samningar í október alls 296 sem
var aukning um 40% frá sama mánuði fyrra árs.
Samanlögð velta síðustu þriggja mánaða nam 924
samningum sem er aukning um 43% frá sama
tímabili fyrra árs. Samhliða þessari auknu veltu
hefur verð á íbúðum verið að hækka en sam-
kvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur íbúða-
verð á landinu öllu hækkað um 1,1% undanfarna
þrjá mánuði.
Fjársterkir í leit að arðvænlegum fjár-
festingarkostum
„Mörgum kann að þykja það skjóta skökku við
að botninum sé náð á íbúðamarkaði. Hagkerf-
ið hefur enn ekki náð kröftugri spyrnu, kaup-
máttur heimilanna er enn laskaður, atvinnuleysi
mikið og skuldastaða heimilanna slæm. Ytra um-
hverfi íbúðamarkaðarins er því enn mjög hrjóstr-
ugt þrátt fyrir að kaupmáttur launa hafi verið
vaxandi og vextir lækkað sem hjálpar til að örva
eftirspurn á markaðinum nú. Það sem gæti hins
vegar skipt sköpum í þessum viðsnúningi nú er
að fjársterkir aðilar séu að kaupa íbúðir í leit að
arðvænlegum fjárfestingarkostum og til að dreifa
áhættu í eignasafni sínu,“ segja sérfræðingar Ís-
landsbanka og leggja áherslu á að við aðstæður
sem þessar sé eðlilegt að fé leiti inn á íbúðamark-
aðinn.
Veruleg fækkun makaskiptasamninga
Það sem rennir frekari stoðum undir þá kenn-
ingu að það séu fjársterkir aðilar sem fara inn á
íbúðamarkaðinn núna í leit að arðsemi og eigna-
dreifingu er að makaskiptasamningum hefur
fækkað verulega upp á síðkastið, segir Grein-
ingin enn fremur. „Í nóvember síðastliðnum var
hlutfall makaskiptasamninga aðeins 9% en var
30% fyrir ári síðan. Með makaskiptasamningum
er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs
Makaskiptasamningum við fasteignakaup hefur fækkað að undanförnu. Það rennir m.a. stoðum undir þá kenningu að fjársterkir aðilar leiti inn á markaðinn núna í leit að arðsemi. Fasteignasali segir fasteignakaup
öruggasta fjárfestingarkostinn í boði. Ljósmyndir/Hari
Hlutabréfamarkaðurinn er enn
rústir einar, tveimur árum eftir hrun.
Markaður með íslensk ríkisskuldabréf
er nánast eini virki hluti innlenda fjár-
málamarkaðarins.
Innlánsvextir eru afar lágir. Fjárfestar leita því
annarra kosta en ávöxtunar á bankareikningum.
framhald á næstu opnu
16 úttekt Helgin 17.-19. desember 2010