Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 88
88 tíska Helgin 17.-19. desember 2010
Gaman að vera öðruvísi
Áslaug Sóllilja Gísladóttir er 20 ára mær frá Sauðárkróki sem hlustar mikið á tónlist og æfir
Kettelbells þar sem hún fær alla sína þjálfun með mikilli útrás. Hún elskar að tjá sig á listrænan
hátt hvort sem það er gegnum leiklist, dans eða teikningar. „Ég myndi segja að stíllinn minn væri
mjög fjölbreyttur og mér finnst gaman að vera öðruvísi. Ég legg einnig mikið upp úr því að vera í
þægilegum fötum sem mér líður vel í,“ segir Áslaug. „Ég fæ innblástur í tísku aðallega frá fólkinu í
kringum mig, bæði vinkonum og öðrum. Er meira í því að fá fatahugmyndir frá umhverfinu frekar
en netinu eða tískublöðum. Fötin mín kaupi ég mest í Gyllta kettinum, Top Shop, Spúútnik og svo
búðum erlendis. Þar fæ ég föt sem fáir eða enginn á.“
Þröngsýni
og dómharka
Íslendinga
Ég var stödd á skemmtistað um síðustu helgi þegar vinkona
mín, sem nýflutt er til landsins, gekk inn. Hún vakti mikla
athygli í níðþrönga hlébarðasamfestingnum sem ýtti undir
flottan líkamsvöxt hennar. Hún var öðruvísi. Karlmenn
horfðu á eftir henni og hún vakti mikla athygli. En það sem
meira var, kvenkynið horfði enn meira. Þessum grimmu,
gagnrýnandi augum. Augnaráði sem skannaði hvert smá-
atriði. En hörð var hún á því að ætla ekki að breyta klæða-
burði sínum vegna þröngsýni og dómhörku Íslendinga.
Hvort sem það er meðvitað eða ekki þá eigum við það til að
dæma aðra. Klæðnað, hegðun eða útlit. Á góðan eða vondan
hátt.
Ómeðvitað snúum við okkur við ef við komum auga á eftir-
tektaverðan einstakling og ranghvolfum í okkur augunum.
„Sástu pilsið? Ógeðslegt!“ Það sem er svo merkilegt er að
gagnrýnin lýsir mestmegnis þeim sem lætur orðin falla. Sá
einstaklingur hefur engan rétt til að segja til um hvað er
flott og hvað er ekki flott. Þröngsýni. Eflaust er hinn aðilinn
mjög ánægður með val dagsins. Heimagert pils!
Einstaklingar eru oft flokkaðir eftir lífsháttum og klæðnaði.
Arty, skinka, hnakki, „Plane Jane“ og svo framvegis. En
við erum jafn ólík og við erum mörg og það er heldur
takmarkað að flokka einstaklinga í þessa hópa. Þetta eru
aðeins einhverjar staðalímyndir. Hvernig fólk hegðar sér
eða klæðir sig. Við verðum að venja okkur af því að tala um
fólk á niðrandi hátt og hugsa okkur um áður en við byrjum.
„Hvað græði ég á því að tala um ljótu skóna sem stelpan
þarna hinum megin er í?“
tíska
Kolbrún
Pálsdóttir
skrifar
Andlit
Viva Glam
Nú er árssamningur söngkonunn-
ar Lady GaGa við snyrtivörufyrir-
tækið MAC að renna út. Hún hefur
verið andlit fyrirtækisins og hefur
þetta verið ein farsælasta her-
ferðin í sögu þess. Nú hefur Mac
boðið söngkonunni að framlengja
samning sinn og föstudaginn 9.
desember var tilkynnt að hún yrði
andlit línunnar Viva Glam auk
þess að vera talsmaður fyrirtækis-
ins. Heimsþekkti ljósmyndarinn
Nick Knight hefur verið fenginn
í það að mynda glæsilegu söng-
konuna.
Föstudagur:
Skór: Top Shop
Bolakjóllinn: Forynja
Leggings: Nakti apinn
Miðvikudagur
Skór: Top Shop
Buxur: Aftur
Jakki: Fatamarkaður
Bolur: Spúútnik
Fimmtudagur
Kjóll: Gyllty kötturinn
Sokkabuxur: Copra
Sokkar: Copra
Skór: GS skór
Bolur: Top Shop
Mánudagur
Peysa: Nostalgia
Buxur: MNG jeans. Portúgal
Skór: GS skór
Þriðjudagur
Stuttbuxur: Spúútnik
Bolur: H&M
Sokkabuxur: Copra
Skór: friis company
5
dagar
dress
Úr íslensku jökulvatni
Gyðja Collection er íslensk hönnunarlína
stofnuð af Sigrúnu Lilju Guðjóns-
dóttur árið 2007. Nú er komin á markaðinn
glæsilegt ilmvatn frá Gyðju undir nafninu
Eyjafjallajökull. Ilmurinn er unninn
úr íslensku jökulvatni úr jöklinum
sjálfum og til skrauts er lítill hraun-
moli úr gosinu sem hangir á litlu ilm-
vatnsglasinu. Sala á ilmvatninu hófst
um síðustu helgi og hefur
hún gengið gríðarlega vel.
Forsvarsmenn Gyðju ákveð-
ið að stofna hvatningar-
sjóð, sérstaklega ætlaðan
konum í björgunarsveitum.
Mun hluti af ágóða af allri
sölu á ilmvatninu renna í
þann sjóð.
Jólalína frá Make Up Store
Frozen Diamonds heitir nýjasta línan frá Make Up
Store. Hún er jólaleg, flott og hefur vakið gríðar-
legan áhuga. Eins og nafnið gefur til kynna eru
litirnir frekar kaldir og er mikið er lagt upp úr
bláum, grænum og fjólubláum lit. Make Up Store
er til húsa í Kringlunni og Smáralind og hægt er að
nálgast jólalínuna þar.