Fréttatíminn - 17.12.2010, Blaðsíða 36
Þ
að stafar elskulegheitum og alúð frá Karli
Berndsen og það er ekki til í honum hroki.
Sem einhverjir kynnu að hafa tileinkað
sér, hefðu þeir starfað með og fyrir heims-
þekkta hönnuði og hljómsveitir eins og
Karl gerði um árabil. En maðurinn, sem
situr hjá mér á köldu síðdegi, gæðir sér á súkkulaðibita-
kökum og drekkur kaffi við kertaljós, er eins ljúfur og af-
slappaður og hægt er að vera þegar hann segir mér sögu
sína. Engin venjuleg saga og enginn venjulegur maður!
Strákurinn frá Skagaströnd sem fór til London og starfaði
fyrir marga af frægustu hönnuðum heims, hljómsveitina
Sugababes og flúði til Íslands þegar aðrir flúðu héðan.
„Ég var nú ansi tregur að koma í heiminn,“ segir
hann. „Ég mætti 1. ágúst árið 1964 eftir fjórar tilraunir
móður minnar til að koma mér hingað. En ég var ekki
fyrr mættur en ég meig á þýsku ljósmóðurina og lækn-
irinn sagði: „Það verður eitthvað úr þessum strák, hann
er strax byrjaður að nota hann á sér!“
Æskuárin á Skagaströnd segir hann hafa verið yndis-
leg og telur það forréttindi að hafa fengið að alast upp í
frjálsræðinu úti á landi. Hann er yngstur þriggja barna
Ingibjargar Fríðu og Carls Berndsen; elst er Laufey,
svo kemur Ernst og loks Karl. Berndsen-ættin var stór
kaupmannsætt frá Danmörku og langafi Karls verslaði
við breska veldið og var mikill kaup- og kvennamaður,
að sögn Karls:
„Já, það voru margar „Hansdætur“ í sveitinni eftir
hann, blessaðan!“ segir Karl hlæjandi. „Foreldrar mínir
voru mjög ástríkir foreldrar. Pabbi var vélvirki og átti
vélaverksmiðju auk þess að vera stjórnarformaður
Skagstrendings sem átti allan togaraflotann fyrir
norðan. Afi rak Olís-stöðina á Skagaströnd og þar byrj-
aði ég að vinna fyrir mér ellefu ára gamall. Það hefur
alltaf skipt mig máli að geta séð um mig sjálfur. Ég var
auðvitað ekki alveg eftir uppskriftinni, fannst fremur
tilgangslaust að leika mér með bíla sem enginn keyrði
og kaus fremur að leika mér með brúður og Action Man
því þá gat ég gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn.
Ég var mikil félagsvera og þar sem mikil samheldni
var í fjölskyldunni var yfirleitt mannmargt á heimilinu.
Mér þótti sérstaklega gaman, þegar frænkurnar komu
í heimsókn, að liggja á hleri og heyra um hvað þær voru
að tala. Þar hófst áhugi minn á konum, hári og klæðn-
aði, myndi ég telja! Föður mínum líkaði kannski ekki
alltaf að ég skyldi leika mér með brúður en hann gagn-
rýndi mig aldrei, heldur fór að leita að framtíðarstarfi
fyrir mig um leið og ég hafði aldur til!
Við faðir minn náðum mjög vel saman þegar kom
að öllu sem sneri að veiði og byssum. Heimilið var ein
karlmennska, ef svo má á orði komast, og þegar ég
var fjórtán ára ég fór einn á rjúpu. Ég var ákveðinn í
„Við
þurfum
ekki öll
að vera
gordjöss“
Karl Berndsen er einn af vinsælustu
mönnum landsins. Þessi 46 ára útlitssér-
fræðingur hefur brætt hjörtu kvenna á sjón-
varpsskjánum undanfarin ár með einlægri
framkomu sinni og yfirburða þekkingu á öllu
sem viðkemur útliti. Anna Kristine settist niður
með Karli og ræddi við hann um uppvöxtinn
á Skagaströnd, glamúrlífið í útlöndum og
hvernig konur honum þykja vera fallegastar.
Ljósmyndir/Hari
Föður mínum líkaði kannski ekki alltaf að ég
skyldi leika mér með brúður en hann gagnrýndi
mig aldrei, heldur fór að leita að framtíðarstarfi
fyrir mig um leið og ég hafði aldur til.
Framhald á næstu opnu
36 viðtal Helgin 17.-19. desember 2010