Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 34
barna kuldaskór smábarna kuldaskór
Verð: 33.000 kr.
(Stærðir: 38- 42)
Verð: 16.800 kr.
(Stærðir: 25- 38)
Verð: 11.500 kr.
(Stærðir: 21- 25)
K E EN K E EN K E EN
dömu kuldaskór
Hlýir og þægilegir uppháir kuldaskór fyrir dömur.
Fóðraðir með gerviskinni og gott grip í sóla.
Góðir vatnsheldir barna kuldaskór með snjóvörn.
Leður neðst á skóm, gott grip í sóla og távörn.
Hlýir og léttir smábarna kuldaskór sem auðvelt er að
klæða börnin í. Távörn og gott grip í sóla.
Þ að eru alls konar sögur á kreiki um að ef kaffi, sígarettur og jafn vel kóka kóla kæmi á markaðinn í dag myndi þetta
allt saman verða flokkað sem ólögleg eiturlyf.
Það eru þó ekki bara vörur sem eru flokkaðar
öðruvísi í nútíðinni. Börn sem talin voru tossar
í gamla daga flokkast nú með athyglisbrest og
ofvirkni og allt upp í einhverfu.
Hér er lítil saga af því þegar fimmtán manna
stórfjölskylda, auk óvenju ófrýnilegs kattar-
ræksnis, flutti búferlum úr fjallahelli í fimm her-
bergja íbúð í Breiðholtinu.
Hin unga Grýla mætti með jólasveinana sína
á innritunardeildina hjá grunn- og leikskólasviði
Reykjavíkurborgar og heimtaði menntun fyrir
sveinana. Eiginmaðurinn, Leppalúði, endaði þó
fljótlega einn með uppeldið á sínum herðum því
eftir nokkrar heimsóknir Grýlu í nágrannaíbúð-
ir, heimtandi óþekk börn í pottinn sinn, endaði
hún í kvennafangelsinu í Kópavogi. Síðar fór hún
í vist á réttargeðdeildinni á Sogni vegna þess að
íslensk lög ná ekki alveg utan um kolklikkaða
kerlingu sem gengur um með risastóran poka
sem hún reynir að fylla af óþekkum börnum úr
nágrenninu.
Stúfur í einelti
Jólasveinarnir sjálfir lentu líka í ýmsum vand-
ræðum á uppvaxtarárunum, sístelandi nestinu
frá bekkjarsystkinum sínum, auk þess sem
Kertasníkir hinn ungi lenti nokkuð oft uppi á
slysó því nútímakerti þykja miður góð í magann.
Stúfur lenti í hrikalegu einelti og Skyrgámur
grét sig oft í svefn því nútímaskyr er yfirleitt
sykraður bragðbættur mjólkurbúðingur. Reykt
bjúgu þykja heldur ekki sá herramannsmatur
sem þau þóttu hér áður fyrr þannig að Bjúgna-
krækir fór oft svangur í rúmið.
Vandamál jólasveinanna byrjuðu þó ekki fyrir
alvöru fyrr en á fullorðinsárunum. Á meðan
þeir voru á barnsaldri voru tiktúrurnar í þeim í
versta falli pirrandi og enginn verri en Hurða-
skellir sem gat bara ekki lokað varlega, sama
hve oft hann var sendur til skólastjórans. Hann
endaði í sérskóla þar sem enginn venjulegur um-
sjónarkennari réð við ofsann í honum. Flestir
þeirra bræðra voru flokkaðir sem misþroska
með athyglisbrest og snert af félagsfælni og
sendir til sálfræðings. Hann mælti með því að
þeir yrðu vistaðir á sambýli. Það var líka gert við
Leppalúða kallinn sem réð ekki neitt við neitt,
sérstaklega eftir táningsárin. Þá var líka búið
að sleppa Grýlu út og hún sett á stóran skammt
af geðlyfjum til að reyna að halda barnaátinu í
skefjum. Jólakötturinn var á þessu tímabili löngu
kominn upp í Kattholt þar sem hann byrjaði á því
að narta í formanninn, Sigríði Heiðberg, og var
eftir það hafður í einangrun.
Þetta forðaði Gluggagægi ekki frá því að lenda
á Litla Hrauni. Hann fékk nokkur tækifæri til að
bæta ráð sitt og hætta að liggja á gluggum fólks
en eðlið er sterkt og löggan sneri hann fyrst
niður þegar hann var á nítjánda ári. Það gerist
svo í kringum 21. desember ár hvert að hann er
tekinn. Dómarnir eru ekki þyngri en það.
Hverfisfundir vegna bræðranna
Matur hvarf í óvenjulega miklu magni og púðlu-
hundur, sem eigandinn kallar litla lambið, var
ekki látinn í friði. Einir þrír sveinar voru svo oft
gripnir glóðvolgir inni á heimilum ókunnugra
við að sleikja óhreint leirtau og potta.
Það voru oft haldnir hverfisfundir í grennd
við sambýli bræðranna. Fundirnir snerust yfir-
leitt um áhuga þeirra á börnum hverfisins. Það
var jafnvel talið að þeir hefðu lista yfir hver
barnanna væru þæg og hver óþekk. Áður en lög-
reglan komst í málið hvarf fjölskyldan og er talið
að hún hafist við í Esjunni, þótt einnig hafi sést
til hennar norður í Hlíðarfjalli.
Jólasveinar nútímans – Bræður í blíðu og stríðu
Í tilefni af því að jólasveinarnir tínast einn og einn til byggða um þessar mundir velti Haraldur Jónasson fyrir sér hvernig færi fyrir þeim bræðrum, þyrftu þeir að kljást við
íslenskan veruleika í meira en einn mánuð á ári. Teikning/Hari
34 jólasveinar Helgin 17.-19. desember 2010