Fréttatíminn - 17.12.2010, Side 59
Fært til bókar
Reyktir og steiktir Íslendingar
Ef eitthvað sameinar örþjóðina Ís-
lendinga er það hangikjötsát um jól. Ný
könnun MMR sýnir að 73% Íslendinga
ætla að borða hangikjöt á jóladag.
Þótt ekkert komi fram um meðlætið
má nokkurn veginn treysta því að með
verður uppstúf og kartöflur, Ora-grænar
baunir og rauðkál. Sumir skella sér
eflaust á dós eða krukku en aðrir steikja
rauðkálið sjálfir á pönnu og hantera það
eftir kúnstarinnar reglum – svona af því
að það eru jól. Hefðin er líka sterk á að-
fangadag. Tæplega 53% munu þá borða
hamborgarhrygg, væntanlega með
brúnni sósu og brúnuðum kartöflum.
Svo allt sé eftir bókinni drekka menn
væntanlega blöndu af malti og appelsíni
með hangikjötinu og hamborgarhryggn-
um, hvort heldur er á aðfangadag eða
jóladag, án þess að það hafi verið kann-
að sérstaklega. Færri borða fugla, 9,8%
rjúpu og 8,3% kalkún á aðfangadag.
Sárir af ýmsum ástæðum
Aldur er afstæður og ekki sama hver
um vélar þegar frá honum er greint.
Ómar Valdimarsson blaða-
maður bloggar oft vit-
rænt og skemmtilega.
Fyrr í vikunni mátti
lesa á síðunni hans:
„Manni getur nú sárn-
að út af minna. Vísir.is
segir frá því að þýskur
maður eigi yfir höfði
sér ákæru fyrir mann-
drápstilraun fyrir að hafa skorið undan
„eldgömlum“ ástmanni ungrar dóttur
sinnar. Sá „eldgamli“ er 57 ára. Hann er
því þremur árum yngri en ég. Samt tel
ég mig ekki eldgamlan, eða ævafornan,
sem er sjálfsagt næsta stig fyrir ofan
hjá unglingunum á Vísi. En það sárnar
fleirum en mér, sé ég í fréttum. Það
er því rétt að taka undir það með Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni að það væri ekki
nema sjálfsagt og eðlilegt að hann og
félagar hans, sem voru kærðir í New
York og verða nú væntanlega kærðir
hér heima fyrir meint bankarán, fái
bætur fyrir það mikla tjón og öll þau
óþægindi sem málaferli skilanefndar
Glitnis hafa bakað þeim. Skárra væri
það nú ef þeir fengju ekki bætur! Þeir
eiga auðvitað að fá bætur um leið og
þeir eru búnir að borga okkur hinum
bætur fyrir óþægindin sem við höfum
orðið fyrir af völdum meðferðarinnar
á Glitni, Flugleiðum, Baugi, Stoðum og
hvað þetta nú allt heitir (eða hét). Alveg
um leið!“
Stunið í jólalagi
Þeir sem eldri eru en tvævetur muna eft-
ir Serge Gainsbourg og Jane Birkin sem
stundu sig í gegnum lagið „Je t’aime ...
moi non plus“ árið 1969. Lagið lostafulla
gekk fram af siðprúðum borgurum þess
tíma og siðgæðisverðir Ríkisútvarpsins
bönnuðu flutning þess, eins og Þórarinn
J. Magnússon Samúelsritstjóri rifjar upp
í pistli á Pressunni. En það er ekki lengur
árið 1969. Á aðventu jóla ársins 2010
hljómar lagið góða í Ríkisútvarpinu en
nú er það Baggalútur sem stynur með
nautnafullum íslenskum texta. Fullnæg-
ingarlagið fræga er orðið að jólalagi.
Þórarinn rifjar það upp að pempíu-
hátturinn var ekki eingöngu bundinn við
Ríkisútvarpið íslenska. Útvarpsstöðvar
víða um bönnuðu flutning lagsins..
Framtíðarreikningur
– gjöf til framtíðar
Þegar keypt er gjafabréf fyrir 4.000 kr. eða meira
á Framtíðarreikning barns fylgir bókin Jóla-
sveinarnir 13 með. Gjafabréf á Framtíðar-
reikning er tilvalin jólagjöf fyrir ættingja og aðra
sem vilja gefa jólagjöf sem vex með barninu.
Þú getur gengið frá gjafabréfi á Framtíðarreikning
og nálgast jólabókina í næsta útibúi Arion banka.
Smiðsbúð 6, 210 Garðabæ, Sími 564 5040
w w w . h i r z l a n . i s
Ti
lbo
ð
25
%-4
0%
af
ö
ll
um
f
at
as
ká
pu
m
Gleðileg Jól
Jólaverð 21.900,-
Fullt verð 28.900,-
blátt, grátt, svart,
fjólublátt, brúnt og
vínrautt
Support
Ti
lbo
ð
Bókahillur
í úrvali
Margar gerðir af
sjónvarpsskápum
Jólaverð 15.500,-
Fullt verð 20.300,-
Ti
lbo
ð
kr. 18.800,-
Helgin 17.-19. desember 2010