Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 86
86 snillingar Helgin 17.-19. desember 2010
Þ að kemur í ljós 10. janúar næstkomandi hvaða leikmaður
hlýtur Gullknött Alþjóða
knattspyrnusambandsins
árið 2010. Þetta er í fyrsta
sinn sem þessi verðlaun
verða afhent en þau urðu til
við samruna tvennra verð-
launa; Leikmanns ársins
hjá Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, sem valinn er
af þjálfurum og fyrirliðum
aðildarlanda sambands-
ins, og Gullknattarins sem
blaðamenn velja og franska
fótboltablaðið France Foot-
ball hefur afhent.
Lionel Messi hlaut hvor
tveggja þessara verðlauna
á síðasta ári og hann er til-
nefndur í ár ásamt félögum
sínum í Barcelona, Xavi
Hernández og Andrés
Iniesta. Þessir þrír voru
lykilmenn í frábæru liði
Barcelona sem vann tvöfalt
á Spáni, deild og bikar. Auk
þess léku Xavi og Iniesta
lykilhlutverk í liði Spánar
gullknötturinn Hver er besti leikmaður ársins 2010?
Barcelona og dvergarnir þrír
Lionel Messi, Xavi Hernández og Andrés Iniesta eru tilnefndir sem knattspyrnumenn ársins 2010. Þeir eiga það allir sameiginlegt að spila með spænska stórliðinu Barcelona.
10
Lionel Messi
Fullt nafn: Lionel Andrés Messi
Aldur: 23 ára
Staða: sóknarmaður
Hæð: 1,69 m
Þyngd: 67 kg
Leikir/mörk: 236/154
Landsleikir/mörk: 53/15
„Af hverju er Messi besti
leikmaður í heimi? Af því að
hann getur látið erfiða hluti
líta út fyrir að vera auðvelda.
Hann flýtur um völlinn og
allir halda að hann sé týndur.
En hann er það ekki og and-
stæðingar hans vita það.“
Johan Cruyff
Gjafakort – þá fá allir eitthvað fallegt!
Blue Lagoon gjafakort eru fáanleg í verslunum Bláa Lónsins
á baðstað, að Laugavegi 15, Blue Lagoon spa og Hreyfingu í Glæsibæ.
Gisting í Bláa Ló
ninu – Lækningalind Blue Lagoon húðvörur Líkamsrækt Einkaþjálfun
Aðgangur í Bláa Lónið Spa meðferðir Snyrtimeðferðir Nudd Veitingar á LAVA
Gjafakort
Xavi Hernández
Fullt nafn: Xavier Hernández Creus
Aldur: 30 ára
Staða: miðjumaður
Hæð: 1,70 metrar
Þyngd: 68 kg
Leikir/mörk: 546/55
Landsleikir/mörk: 98/8
„Í hvert sinn sem ég sé Xavi
spila þá ákveður hann regl-
urnar á vellinum – svo mikið
er víst.“
Diego Maradona
6