Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 76
76 andi jólanna Helgin 17.-19. desember 2010
Notalegt í miðbænum
Engiferöl er frábær lífrænn gosdrykkur
fyrir alla fjölskylduna. Hann er sættur
með eplasafa og því laus við allan
viðbættan sykur. Milt engiferbragð
gerir drykkinn einstaklega bragðgóðan
og því kjörinn yfir hátíðarnar.
Þú verður að prófa!
Hollur, sykurlaus og lífrænn
gosdrykkur um jólin
Fæst í verslunum um allt land
Heldur í hefðina
Leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir hefur búið sér og fjölskyldu sinni einstaklega fallegt heimili í
miðbæ Reykjavíkur. Þar býr hún ásamt eiginmanni sínum, Stefáni Má Magnússyni tónlistarmanni,
og syni þeirra á efstu hæð í gömlu og fallegu háreistu húsi þar sem Edda hefur nostrað við hvern
krók og kima. Ljósmyndir/Hari
H
vert sem litið er á heimili leikkonunnar
Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur er að finna
fallega muni, bæði nýja og gamla, og að
sjálfsögðu er jólaskrautið komið upp.
Hlý og notaleg birta berst frá kertum í
glugga, hvít hreindýr hafa lagst til hvílu í jólasnjónum
við logandi kerti aðventukransins og ugla kúrir á
trjágrein undir stiganum.
„Mig dreymdi svo sérstakan draum um stóra uglu
sem kom til mín og settist á öxlina á mér og ætli ég
fari ekki að safna uglum núna, en ég síðustu árin hef
ég safnað hreindýrum,“ segir Edda og má sjá nokkur
þeirra prýða hillur, hvít, silfurlituð og gyllt.
„Ég blanda saman nýju og gömlu skrauti en er
reyndar sérstaklega hrifin af skrauti í fiftís-stíl. Sumt
jólaskraut hefur mikið tilfinningalegt gildi, sérstak-
lega hlutir sem ég eignaðist sem barn eins og hvíti
engillinn sem amma Lóló gaf mér og svo hlutir sem
ég hef fengið frá ömmu Unni úr Kópavoginum en
kransinn á hurðinni var alltaf fyrstur upp hjá henni og
nú fæ ég að hafa hann. þannig held ég í ákveðna hefð
sem mér finnst skipta miklu máli en svo bæti ég alltaf
einhverju skemmtilegu við safnið og þar eru uglur,
fugla- og jólakúlur sem eru kannski eins og múffur
eða ís í brauði í miklu uppáhaldi.“
Fyrir þessi jól segist Edda helst heillast af hvítu og
silfurlituðu skrauti og glimmeri. „Já, nóg af glimm-
eri,það er málið,“ segir hún og skellir upp úr. „Reynd-
ar finnst mér jólailmurinn skipta miklu máli og hann
kalla ég fram með hangikjötinu og greni. Svo set ég
alltaf nokkur amaryllis-blóm í vasa því þau eru svo fal-
leg og gefa góða lykt,“ segir Edda. „Já, þegar jólatréið
er komið þá fyllist allt af ilminum af greni og þá eru
jólin komin, svo skreyti ég það með litlum íslenskum
fánum,“ segir hún og brosir.
Jólunum vill Edda helst eyða í faðmi fjölskyldunnar
ásamt köttunum tveimur, þeim Kjána og Sölku sem
hét áður Ísold. „Salka er norskur skógarköttur sem
er nýkominn til okkar. Við erum enn að finna nafn
á hana og Salka eða Litla dýrið virðist ætla að verða
ofan á.“
Edda er bjartsýn á komandi ár, enda margt spenn-
andi að gerast hjá henni.
„Það sem er fram undan er frumsýning á Fjalla-Ey-
vindi í Norðurpólnum, og svo hefjast hjá mér æfingar
á verkinu Farsæll farsi sem frumsýndur verður hjá LA
í mars og síðast en ekki síst mun ég taka að mér að
vera liðsstjóri í nýjum spurningaþætti á Skjá einum
sem heitir Ha! og verður fyrsti þátturinn sýndur í
janúar svo það er margt sniðugt og skemmtilegt fram
undan og árið 2011 lofar góðu.“
Edda horfir til næsta árs með mikilli bjartsýni, enda margt spennandi að gerast. Hún stígur á svið í spennandi leikverkum og
verður liðsstjóri í spurningaþætti á Skjá einum eftir áramótin.
Hreindýrin tvö í
aðventukransinum eru
úr Tekkhúsinu.
Hvíta jólaengilinn fékk Edda að gjöf frá
ömmu sinni þegar hún var lítil og hann
hefur því mikið tilfinningalegt gildi.
Meðal þess sem Edda hefur safnað eru litla af-
steypur af íslenskum kirkjum.
Edda ásamt jólakettinum, norska skógarkett-
inum sem er nýjasti fjölskyldumeðlimurinn.
Kristín eva
Þórhallsdóttir
heimili@frettatiminn.is