Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 50
Besta jólamyndin
The Nightmare Before
Christmas – 1993
Myndin er sprottin upp úr
frjóum huga leikstjórans Tims
Burton og er ef til vill ekki mjög
jólaleg við fyrstu sýn. Álits-
gjafar Fréttatímans sjá hins
vegar lengra en nef þeirra nær
og telja The Nightmare Before
Christmas bestu jólamyndina.
„Þegar jólasveininum hefur
verið rænt er ljóst að jólin
verða heldur óhefðbundin.
Þetta er djöfullega dásam-
legur jólasöngleikur um fallegt
hjartalag, stór mistök og þá
staðreynd að það er alltaf best
að vera maður sjálfur. Boðleg
áhorfendum á aldrinum sex til
sextíu og sex ára.“
– Erla Hlynsdóttir
„Ég hef alltaf elskað þessa
mynd. Út af tónlistinni og
áferðinni. Svo tengdi ég svo
lengi við aðalpersónuna. Jack
Skellington er leitandi sál
á toppi tilveru sinnar. Hann
ákveður að hann geti ekki
fundið hamingjuna þar sem
hann er staddur og brýtur alla
ramma í kringum sig. Rennur
svo á rassgatið með það og
uppgötvar að hamingjan er þar
sem hún hefur alltaf verið –
nákvæmlega hér. Snilld.“
– Birgir Örn Steinarsson
2. sæti
Fanny och Alexander – 1982
Svíinn Ingmar Bergman á aðra
bestu jólamyndina að mati
bíójólabarna Fréttatímans. Hér
segir leikstjórinn sögu krakk-
anna Fanny og Alexanders sem
takast á við lífið og tilveruna í
Svíþjóð á öndverðri 20. öld.
„Fanny och Alexander eftir
Bergman. Jólastemningin í
veislunni er svo mögnuð að
hún er nánast áþreifanleg.
Og litirnir, maður minn, aldrei
hefur rauði liturinn verið
fegurri en í þessari mynd. Svo
er persónusköpunin frábær
hvort sem um er að ræða þá
sem eru í stórum hlutverkum
eða litlum. Sagan inniheldur
hina fullkomnu blöndu trega og
húmors.“ – Sigríður Pétursdóttir
„Uppáhalds jólamyndin mín
er Fanny og Alexander. Með
því að fylgjast með jólaboði
Ekdahl-fjölskyldunnnar hríslast
alls konar notalegar og yfir-
spenntar jólaminningar fram.
Eina myndin sem ég ætla mér
að horfa á um hver jól en
geri auðvitað aldrei af því að
klukkutímarnir fimm finnast
ekki.“ – Einar Logi Vignisson
3. sæti
Love Actually – 2003
Leikstjórinn og handritshöf-
undurinn Richard Curtis segir
hér snúnar ástarsögur fjölda
fólks sem fléttast saman í
miðju jólabrjálæðinu í London.
Fjöldi góðra leikara kemur við
sögu og nægir í því sambandi
að nefna Bill Nighy, Colin
Firth, Liam Neeson, Emma
Thompson, Keira Knightley og
sjálfan Hugh Grant.
„Amerísk ástarvella á vitanlega
hvergi heima nema í ruslinu.
Bresk ástarvella er aftur á móti
alltaf velkomin í tækið mitt,
sér í lagi þegar henni fylgir
góður skammtur af húmor.
Ekki skemmir fyrir að í þessari
mynd fáum við að njóta Hughs
Grant sem ég hef af einhverjum
mjög svo óræðum ástæðum
alltaf verið eilítið heit fyrir.“
– Erla Hlynsdóttir
„Love Actually. Rómantísk,
fyndin og jólaleg. Kemur mér
alltaf í „jólaskapið“. Kannski
væmin, kannski klisja ... en
samt frábær að mínu mati!“
– Guðríður Haraldsdóttir
4. sæti
National Lampoons Christ-
mas Vacation – 1989
Chevy Chase fer á sínum
gamalkunnu kostum sem fjöl-
skyldufaðirinn Clark Griswold
sem er svo yfirdrifinn og öfga-
fullur í jólastússinu að hann
gæti vel verið Íslendingur. Þrátt
fyrir góðan vilja fer iðulega
allt úrskeiðis hjá kallinum og
jólahald stórfjölskyldunnar er
því í stórhættu.
„Það er ekkert hægt að
gera svona lista án þessarar
myndar. Allt sem ein jól gæti
prýtt og lýtt og hver þekkir
sig ekki í heimilisföðurnum
sem reynir að gleypa jólin sem
gubba bara á hann á móti?“
– Brynhildur Björnsdóttir
5. sæti
Miracle on 34th Street –
1947/1994
Þessi sígilda og hlýja jólamynd
hafnar í 5. sætinu. Hér segir frá
ljúfum, gömlum manni sem er
álitinn geðveikur þegar hann
heldur því fram fullum fetum
að hann sé jólasveinninn.
