Fréttatíminn - 17.12.2010, Side 64
Beðið eftir Óla
„Vill ekki þjóðaratkvæðagreiðslu“
„Við munum ekki leggja það til að
málið fari í þjóðaratkvæðagreiðslu enda
er sú ákvörðun á herðum annarra en
okkar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra spurður um lyktir í
Icesave-málinu.
Verður hádegið þá sirka
um hádegisbil?
„Vilja seinka klukkunni“
Fjórtán þingmenn úr öllum
flokkum undir forystu
Guðmundar Steingríms-
sonar hafa lagt fram
þingsályktunartillögu
á Alþingi um að ríkis-
stjórninni verði falið að
seinka klukkunni á Íslandi
um eina klukkustund.
Ber þá að flýta klukkunni?
„Tíð innbrot í dagsljósi“
Undanfarnar fjórar vikur hefur verið
brotist inn í ellefu heimahús í Hafnar-
firði og Garðabæ. Langflest innbrotin
hafa átt sér stað að degi til og fáein að
kvöldlagi.
Má þá ekki drösla pabba
gamla á Vog?
„Líkti þjóðinni við fjölskyldu alkóhól-
ista“
Jón Gnarr borgarstjóri sagði, þegar
hann gerði grein fyrir fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar, að það mætti líkja
þjóðinni við fjölskyldu alkóhólista sem
búinn væri að vera fullur samfleytt í
mörg ár.
Mannauðseining tekur völdin
„Breyta á lögum um Stjórnarráðið“
Forsætisráðuneytið hefur nú hafið
vinnu að frumvarpi til breytinga á
lögum um Stjórnarráð Íslands. Meðal
annars verður lagt til að pólitískum að-
stoðarmönnum verði fjölgað og sérstakri
mannauðseiningu verði komið á fót.
Þótt fyrr hefði verið
„Samfélagsleg ábyrgð Landsbankans“
Finnur Sveinsson hefur verið ráðinn
til Landsbankans í stöðu sérfræðings í
samfélagslegri ábyrgð.
Borgarstjóri lítur til framtíðar
„Vildi geta boðið ókeypis handklæði“
„Ég vildi óska þess að hún [fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar] væri
skemmtilegri, að við gætum boðið öllum
borgarbúum ókeypis í strætó og ókeypis
í sund og ókeypis handklæði. Kannski
náum við að gera það næst. Það væri
gaman,“ sagði Jón Gnarr.
Hvað ef hann þarf að pissa?
„Ætlar að hlaupa á bretti í sólarhring“
Gunnlaugur Júlíusson ofurhlaupari
ætlar að freista þess um komandi helgi
að hlaupa í sólarhring samfleytt á
hlaupabretti.
Guð blessi Geir
„Neyðarlögin ekki brot á
EES-samningi“
Eftirlitsstofnun
EFTA (ESA)
ákvað að loka
sjö kvört-
unarmálum er
varða íslensku
neyðarlögin þar
sem stofnunin telur
að lögin brjóti ekki gegn
ákvæðum EES-samningsins.
64 viðhorf Helgin 17.-19. desember 2010
Það eru litlar líkur á því að karlar fylgi kon-
um sínum detti þeim í hug að rápa dagpart
í Smáralind eða Kringlunni. Raunar er ólík-
legt að konurnar kæri sig um að hafa þá í
eftirdragi í slíkum ferðum, jafnvel þótt jólin
séu á næsta leiti. Málið horfir öðruvísi við
ef hjónin eru saman á ferðalagi ytra. Heim-
sóknir í verslunarkeðjur eru óhjákvæmi-
legur fylgifiskur utanferða, hvað sem líður
kreppu og falli íslenskrar örkrónu. Þótt atið
sé minna nú en í óðærinu svokallaða, skjót-
ast samt margir til nálægra borga, meðal
annars til að gera góð kaup í aðdraganda
jóla. Karlar sem hafðir eru með í slíkar ferð-
ir verða að undirbúa sig. Konurnar stjórna
för, þeir fylgja í humátt á eftir. Þær velja
búðirnar og hversu lengi er dvalið í hverri
– og hvort keypt er. Hlutverk karlsins er að
samþykkja. Vel taminn karl samþykkir það
sem hann veit að konan ætlar að kaupa. Það
styttir dvölina í viðkomandi verslun. Hann á
sér hvort eð er ekki undankomuleið.
Karlar eru að jafnaði hávaxnari en konur.
Þennan mun eiga þeir að nýta sér í hvert
sinn er þeir ganga inn í verslun í stórri
verslunarmiðstöð. Í sumum þeirra eru
nefnilega stólar sem sjálfsagt er að nýta á
meðan konan kannar vöruúrvalið. Sitji karl
sem fastast í stólnum kemur konan með það
sem henni þykir fýsilegt og sýnir honum.
Þar getur hann líka geymt það sem konan
hefur ákveðið að kaupa og þarf því ekki að
halda á því á meðan dvalið er í versluninni.
Í stólnum má jafnvel gleyma sér um
stund og virða fyrir sér viðskiptavini. Þeir
eru af öllum stærðum og gerðum og fara
mishratt yfir. Konur eru í meirihluta. Sum-
ar einar, aðrar með karla eða börn í fylgd. Í
stórborginni er mannlífið fjölbreytt. Augu
múslímakvenna gægjast undan höfuðbún-
aði. Þær toga ekki síður í litríkar tuskurnar
en hinar. Hommapar fer hratt yfir og velur
bleikt. Sá sem situr í stólnum og bíður veltir
því fyrir sér hvort þessir tveir karlar séu að
velja föt fyrir sólarlandaferð á miðjum vetri.
