Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 87
GRUNAÐ
VÆNGJATAK
Eysteinn Þorvaldsson ÍSLENSKIR
SÖNGDANSAR Í
ÞÚSUND ÁR
Sigríður Þ. Valgeirsdóttir
KONAN SEM FÉKK
SPJÓT Í HÖFUÐIÐ
Kristín Loftsdóttir
RÚNIR
Ritstj. Guðni Elísson
OFBELDI
MARGBREYTILEG
BIRTINGARMYND
Erla Kolbrún
Svavarsdóttir
H Á S K Ó L A Ú T G Á F A N
haskolautgafan.hi.is – hu@hi.is – s. 525 4003
SKÁLDUÐ SKINN
Sveinn Eggertsson
NÝTT FRÁ HÁSKÓLAÚTGÁFUNNI
FT 12.12.10.10_Layout 1 12/16/10 3:08 PM Page 1
gullknötturinn Hver er besti leikmaður ársins 2010?
Barcelona og dvergarnir þrír
Lionel Messi, Xavi Hernández og Andrés Iniesta eru tilnefndir sem knattspyrnumenn ársins 2010. Þeir eiga það allir sameiginlegt að spila með spænska stórliðinu Barcelona.
m argir hafa undrast að hollenski miðju-maðurinn Wesley Sneijder hafi ekki
verið á meðal þriggja efstu manna í kjörinu á
knattspyrnumanni ársins hjá Alþjóða knatt-
spyrnusambandinu. Sneijder hefur átt frábært
ár, vann þrefalt með Inter Milan, deildina,
bikarinn og meistaradeildina, og var besti
leikmaður hollenska liðsins sem tapaði fyrir
Spánverjum í úrslitaleik HM í sumar.
„Wesley Sneijder ætti að vera á meðal
þriggja efstu. Ég veit að það ríkir mikil reiði á
Ítalíu vegna þess að Sneijder er ekki á meðal
þriggja efstu og ég skil það. Hann hefur átt frá-
bært ár,“ sagði Xavi, einn af þremur efstu, við
spænska fjölmiðla þegar tilkynnt var um valið.
Sneijder hefur lítið viljað tjá sig um málið.
Þegar valið var kynnt sagðist hann óska
Messi, Xavi og Iniesta til hamingju jafnvel
þótt hann væri leiður. „Það er ekkert sem ég
get gert. Allir vilja að ég segi eitthvað en það
er ekkert sem ég get sagt,“ sagði Sneijder. -óhþ
Hvar er Sneijder?
sem vann heimsmeistaratitilinn
í Suður-Afríku. Fréttatíminn leit
nánar á þremenningana sem eiga
það sameiginlegt að vera léttir og
lágir í loftinu.
oskar@frettatiminn.is
8
8
Andrés Iniesta
Fullt nafn: Andrés Iniesta Luján
Aldur: 26 ára
Staða: miðjumaður
Hæð: 1,70 m
Þyngd: 65 kg
Leikir/mörk: 332/28
Landsleikir/mörk: 54/9
„Iniesta er frábært dæmi um
það hvernig knattspyrnu-
maður á að vera. Hann er
einstakur maður og ég vona
að hann breytist ekki. Hann
er líka mjög agaður og getur
spilað fleiri en eina stöðu.“
Vincent Del Bosque
Granna
slagur í
Barcelona
b arcelona sækir granna sína í Espanyol heim um
helgina í spænsku úrvalsdeild-
inni. Leikir þessara liða hafa
oft verið átakamiklir og spenn-
andi jafnvel þótt getumunurinn
á liðunum sé gífurlegur. Esp-
anyol hefur þó bætt sig mikið
á þessari leiktíð og er í hópi
efstu liða.
Barcelona er í efsta sæti
deildarinnar með 40 stig og
hefur aðeins tapað einum leik
og gert eitt jafntefli. Espanyol
er í fjórða sæti með 28 stig. Lið-
in gerðu markalaust jafntefli á
sama velli í apríl á þessu ári.
snillingar 87 Helgin 17.-19. desember 2010