Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 44
H jónin Mary Ellen Mark og Martin Bell hafa verið árlegir gestir hér á landi um langt
árabil. Þau eru bæði í fremstu röð á
sínu sviði, hún einn merkasti ljós-
myndari samtímans, var til að mynda
kjörin mikilvægasti kvenljósmyndari
heimsins árið 2000 af lesendum Amer-
ican Photo-tímaritsins, og hann er
kunnur fyrir heimildarkvikmyndir;
var til að mynda tilnefndur til Óskars-
verðlauna fyrir Streetwise, mynd um
útigangsbörn í Seattle.
Þau hjónin halda næsta sumar hvort
sitt námskeiðið á sínu sviði í samvinnu
við heimafólkið Einar Fal Ingólfsson
ljósmyndara og Ingibjörgu Jóhanns-
dóttur, skólastjóra Myndlistarskóla
Reykjavíkur, en þau tvö síðarnefndu
eru einmitt hjón líka. Mary Ellen
hefur verið eftirsóttur leiðbeinandi
víða um heim um árabil og komast að
jafnaði færri að en vilja á námskeiðum
hennar. Eins og ávallt er námskeiðið
sem hún stendur fyrir hér, ásamt
Einari Fali, hugsað fyrir nemendur
hvaðanæva að, en í þó verða nokkur
sæti tekin frá fyrir íslensk ljósmynd-
ara í þetta skiptið.
Spurður hvernig það bar til að þetta
þungavigtarfólk er á leið hingað til
námskeiðishalds segir Einar Falur að
Íslandsáhugi þeirra risti djúpt en þó
umfram allt sé ástríðan fyrir faginu
aðalhvatinn.
„Eins og raunin er með fólk sem er
í fremstu röð í listum, þá sinnir það
starfi sínu af köllun og þannig hefur
það verið með Mary Ellen. Hún veit
ekki hvað það er að taka sér frí heldur
verður sífellt að halda áfram að skrá-
setja mannlífið í heiminum. Þegar hún
hefur verið hér á landi hef ég oftar en
ekki lent í að finna henni verkefni að
mynda, misstór; þegar ég var mynd-
stjóri Morgunblaðsins myndaði hún
til dæmis fyrir mig íslenska mynd-
listarmenn, fjárréttir fyrir norðan,
busavígslu í Kópavogi og daglegt líf í
Öskjuhlíðarskóla. Sú myndröð leiddi
til þess að þau hjón unnu hér í sam-
vinnu við Þjóðminjasafnið að stór-
merkilegum verkefnum, sýningunni
Undrabörn, um börn í Öskjuhlíðar- og
Safamýrarskólum, og heimildarkvik-
myndinni Alexander,“ segir Einar
Falur.
Hefur verið lengi í bígerð
En Mary Ellen en ekki bara frábær
ljósmyndari, sem vinnur fyrir helstu
tímarit og safnar myndum í metnaðar-
fullar bækur, heldur er hún einnig afar
virtur kennari.
„Það þekki ég sjálfur vel því hún
hafði afgerandi áhrif á framtíð mína
þegar ég sótti námskeið hjá henni
suður í Frakklandi fyrir 22 árum.
Fleiri íslenskir ljósmyndarar geta sagt
sömu sögu. Hún heldur námskeið
nokkrum sinnum á ári, einkum í Oax-
aca í Mexíkó, og þar var ég gestakenn-
ari með henni fyrir nokkrum árum.
Á þessum námskeiðum vinnur hún
einkum með þátttakendum að því að
skerpa sýn þeirra og hugsun, vinna
með styrkleikana á uppbyggilegan
hátt – að hjálpa fólki að sýna heiminn
og fólkið sem hann byggir á áhuga-
verðan hátt.“
Að sögn Einars Fals hefur Mary
Ellen ítrekað rætt undanfarin ár um að
halda námskeið hér á landi og loksins
verður nú af því, í samvinnu við fyrir-
tæki í Flórída sem skipuleggur nám-
skeið hennar og fleiri ljósmyndara.
„Mary Ellen þekkir orðið marga
ljósmyndara hér á landi, er mikill Ís-
landsvinur og henni fannst tilvalið að
slá tvær flugur í einu höggi; verða við
óskum ljósmyndara hér um að segja
þeim til, og að kynna land og þjóð fyrir
erlendum ljósmyndurum í leiðinni.“
Einar Falur segir að gert sé ráð fyrir
að nemendur á námskeiðinu verði 15
eða 16, og þar af eru frátekin sæti fyrir
fimm Íslendinga.
„Martin mun á sama tíma segja
nokkrum til í heimildarmyndagerð,
hjálpa fólki að finna frásagnarháttinn
og skerpa á sinni sýn – hann er einnig
frábær kennari, margreyndur sem
leikstjóri og kvikmyndatökumaður.
Hann starfaði meðal annars í mörg
ár sem tökumaður náttúrulífsþátta í
Afríku.“
Alþjóðleg dýnamík
Höfuðstöðvar námskeiðsins verða í
Myndlistarskólanum í Reykjavík í JL-
húsinu og heldur Ingibjörg, sem er
þar skólastjóri, utan um framkvæmda-
hliðina.
„Þar förum við Mary Ellen daglega
yfir það sem hver og einn er að mynda
og Martin vinnur þar með fólki að
samsetningu kvikmynda. Á kvöldin
verða erindi og kynningar, meðal ann-
ars á íslenskum ljósmyndurum. Við
munum einnig funda í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur og væntanlega setja upp
eins konar lokasýningu námskeiðsins
í Þjóðminjasafninu, með þátttöku fleiri
íslenskra ljósmyndara.“
Námskeiðin voru kynnt nú í byrjun
desember og bókanir eru þegar farnar
að berast að sögn Einars Fals.
„Það er full ástæða til að benda ís-
lenskum ljósmyndurum á að nám-
skeiðshaldarinn féllst á þá beiðni
okkar að Íslendingar greiði lægra
þátttökugjald, þar sem það er reiknað
í dollurum. Okkur finnst öllum mikil-
vægt að Íslendingar geti tekið þátt;
dýnamíkin í hópnum verður líka
eflaust áhugaverðari ef heimamenn
eru í bland við erlenda gesti. Því hef
ég kynnst á námskeiðum sem ég hef
verið á hjá Mary Ellen í New York,
Frakklandi og Mexíkó.“ -jk
Frábær ljósmyndari og kennari
Ljósmyndarinn
Mary Ellen Mark
og eiginmaður
hennar, kvik-
myndaleikstjórinn
Martin Bell standa
fyrir námskeiðum
á Íslandi á næsta
ári í félagi við ís-
lenskt listafólk.
Efri mynd: Mary Ellen Mark
að störfum fyrir sýninguna
og bókina Undrabörn,
um börn í Öskjuhlíðar- og
Safamýrarskólum.
Neðri mynd: Martin Bell við
tökur á heimildarmyndinni
Alexander.
Til hægri: Einar Falur Ingólfs-
son ljósmyndari.
Tvær af þekktustu ljósmyndum Mary Ellen Mark. Úr bókinni American Odyssey sem kom út 1999 og hefur að geyma safn mynda sem voru teknar víðs vegar um Bandaríkjunum frá 1963 til 1999.
Lj
ós
m
yn
d/
R
A
X
Lj
ós
m
yn
d/
Á
rn
i S
æ
be
rg
Lj
ós
m
yn
d/
R
A
X
44 myndir Helgin 17.-19. desember 2010