Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 26
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Hjóladeildin er í Holtagörðum!
Við erum í hjólaskapi!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
52
74
2
12
/1
0
20-40% afsláttur af öllum hjólum og
20% afsláttur af öllum hjólaaukahlutum til jóla!
Jamis Lady Bug
Verð: 22.990 kr.
18.392 kr.
Jamis Commuter
Verð: 71.990 kr.
43.194 kr.
Hraðamælir
Verð: 1.990 kr.
1.592 kr.
10 stillingar
Ventura verkfærasett
Verð: 2.590 kr.
2.072 kr.
18 tól
Framljós
Verð: 1.990 kr.
1.592 kr.
Hægt að nota
sem vasaljós
Nagladekk
Verð: 6.990 kr.
5.592 kr.
28”/700 x 35 C
100 naglar
Náði að beita réttri
öndun og komin heim
hress samdægurs
Ég lærði
að loka á
það sem
gerðist í
kring.
É g hlakkaði til að eignast dóttur mína og var róleg,“ segir Hafsteina Guð-mundsdóttir sem fór á námskeið um
sjálfsdáleiðslutækni, eða Hypnobirthing á
um það bil 33. viku meðgöngu með dóttur
sína, Elínu Ásdísi Náttsól, sem fæddist 24.
september síðastliðinn. Rétt tæpum tveimur
árum áður, 26. október 2008, eignaðist hún
son sinn Nökkva Stein og sér ekki margt líkt
með fæðingunum tveimur.
„Þegar hríðirnar, sem kallast í Hypnobir-
thing bylgjur, ágerðust í fyrri fæðingunni
varð ég mjög hrædd, enda vissi ég ekkert
hvernig sársaukinn ætti að vera. Hríðirnar
urðu alltaf harðari og harðari og ég hélt um
tíma að ég væri að deyja. Mér fannst ég ekki
ná góðu sambandi við ljósmóðurina og hreifst
ekki af andanum á deildinni. Mér fannst
harkalega farið að mér og ég upplifði skamm-
ir vegna þekkingarleysis á ferlinu. Móðir mín
var viðstödd báðar fæðingarnar og í þeirri
fyrri var hún ofboðslega hrædd og vildi taka
sársaukann af mér en núna í þeirri seinni var
hún ekki eins smeik.“ Hafsteina segir að á
endanum hafi hún kosið mænurótardeifingu.
Gat betur einbeitt sér
„Ég fann strauminn fara um líkamann en
hann var þó ekkert á við hríðirnar, ég gat
slakað á og fengið mér að borða,“ segir hún.
„Eftir á, í allt að viku, var ég slöpp og með
hausverk. Ég hefði heldur kosið að vera hress
og að ég væri betur stemmd til þess að takast
á við móðurhlutverkið þessa fyrstu daga í
lífi sonar míns.“ Hafsteina rakst á lýsingu á
námskeiðinu og skráði sig þegar hún fór inn
á vefinn 9 mánuðir í leit að tíma í þrívíddar-
sónar. „Ég lærði öndun og slökunaraðferðir
til að fara inn á við og geta einbeitt sér meira
að fæðingunni. Ég lærði að loka á það sem
gerðist í kring,“ segir hún og að hún hefði
svo gjarna viljað hafa farið á námskeiðið fyrir
fyrri fæðinguna.
„Það hefði munað miklu. Þá hefði ég reynt
Hreiðrið, því þar er mun minna af sjúkra-
tækjum og umhverfið eins og í hverju öðru
svefnherbergi. Í seinni fæðingunni gekk ég
beint inn í Hreiðrið og gerði mig tilbúna. Við
tókum vídeó og því sá ég að yfirbragðið var
allt mun betra; ekki sömu gretturnar og ótt-
inn.“ Ljósmóðirin Kristbjörg, sem kennir
Hypnobirthing, var Hafsteinu til halds og
trausts. „Fæðingin gekk rosalega fljótt fyrir
sig. Dóttir mín fæddist fimm tímum frá því
hríðirnar byrjuðu heima um morguninn. Ég
upplifði verkina en engan veginn eins og í
fyrri fæðingunni, mér fannst þeir ekki eins
öflugir eða allir í einu. Ég gat því andað að-
eins inn á milli,“ segir Hafsteina sem var
komin samdægurs heim með dótturina.
Hafsteina með börnum sínum, Elínu Ásdísi Nátt-
sól og Nökkva Steini. Ljósmynd/Hari
Hollráð
fyrir fæðingar
– ráð Kristbjargar Magnúsdóttur
n Fá vinkonur til að segja jákvæðu
fæðingarsögurnar sínar.
n Ekki hlusta á neikvæðar
fæðingarsögur. Þá er best að taka
um bumbuna, eins og tekið væri
fyrir eyru barnsins, og segja „Uss,
uss, barnið mitt er að hlusta.“
n Fæðist barnið óvænt heima er alls
ekki nauðsynlegt að klippa strax
á naflastrenginn en mikilvægt að
halda hita á móður og barni.
n Gangi fæðingar hratt fyrir sig er
óþarfi að hræðast, það er í lagi
og barnið þá tilbúið að koma í
heiminn.
n Treystu á líkama þinn, ótti myndar
streituhormón sem geta unnið
gegn fæðingarhormónunum.
n Í sefjunarfæðingum eru kennd
mismunandi öndun sem vert er að
læra:
A. Svefnöndun, þar sem útöndun
er helmingi lengri en innöndun.
Svefnöndun er notuð milli bylgna
og til að slaka á. Þær sem tileinka
sér tæknina geta komist hratt í
slökunarástand þegar þær hafa
náð tökum á henni.
B. Öndun í bylgjum/hríðum, sem er
alveg áreynslulaus öndun, mjög
löng innöndun og mjög löng út.
Talið er hratt upp að tuttugu og
andandum aldrei haldið í sér.
C. Öndun kærleikans þegar móðir
andar barninu niður í gegnum
grindina og í heiminn í þrýstings-
tilfinningunni. Enginn rembingur.
26 úttekt Helgin 17.-19. desember 2010