Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 62
62 viðhorf Helgin 17.-19. desember 2010
Á
gætu áheyrendur,
góða fólk – eða get
ég gengið út frá því
að þið séuð góð, að
við séum góð? Er
það ekki of djarft, jafnvel glóru-
laus bjartsýni? Því ef maður horfir
snöggvast yfir mannkynssöguna,
blaðar í bókum um sagnfræði, þá
er erfitt að verjast þeirri hugsun að
maðurinn sé grimm vera, og mis-
kunnarlítil. Óhæfuverk mannsins
eru fleiri en stjörnur himinsins,
og þær eru margar. Grimmd hans
virðist einfaldlega engin takmörk
sett. Hvort sem horft er til fortíðar
eða nútíðar. Og við, sem einstak-
lingar, manneskjur, við sem hópur,
sem þjóð, virðumst ekki hafa það
afl í okkur sem þarf til þess að
stöðva óskiljanlega grimmd sög-
unnar. Höfum ekki aflið, kjarkinn
og viljann til að rísa upp úr hvers-
dagsleika okkar, upp úr öryggi og
þægindum hversdagsins, og berj-
ast fyrir mannúð, fyrir góðsemd.
Eða hversu margar stundir lífs
okkar höfum við beinlínis notað í
þá baráttu, baráttu gegn ofbeldi,
óréttlæti, kúgun, grimmd? Hversu
mörgum stundum höfum við
fórnað í þá baráttu?
Ég spyr þess vegna aftur; getum
við, þegar við ávörpum fleiri en
tvo eða þrjá í einu, hafið mál okkar
með þessum orðum – góða fólk – er
það blátt áfram réttlætanlegt?
Löðrandi í illsku
Við skulum samt ekki gleyma
þessu: Það er til góðsemd í mann-
inum. Það er til fórnfýsi og fegurð,
það eru til sögur sem lýsa jafnvel
óendanlegri góðmennsku og fórn-
fýsi hans. En þær sögur eru því
miður ekki fleiri en stjörnur him-
insins.
Er þá minna um góðsemd en
grimmd í heiminum? Já, segir
mannkynssagan, staðhæfir það
hiklaust, án umhugsunar, og er
fljót að hlaða upp sönnunum, hlaða
upp frásögnum, sönnunargögnum
– hlaða upp líkunum.
Já, segja fjölmiðlar
dagsins, enda er
mikill meirihluti
frétta neikvæður,
sumar eru blátt
áfram dimmar og
illskufullar, segja
af drápum, svik-
um, nauðgunum,
taumlausri græðgi
og fyrirlitningu
gagnvart lífinu. Það
kemur líka í ljós að
grimmdin er glimr-
andi söluvara, það
verða margir ríkir af
henni; ég þarf ekki
að nefna vopnafram-
leiðendur heimsins,
það er kunn staðreynd sem allt
mannkynið virðist þó máttlaust
frammi fyrir, en ég nefni tölvuleiki
fyrir börnin okkar, leiki sem ganga
út á að drepa nógu marga og á sem
skemmstum tíma. Þeir seljast vel,
rokseljast, og ein af sölubókum
ársins, sænskur krimmi sem á eftir
að rata í ófáa jólapakkana, er aug-
lýst á bókarkápu með því að vitna
í ritdóm stórblaðsins The Times:
Hörkuspennandi, nístingsköld og
löðrandi í illsku.
Nístingsköld. Löðrandi í illsku.
Ég gæti sjálfsagt staðið hér í
allt kvöld, velt fyrir mér og spurt,
á hvaða leið erum við, er ekki eitt-
hvað verulega mikið að nútímasam-
félaginu, leynist þar ekki djúplæg
skemmd eða truflun, eða hvers
vegna er það eftirsóknarvert að
gefa bók í jólagjöf sem er ekki bara
nístingsköld, heldur líka löðrandi
í illsku? Að það sé beinlínis, og
markvisst, gert út á algera illsku
og mannvonsku. Því sjúkari sem
glæpamaðurinn er, og nær hinni
algerri illsku – því betra. Því meiri
möguleikar á sölu. Ég skil vel
þörfina fyrir spennu, hasar, flækjur
í glæpasögum, mikil ósköp, en fyrr
má nú rota en dauðrota. Og ég spyr
aftur, hvað er það í okkur sem kall-
ar af þessum ákafa á nístingskulda,
löðrandi illsku? Er það blátt áfram
grimmdin í mannin-
um, enn ein sönnun
þess að það sé hún
sem knýr söguna?
Er það einhvers
konar laundjúp þrá
eftir upplausn allra
gilda? Eða hvað
þýðir það að vera
löðrandi í illsku?
