Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 92
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
kynning
jólaafsláttur
Sérfræðingur frá Asics á staðnum
17. desember
kl. 16:00-21:00
í Smáralind
18. desember
kl. 15:00-21:00
í Kringlunni
20%
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
70
2
12
/1
0
N ýlega var tískufataversl-unin EMAMI opnuð á
neðstu hæð Kringlunnar.
Verslunin er undirlögð af
fatnaði, skartgripum og fylgi-
hlutum eftir íslenska hönn-
uði og það eru sannarlega
ánægjuleg tíðindi fyrir neyt-
endur að íslensk hönnun og
handverk hafi náð aukinni
fótfestu í stærstu verslunar-
miðstöð Reykjavíkur.
EMAMI er þriggja ára
hönnunarfyrirtæki, stofnað
af þeim systrum Steinunni
og Unni Garðarsdætrum
ásamt Brynjari Ingólfssyni.
Fyrsta EMAMI-verslunin
hér á landi var opnuð fyrir
rúmu ári á Laugaveginum og
nú hafa þau bætt við verslun
í Kringlunni. Jafnframt er
fatnaður EMAMI seldur í
130 verslunum víðsvegar um
heiminn.
Vöruúrval verslunarinnar
hefur aukist til muna og ný
hönnun litið dagsins ljós. Að
sjálfsögðu verður hinn um-
breytanlegi Limitless-kjóll
frá þeim til sölu í versluninni
en nú í nýjum búningi, 100%
silki og hin besta gæðavara.
Það er ekki erfitt að breyta
sniði kjólsins en sakar heldur
ekki að fá smá leiðbeiningar.
Lærðu að gera fallega blómið
og notaðu Limitless-kjóllinn
um jólin. -kp
eMAMI StækkAr vIð SIg
AnnaLynne McCord leikur
eitt af aðalhlutverkum
bandarísku sjónvarps-
þáttanna 90210. Hún
hefur góðan stíl og
klæðir sig eftir því hvað
hentar henni best.
Lara Bringle er eftirsótt
fyrirsæta frá Ástralíu
og hefur setið fyrir hjá
þekktustu tískufram-
leiðendum heims. Hún
kemur alltaf viðstöddum
á óvart þegar kemur að
klæðavali og nær alltaf
að fanga athygli þeirra.
Charice Pempengco er ung
stúlka frá Filippseyjum sem
sló rækilega í gegn með
söng sínum á Youtube. Hún
var uppgötvuð af sjón-
varpsþáttastjórnandanum
Oprah Winfrey og síðan
þá hafa allar götur verið
greiðar. Charice hefur gott
auga fyrir tísku og veit hvað
hentar hennar stíl best.
Leighton Meester úr Gossip
girl er þekkt fyrir sinn
glæsilega stíl. Hún er alltaf
flott, hvort sem hún er að
leika einhvern karakter
eða í raunveruleikanum.
Hún er óhrædd við að ryðja
brautina og er mikill tísku-
frumkvöðull.
Karl-
manns-
föt fyrir
konur
Nú er tími til kominn
fyrir þær stelpur sem
hafa ekki rennt í gegnum
fataskápinn hjá kærast-
anum, bróður eða föður
og hnuplað einhverjum
flíkum. Árið 2009 ein-
kenndist mjög af stórum
jökkum og víðum buxum
sem eins hefðu getað
komið úr fataskáp karl-
manns. Nú heldur sú þróun
áfram og næsti áfangi er
jakkaföt, bindi eða slaufur.
Konur hafa undanfarið
þurft mikla dirfsku til að
klæðast þessum fatnaði
en nú hafa frumkvöðlar
tískunnar rutt þessa braut
og þykir þetta hinn mesti
tískufatnaður.
Að
binda
blóm á
kjól
1 Hafðu pilsið í mitti og taktu framlenginguna upp að
framan.
2 Dragðu saman efnið eins vel og hægt er og búðu þig undir
að fletta efninu yfir strenginn.
3 Flettu tíu cm af efninu yfir strenginn og taktu endana
saman.
4 Nú er kominn vísir að blómi.
5 Þá er að binda böndin tvö þétt saman. Nauðsynlegt er að
gera tvöfaldan hnút svo að blómið haldist.
6 Nú geturðu staðsett blómið á öxlinni, krossað böndin í
bakið og tekið þau svo saman að framan – og þú ert komin
með glæsilegan jólakjól. Ljósmyndir/Tóbías Sveinbjörnson
1 2 3
4 5
6
92 tíska Helgin 17.-19. desember 2010