Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 98
98 dægurmál Helgin 17.-19. desember 2010
Plötuhorn Dr. Gunna
Pólýfónía
Apparat Organ Quartet
Átta ár eru liðin síðan
fyrsta plata Apparats kom
út. Það gæti þó hafa
gerst í gær því flest er
við það sama í hljóðheimi
orgelkvartettsins. Þessi
staðreynd kemur kannski
illa við þá sem bjuggust við
byltingarkenndri framþró-
un, en ég er sáttur við að fá
þétta og góða plötu, alltaf
skemmtilega og djöfullega
svala á köflum. Bandið
slengir nýmóðins bótum
á evrópskar stuðblöðrur,
hamrar þétt þýskararokk,
dillibossast á Kraftwerk-
stæðinu, vitnar í tónlist
ítalskra hryllingsmynda
og svo framvegis. Allt er
Apparats-stimplað í bak og
fyrir og Herra minn trúr:
Það er sko gæðastimpill!
the thief’s Manual
Cliff Clavin
Þessir rokkstrákar úr
Garðabæ nefna bandið
eftir póstmanninum í
Staupasteini. Þetta er
fyrsta platan þeirra, níu
laga rokkhlunkur. Bandið
er X-megin í tilverunni
og spilar í sömu deild og
Dikta og Noise, syngur á
ensku og byggir lögin sín
í kringum hrjúf gítar-riff –
of mikið altrokk til að vera
metall, of mikill metall til
að vera altrokk. Það er allt
pottþétt í framkvæmd-
inni, sándið flott og
bandið velspilandi. Lögin
eru bara misgóð, stundum
hittir bandið naglann
lóðbeint á höfuðið í svölu
rokki (t.d. „As it seems“),
en stundum er rokkað af
full miklu andleysi. Fínasta
byrjun samt.
Skot
Benni Hemm Hemm
Á fjórðu plötu sinni
fær Benni spilaglöðu
krakkana í Retro Stefson
til að spila undir hjá sér
í öllum tíu lögunum.
Lögin eru léttleikandi
og flest skemmtileg.
Tónlist Benna á þessari
plötu minnir stundum
á skoska eðalbandið
Belle & Sebastian, þetta
er þægilegt indiepopp
með sterkum vísunum í
sixtís-popp. Textar Benna
rista þó ekki jafn djúpt
og hjá Skotunum, heldur
eru þeir hálfgert orðakítti
til að fylla upp í glufur
í lögunum. Varðelda-
söngvalegt kæruleysi
einkennir þessa plötu,
hún er afslöppuð og kát,
og mörg skot fara beint í
mark hjá Benna.
MatGæðinGurinn nanna röGnvalDarDóttir
Á alltaf brauðdeig í krukku
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
23
6
11
/1
0
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND WWW.UTILIF.IS
990kr.Verð frá
Húfur og vettlingar
í jólapakkann
P abbi var auðvitað lögfræðingur fyrst og fremst auk þess sem hann lét til sín taka í bæjarmálapólitíkinni í Hafnar-firði, en skáldskapurinn var þó aldrei langt undan,“ segir
Finnur Árnason, forstjóri Haga, sem hefur, ásamt systrum sínum
Lovísu og Ingibjörgu, gefið út á bók heildarsafn ljóða föður síns,
Árna Grétars Finnssonar.
Fyrsta ljóðabók Árna, Leikur að orðum, kom út
1982 og var gefin út af Jóni Kristni Gunnarssyni, for-
stöðumanni Sædýrasafnsins í Hafnarfirði. Alls urðu
bækurnar fjórar áður en Árni lést í fyrra og hafa
þær verið ófáanlegar í töluverðan tíma. Til að heiðra
minningu föður síns réðust systkinin því í að gefa út
heildarsafn á verkum hans.
Safnið dregur nafn sitt af þekktasta ljóði Árna,
Lífsþor, sem er úr fyrstu bók hans. Ljóðið hefur ein-
mitt hljómað víða undanfarin misseri; verið lesið upp
á Alþingi, í kirkjum og öðrum samkomum um landið,
enda á boðskapur þess vel við á okkar tímum. Fyrsta
erindið af fjórum hljómar svona:
Það þarf meiri kjark til að segja satt en ljúga,
sjálfstraust til að efast, er aðrir trúa,
djörfung til að mæla gegn múgsins boðun,
manndóm til að hafa eigin skoðun.
Finnur segir að faðir hans hafi gjarna að loknum löngum vinnu-
degi setið fram eftir við skriftir. „Hann skrifaði líka mikið á ferða-
lögum, hvort sem innblásturinn kom yfir hann í veiðiferðum um
landið með fjölskyldunni eða á ferðum hans um heiminn.“
Ljóðin lagði hann svo fyrir fjölskylduna til yfirlestrar.
Myndskreytingar léku stórt hlutverk í bókum Árna og í þessu
nýja heildarsafni eru upprunalegu myndskreytingarnar úr öllum
bókunum fjórum.
lífSþor Safn ljóða Árna GrétarS finnSSonar
í síðasta Fréttatíma urðu þau mistök að nafn höfundar
greina í glæsilegum
sérkafla um jólabakst-
urinn féll niður. Eins og
sjá mátti á efnistökum
var þar enginn nýgræð-
ingur á ferðinni enda
konan á bak við orðin,
Nanna Rögnvaldar-
dóttir, einn þekktasti
matgæðingur landsins
um árabil. Er það hér
með fært til bókar.
Nanna er höfundur
fjölmargra rita um mat
og matargerðarlist. Þar
á meðal er hin veglega
Matarást, sem var til-
nefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna
og hlaut viðurkenningu
Hagþenkis og viður-
kenningu bókasafns-
fræðinga sem besta
uppflettiritið.
Nýjasta bókin hennar
heitir Smáréttir Nönnu
og inniheldur uppskrift-
ir að einföldum smárétt-
um sem krefjast ekki
mikillar fyrirhafnar.
Nanna segist
alltaf hafa haft áhuga á
matargerð en hafi þótt
skelfilega vondur kokk-
ur fram undir þrítugt.
Spurð um hver sé
hennar eftirlætismatur
segist hún ekki geta
gert upp á milli rétta.
„Ég á eiginlega eng-
an uppáhaldsmat – eða
líklega á ég frekar alltof
marga uppáhaldsrétti –
en það sem mig langar
mest í einmitt núna er
steikt andarbringa með
granateplasíróps-hun-
angssósu.“
Í ísskápnum segist
Nanna alltaf eiga smjör,
parmesanost, egg og
sex mismunandi teg-
undir af hnetum. „Og
venjulega brauðdeig í
krukku.“
... líklega á
ég frekar
alltof marga
uppáhalds-
rétti
Það þarf meiri kjark til
að segja satt en ljúga