Jú, það er að hata
lífið, fyrirlíta það
svo algerlega að þú
þráir ekkert heitar
en að tortíma því, og
helst á afskræmdan
hátt. Hvað ætlarðu
að gefa móður þinni
í jólagjöf, manni
þínum, dóttur þinni, jú, helvíti
spennandi sænskan krimma sem
er nístingskaldur, löðrandi í illsku –
þeim sem ég elska gef ég bók sem
fyrirlítur lífið.
Heimur ljótleika og fegurðar
Við horfum á sjónvarpsfréttir,
lesum blöðin, hlustum á útvarp,
það er maður myrtur í Noregi, börn
hneppt í þrældóm einhvers staðar í
Asíu, þau deyja úr hungri í Afríku,
á Haítí deyr fólk eins og flugur, lifir
í eymd og ótta, og um alla veröld
fara menn um vankaðir af grimmd
og dópi, myrða og nauðga og sví-
virða allt líf sem á vegi þeirra veður.
Einn dagskammtur af fréttum;
hversu mörg lík liggja í honum,
hversu mikl eymd, vonleysi, óham-
ingja, hversu margar nauðganir,
hungurdauði, svik, hatur?
Líklega ómælanlegt.
Og hvað gerum við, hér í skjóli
Íslands, fjarri ógnum heimsins, ein
ríkasta þjóð veraldar, sem við erum
enn, þrátt fyrir erfiðleika, þrátt fyr-
ir nokkra skafla – hvað gerum við,
hvernig tökum við á móti þessum
dagskammti?
Ja, sum okkur standa upp, fara
inn í rúm til að lesa bók sem er
löðrandi í illsku.
Gefum okkur það, svona til gam-
ans, að þróuð vera utan úr geimn-
um ætti leið hér um, og að hún
yrði vitni að þessum dagskammti
af eymd mannkynsins, grimmd
og mismun, og sæi okkur síðan
leggjast upp í rúm; ekki til að jafna
okkur, syrgja veröldina, heldur
lesa bók sem er löðrandi í illsku.
Hvað myndi hún gera? Myndi hún
ekki bara forða sér burt og láta
girða sólkerfið af – komið ekki nær
þessari plánetu en sem nemur 100
ljósárum!
Það er auðvelt að fyllast svart-
sýni, bölsýni, depurð í þessum
heimi ofbeldis, svika, græðgi,
eigingirni. Í þessum heimi skíts og
stjarna, eins og Geirlaugur Magn-
ússon skáld orti einu sinni. Og
þar höfum við það, heim skíts og
stjarna – heim ljótleika og fegurðar.
Því þetta er fagur heimur þótt hann
ætti, mætti og gæti verið fegurri,
betri, réttlátari. Þegar við náum að
rífa okkur frá hinum dimmu frétt-
um sem fjölmiðlar og sögubækur
eru uppfullar af, náum að horfa í
kringum okkur, þá sjáum við víða
fegurð, þá sjáum við góðsemd, og
þá göfgun sem vex af henni. Og þá
spyr maður sig kannski, af hverju
er góðsemdin aldrei á forsíðum
blaða, fyrsta frétt í fjölmiðlum, og
af hverju er hún nánast fjarverandi
í mannkynssögunni?
Vond frétt er góð frétt, þannig
hljómar sirka lögmálið.
Bók sem er löðrandi í illsku selst
vel, þannig hljómar sirka lögmálið.
Fólk hittist á förnum vegi hér á
Íslandi, í Þýskalandi, í Sidney, og
það eru meiri líkur á að það tali um
hörmungar og svik heldur en góð-
semd og fórn. Getur verið að eftir-
sókn okkar eftir vondum fréttum,
bókum og kvikmyndum löðrandi í
illsku, auki beinlínis á böl heims-
ins? Að í stað þess að berjast fyrir
góðsemd, fórnfýsi og auka þannig
vægi þess í veröld okkar, lofum
við fjölmiðlum að spila látlaust
stef dauðans, stef hörmunga, stef
græðgi og vonleysis? Það er auð-
vitað hlutverk þeirra að láta vita af
þeim, segja frá illum verkum, draga
þau fram í dagsljósið, en ætti það
ekki líka að vera hlutverk þeirra að
segja jafn ákaft frá hamingju, frá
fórn, frá góðsemd?Við erum það
sem við segjum og gerum, og hvað
segjum við, hvað gerum við? Hvar
er okkar fórn? Hvernig bætum
við heiminn, hvað gerum við til að
draga úr óréttlæti?
Eru Íslendingar kaldlyndir?