Föli andlitsliturinn verði að hverfa. Á hand-
leggjum þeirra hanga flíkurnar, þunnar og
fínlegar, bleikar og fjólubláar. Báðir eru í
mittisjökkum úr leðri. Annar í fjólubláum.
Hann er í samlitum skóm.
Hinn hefur valið sér hvítan
hatt. Það er ekki að sjá að
þessir menn hafi minnsta
áhuga á hvíldarstólum
verslunarinnar. Um leið og
sá í fjólubláu skónum velur sér
næfurþunnt klæði sem helst lík-
ist náttbuxum hlammar karl sér
við hlið þess sem þar situr fyr-
ir. Hann er hvíldinni feginn og
truflar ekki þann sem fyrir situr
heldur nikkar til hans. Hann er
með tvo poka, merkta öðrum
verslunum. Konan hans er
greinilega á yfirreið í
annarri deild. Saman
bíða sitjendurnir þess
sem verða vill. Hom-
maparið hverfur úr aug-
sýn beggja.
Stöku stóll í verslun dugar þó
skammt. Konurnar fara hratt og vítt yfir.
Því skiptir höfuðmáli fyrir hvern karl sem
fylgir í rápi að kynna sér upplýsingaskilti
verslunarmiðstöðvanna. Þar eru ekki að-
eins sýndar verslanir hverrar hæðar heldur
einnig veitingastaðir. Með reglulegri við-
komu á þeim auðvelda karlar sér daginn
til muna.
Tökum Kaupmannahöfn sem dæmi.
Þangað fara flestir Íslendingar sem á annað
borð leyfa sér utanlandsferðir um þessar
kreppumundir. Leið flestra liggur um Strik-
ið og nágrenni og fáir láta Magasin fram
hjá sér fara, stórverslunina fornfrægu við
Kóngsins Nýjatorg. Hún var um hríð í ís-
lenskri eigu – eða að láni að minnsta kosti
– og gjarna kölluð Nonnabúð í höfuð aðal-
eigandans. Nú er hún Nonnabúð stekkur –
en ekki Magasin sem slíkt. Stórverslunin
blómstrar en nú í eigu enskra. Það virðist
af einhverjum ástæðum fara minna í taug-
arnar í dönskum en þegar krúnudjásnið var
í íslenskum höndum.
Í verslunarferð í Magasin er efsta hæðin
mikilvægust hverjum karli sem þangað rat-
ar inn í fylgd konu sinnar; skiptir sköpum.
Hún er vin þar sem næra má kropp og hvíla
fætur. Nái karl konu sinni þangað er honum
borgið um stund. Í boði er smurbrauð sem
engir gera betur en Danir. Úrvalið er mikið
og hver sneið vel útilátin, hvort heldur valin
er steik, áll, lax eða róstbíf.
Mæla má með bjór með smurbrauðinu.
Þorsti sækir á þegar þræddar eru hæðir.
Í boði er lítill, miðlungs og stór. Hóf er
best í þessum efnum eins og öðrum. Lít-
ill dugar trauðla, slekkur ekki þorsta hins
langþreytta. Stór er hins vegar full grófur
skammtur í einu. Karlinn verður að hafa
stjórn á sér, má ekki freistast í kæruleysi
vímunnar. Miðlungsstóri bjórinn hentar
með einni sneið. Ef valið er róstbíf rífur
piparrótin vel í, hreinsar nefgöng og enn-
isholur. Miðlungsstóri bjórinn gerir það að
verkum að karlinn þolir næsta hálfan annan
tímann í verslunarmiðstöðinni. Ef laust er
pláss við glugga er sjálfsagt að setjast þar
og horfa yfir iðandi borgarlífið. Þeir sem
hraðast fara eru eflaust á leið á Hvít, þar
sem Jónas drakk forðum. Margur Íslend-
ingurinn hefur fylgt hans fordæmi, án þess
þó að fótbrjóta sig.
Elti menn konur sínar út úr miðbænum
í enn stærri danska verslunarmiðstöð, t.d.
Fields á Amager, gildir sama árveknin.
Glöggur karl finnur þar átján veitingastaði.
Flestir eru skyndibitastaðir, fólk er á hrað-
ferð. Í boði eru borgarar, pitsur og pylsur en
líka heldur fínni staðir, steikhús og jafnvel
sushi-staður.
Ólíklegt er að tími gefist til hangs á
skárri veitingastöðunum. Því verða menn
að miða á hina smærri með ákveðnu milli-
bili, hvíla bein og kæta bragðlauka – og
muna að halda sig við þann millistóra. Í
Fields, eins og í Magasin, er það efsta hæð-
in sem líknar göngumóðum. Þar er matur,
þar er drykkur . Efsta hæðin er punkturinn
yfir i-ið. Vegna hennar dvelur fólk lengur –
og kaupir meira. Þetta vita þeir sem skipu-
leggja þessi samkunduhús nútímans.
Líkn göngumóðum
Te
ik
ni
ng
/H
ar
i
Þ
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
HELGARPISTILL
Bröns
alla laugardaga og sunnudaga
Aðalstræti 2 | 101 Reykjavík | Sími: 517 4300 | www.geysirbistrobar.is
Verð
aðeins
1.795
með kaffi
eða te
VIkAn SEm VAR