Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 99
Á hljómgrunnur.is er að
finna aðgengilegt yfirlit yfir
tónlistarviðburði sem eru
fram undan. Rokk, djass,
popp, klassík og allt þar á
milli.
E itt mesta furðuverk í tónlist er hæfileiki tónlistarmanna til að hleypa í
gegnum sig
ólíklegustu
straumum tón
listarsögunnar
án þess að of
hlaða eigin per
formans, nú eða
valda í honum
spennufalli. Það er álitamál hvort
er verra.
Það sýnist sitt hverjum þegar
tónlistarmenn leita út fyrir ramm
ana sem þeir hafa annaðhvort sett
sér sjálfir eða látið smíða utan um
sig á markaðsverkstæðum stór
fyrirtækjanna.
Ástarsöngvarnir á þessum
tveimur diskum þeirra Brads
Mehldau og Anne Sofie von Otter
eru annars vegar svíta nýrra laga
eftir Mehldau við ljóð eftir Söru
Teasdale (með tveimur undan
tekningum) sem samin voru að
tilstuðlan Carnegie Hall í New
York og Wigmore Hall í London.
Hins vegar er um að ræða safn
uppáhaldslaga þeirra tveggja.
Það er skemmst frá því að
segja að þessi samvinna geng
ur fullkomlega upp. Það er ekki
sjálfsagt að stefnumót tveggja
frábærra listamanna geti af sér
svona heillavænlegt afkvæmi.
En þetta eru greinilega engin
skyndikynni og svona getur eng
inn spilað og sungið án þess að
búa yfir ríkulegri virðingu fyrir
viðfangsefninu.
Mehldau tekst í lagaflokki sín
um að búa til einhverja tímalausa
blöndu sem von Otter hvílir ákaf
lega vel í.
Röddin er frábær og raddbeit
ingin fjölbreytt hvort sem tekið er
á því eða farið á trúnó í návígi við
hljóðnemann. Píanistinn og tón
smiðurinn Mehldau kemur ekki
síður sterkur frá þessu. Hvergi
finnur maður fyrir því að hann
halli sér að klisjum hvort sem er
í eigin tónsmíðum eða útsetning
um á fjölbreyttu lagasafni seinni
disksins þar sem höfundar eru
meðal annarra Leonard Bern
stein, Jaques Brel, Michel Le
grand og Bítlarnir.
Pétur Grétarsson
Love Songs
Brad Mehldau og Anne
Sofie von Otter
Útgáfa: NAIVE
Spennandi breytur
gæðapLötur péturS grétarSSonar
Föstudagur 17. desember
Anna Jónsdóttir sópran og Sophie Schoonj-
ans hörpuleikari
skúlatún 2, 6. hæð kl. 12.15
Árlegir jólahádegistónleikar Önnu og Sophie. Á
tónleikunum flytja þær uppáhaldsjólalögin sín í
fjölbreyttri dagskrá. Aðgangur 1.000 kr.
Jólahazar Kimi Records
bakkus kl. 21
Íslenska útgáfufélagið Kimi Records ætlar að
halda jóla- og útgáfufögnuð föstudaginn 17.
desember með stórtónleikum á tónleikastaðnum
Bakkus við Tryggvagötu. Þær hljómsveitir sem
koma fram á tónleikunum hafa allar gefið út efni
árinu hjá útgáfunni en fram koma: The Heavy
Experience, kimono, Miri (dj sett), Orphic Oxtra,
Prinspóló, Retro Stefson, Reykjavík!, Stafrænn
Hákon og Sudden Weather Change. Hús opnar kl.
21:00 og tónleikar hefjast stundvíslega kl. 21:30
Aðgangur ókeypis
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju
Langholtskirkja kl. 23
Þrítugustu og þriðju jólasöngvar Kórs Langholts-
kirkju verða haldnir helgina 17-19 desember. Þar
syngur kórinn ásamt Gradualekór Langholts-
kirkju en stórnandi er Jón Stefánsson. Gestakór
verður Táknmálskórinn undir stjórn Eyrúnar
Ólafsdóttur. Einsöngvari með táknmálskórnum
er Kolbrún Völkudóttir. Einsöngvarar eru Andri
Björn Róbertsson, Ólöf Kolbrún Harðardóttir og
Þóra Einarsdóttir. Einnig syngja kórfélagar úr
Gradualekór Langholtskirkju einsöng.
Aðgangur 3.500 kr. Í hléi er boðið upp á rjúkandi
jólasúkkulaði og piparkökur.
Laugardagur 18. desember
Orphic Oxtra
Faktory kl. 22
Orphic Oxtra fagnar fyrstu plötu sveitarinnar
með útgáfutónleikum. Hljómsveitirnar Hyrrokk-
inn og Sudden Weather Change spila á undan
aðalnúmeri kvöldsins.
Aðgangur 1.000 kr.
Langholtskirkja kl. 20 og 23 (sjá lýsingu að ofan)
sunnudagur 19. desember
Jólatónleikar fjölskyldunnar
salurinn, Kópavogi kl. 16
Skólakór Kársness flytur jólalög ásamt gestum.
Aðgangur 2.900 kr.
Kammersveit Reykjavíkur
Áskirkja kl. 17
Á jólatónleikum sínum kynnir Kammersveitin
Bach-soninn Carl Philipp Emanuel. Einleikarar
eru Margrét Árnadóttir í Sellókonsert í A-dúr
og Melkorka Ólafsdóttir í Flautukonsert í G-dúr.
Konsertmeistari er Una Sveinbjarnardóttir og
Javier Núnes leiðir Kammersveitina frá semb-
alnum. Aðgangur 2.500 kr.
Jólatónleikar á Norðurpólnum
norðurpóllinn – Miðstöð menninga og lista kl.
20 Tónleikar til styrktar fjölskylduhjálpar Íslands.
Meðal listamanna sem koma fram eru Björn
Thoroddsen og Guitar Islandico, Ragnheiður
Gröndal, Þrjár raddir og Beatur og Ari Eldjárn.
Aðgangur 2.500 kr.
Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju
Langholtskirkja kl. 20 (sjá lýsingu að ofan)
mÁnudagur 20. desember
Kyrrð og friður í Lágafellskirkju
Lágafellskirkja, Mosfellsbæ kl 20.
Arnhildur Valgarðsdóttir organisti og Inga
Backman söngkona flytja jólalög frá ýmsum
löndum og tímum. Kaffi að tónleikum loknum
ásamt jólapakka kostar kr 1.000
Svona getur
enginn spilað
og sungið án
þess að búa
yfir ríkulegri
virðingu fyrir
viðfangsefninu.
dægurmál 99Helgin 17.-19. desember 2010