Hvað gerum við sem einstaklingar,
sem þjóð? Ja, hér er lítið dæmi:
Við lendum í fjármálakreppu, og
það fyrsta sem við gerum er að
draga verulega úr þróunaraðstoð,
höfum ekki efni á henni, segjum
við. Við sem eigum nánast allt,
sveltum ekki, er ekki kalt, förum í
skemmtiferðir til útlanda – um leið
og þrengir að, grynnkar í budd-
unni, þá minnkum við snarlega að-
stoð við þá sem deyja úr hungri úti
í heimi, þá sem eiga enga mögu-
leika á menntun, á mannsæmandi
lífi, nema með aðstoð okkar sem
höfum allt. Það þrengir aðeins að,
tímabundið, og við drögum sam-
stundis úr aðstoð við þá sem allra
minnst eiga í þessari veröld – við
sem höfum aldrei lagt það til í þró-
unaraðstoð sem við ættum að gera
samkvæmt alþjóðasamningum.
Höfum aldrei sýnt þá reisn. Erum
við þá góð, er í einlægni hægt að
segja það um okkur – erum við
ekki alltof eigingjörn, sjálfgóð, til
að kallast góðar, fallegar manneskj-
ur? Hvað myndi Kristur til dæmis
segja um okkur? Ég spyr, af hverju
erum við ekki meiri en þetta, hvar
er stærðin í okkur? Getum við,
með þetta í huga, búist við rétt-
látum heimi? Hvaðan á réttlætið að
koma nema frá okkur sjálfum? Eða
hvernig getum við fengið okkur til
þess að draga stórlega úr aðstoð
við þá sem nær ekkert eiga, með
þeim rökum að við höfum ekki efni
á því, á meðan fjöldinn allur fer um
jólin í skíðaferðir til Evrópu, í inn-
kaupaferðir til Boston, þegar dýr
raftæki seljast enn vel; í stuttu máli,
þegar við lifum enn, þrátt fyrir allt,
við ofgnótt? Erum við þá ekki eigin-
gjörn og kaldlynd þjóð?
Bjarga lífi eða panta pitsu?
Erum við kaldlynd þjóð? Þetta er
ekki fallegt af mér, ég viðurkenni
það, en ég sendi ykkur inn í
skammdegið, inn í jólin, með þessa
spurningu. Með þennan efa. Með
þessa ásökun. En ég segi líka, og
að endingu, að þar sem við bregð-
umst sem þjóð, þar getum við risið
upp sem einstaklingar. Og það get-
um við, hvert og eitt okkar, með því
til dæmis að aðstoða þá beint sem
minna mega sín í þessari veröld,
hvort sem þeir búa hér á landi eða í
fjarlægum löndum. Það kostar það
sama að greiða skólagjöld, fæði og
læknisþjónustu fyrir barn í Afríku
í einn mánuð og að panta eina 18
tommu pitsu með tveimur álegg-
stegundum – hversu margar pitsur
eru pantaðar á Íslandi á ári? Hversu
mörg börn í Afríku búa við skort og
óhamingju? Þetta er einfalt reikn-
ingsdæmi. Og ekki vantar sam-
tökin til að taka á móti framlögum.
Munið, það breytir enginn heim-
inum fyrir okkur, við verðum sjálf
að gera það. Upphafið að nýjum,
betri, fallegri heimi kemur ekki
að utan, kemur ekki sem ljósgeisli
af himnum, kemur ekki sem laga-
breyting frá stjórnvöldum – heldur
kemur það að innan, frá hverjum og
einum. Þaðan getur komið mikið
og óstöðvandi afl. Hver manneskja,
hver einstaklingur, ber ábyrgð á
veröldinni. Við getum annaðhvort
svikist undan eða gengist við
henni. Okkar er valið.
Þessi grein var flutt sem erindi á að-
ventukvöldi í Lágafellskirkju sunnu-
daginn 5. desember síðastliðinn.
Eru Íslendingar kaldlynd þjóð?
HEIMUR SKÍTS OG STJARNA
Jón Kalman Stefánsson
rithöfundur
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
30% afsláttur af öllum
jólavörum
Jólasæ
ngurfatn
aður
Jóladú
kar
Jólasv
untur
Jólapú
ðar
Gildir alla helgina
Opið laugardag & sunnudag
11 - 18
Munið, það breytir enginn heiminum fyrir okkur,
við verðum sjálf að gera það. Upphafið að
nýjum, betri, fallegri heimi kemur ekki að utan,
kemur ekki sem ljósgeisli af himnum, kemur
ekki sem lagabreyting frá stjórnvöldum – heldur
kemur það að innan, frá hverjum og einum.