Natalie Wood leikur litla stúlku
sem hefur trú á þeim gamla.
„Kraftaverk á 34. stræti (1994).
Hef því miður ekki séð frum-
gerðina (1947) en þessi finnst
mér skemmtileg og mjög svo
jólaleg. Trú mín á jólasveininn
eykst við hvert áhorf.“
– Guðríður Haraldsdóttir
„Kraftaverkið á 34. Stræti.
Mæli eindregið með uppruna-
legu útgáfunni frá 1947. Þar er
Natalie Wood í hlutverki Susan,
hún var aðeins tíu ára þegar
myndin var tekin og frábær
leikkona. Í öðrum hlutverkum
eru til dæmis Maureen Ó Hara,
John Payne og Edmund Gwenn.
Fullkomin mynd til að horfa á
með börnum og barnabörnum
undir teppi. Heitt súkkulaði og
piparkökur fara einkar vel með
þessari mynd.“
– Sigríður Pétursdóttir
Einnig nefndar:
Gremlins – 1984
„Þessari mynd að þakka að ég
er svona þæg og góð.“
– Erla Hlynsdóttir
Die Hard – 1988
„Bara eitthvað með Bruce
Willis. Djöfullinn sem ég elska
þennan mann.“
– Lára Björg Björnsdóttir
Scrooged – 1988
„Klassísk jólasaga í kaldhæðn-
um búningi. Snilld.“ – Birgir Örn
Steinarsson
A Christmas Carol
„Þessi mynd hræddi úr mér
lifrina þegar ég var yngri en
ég horfði samt alltaf á hana á
jólunum.“ – Lára Björg Björnsdóttir
It’s a Wonderful Life – 1946
„Mynd sem sýnir fram á að
lífið er þess virði að lifa því,
sama í hve miklum hremm-
ingum maður lendir.“ – Sigríður
Pétursdóttir
About a boy – 2002
„Telst kannski strangt tiltekið
ekki til jólamynda.“ – Brynhildur
Björnsdóttir
Gone With the Wind – 1939
„My life is over. Nothing will
ever happen to me anymore.“
– þarf eitthvað að ræða þessa
dýrð?“ – Lára Björg Björnsdóttir
Jólamartröðin
besta jólamyndin
Bíómyndir eru margar hverjar vel til þess fallnar að kveikja notalegar minningar og koma fólki í jólaskap.
Fréttatíminn fékk nokkra kvikmyndaunnendur til að nefna bestu jólamyndirnar að þeirra mati. Eins og
sést á niðurstöðunum þurfa jólin alls ekki alltaf að vera í brennidepli í „jólamyndunum“ og stundum
vegur þyngra að ákveðin mynd tengist minningum um löngu liðin jól. Þannig kemur Gone With the Wind
við sögu hérna og þríleikurinn um Hringadróttins sögu var tilnefndur í einu tilviki. Flest stig fékk þó The
Nightmare Before Christmas sem er óumdeild jólamynd þrátt fyrir drungalegan titilinn.
Jack Skellington lærir sína dýrmætu lexíu um jólin í
The Nightmare Before Christmas.
Jólaveislan í Fanny och Alex-
ander eftir Ingmar Bergman
kemur með jólastemninguna
beint í æð.
Bill Nighy syngur jólalag eins
og honum einum er lagið í
Love Actually. Ástin og jólin.
Álíka góð blanda og malt og
appelsín.
Natalie litla Wood hefur
óbilandi trú á jólasveininum
í hinni sígildu og hugljúfu
Miracle on 34th Street.
Klaufabárðurinn Clark
Griswold getur með brölti
sínu bæði eyðilagt jólin og
bjargað þeim um leið.
Álitsgjafar: Erla Hlynsdóttir blaðakona, Guðríður Haraldsdóttir aðstoðarritstjóri Vikunnar, Einar Logi
Vignisson auglýsingastjóri, Lára Björg Björnsdóttir rithöfundur, Birgir Örn Steinarsson tónlistarmaður,
Sigríður Pétursdóttir, umsjónarkona Kviku og rithöfundur, Brynhildur Björnsdóttir blaðakona.
Þetta er djöfullega
dásamlegur jóla-
söngleikur um fallegt
hjartalag, stór mistök
og þá staðreynd að
það er alltaf best að
vera maður sjálfur.
Við erum sérfræðingar
í matvælaflutningum
Upplýsingar um afgreiðslustaði og opnunartíma
er að finna á landflutningar.is
Sendu jólapakkana með Landflutningum
og allt andvirði flutningsgjaldsins rennur
óskipt til jólaaðstoðar Mæðrastyrksnefndar.
Hámarksþyngd 30 kg eða 0,1 m3
890 kr.
GLEÐI
GJAFIR
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
44
05
5
50 kvikmyndir Helgin 17.-19. desember 2010