Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 84

Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 84
84 bíó Helgin 17.-19. desember 2010 D anny Boyle hitti beint í mark með Slumdog Millionaire árið 2008. Myndin tryggði honum Ósk­ arsverðlaunin fyrir leikstjórn auk þess sem myndin var valin besta myndin og sópaði til sín sex Óskars-styttum til viðbót- ar. Boyle er nú kominn langan veg frá fátækrahverfum Ind- lands þar sem hann segir í 127 Hours á áhrifaríkan hátt frá hremmingum fjallgöngu- manns sem lendir í sjálfheldu í eyðimörk í Utah. Myndin byggist á sannsögulegum at- burðum sem áttu sér stað árið 2003 þegar grjóthnullungur féll á fjallgöngumanninn Aron Ralston sem sat pikkfastur í klettum Utah í nær fimm daga með bjargið ofan á öðrum handleggnum. Að lokum gat hann ekki annað gert en skor- ið af sér handlegginn til þess að losna og eftir þá aðgerð tók við löng ganga áður en hann komst undir manna hendur. 127 Hours hefur vakið gríð- arleg viðbrögð þar sem hún hefur verið sýnd og þegar er byrjað að spá henni velgengni á næstu Óskarsverðlaunahá- tíð. Myndin var sýnd á kvik- myndahátíðinni í Toronto, var lokamynd kvikmyndahátíðar- innar í London og almennar sýningar hófust í Bandaríkj- unum í byrjun þessa mánaðar. Fréttir hafa borist af einhverj- um áhorfendum sem þurftu á læknishjálp að halda á meðan þeir sátu undir sýningu mynd- arinnar. Einn fékk aðsvif og var trillað út úr kvikmynda- húsinu á börum og annar fékk ofsahræðslukast. Þessi áföll hafa ekki verið rakin beint til ansi nákvæms atriðis með af- limuninni en slíkt verður þó að teljast líklegt. Fleiri svipað- ar sögur hafa borist úr kvik- myndasölum þar sem myndin hefur verið sýnd. Gagnrýnendur hafa tekið 127 Hours fagnandi og ausið hana lofi. Þannig stendur hún til dæmis í 93% hjá Rotten Tom­ atoes og þykir flestum mest til leiks James Franco í aðal- hlutverkinu koma auk þess sem Boyle er sagður sýna allar sínar bestu hliðar sem leikstjóri. Franco er einna þekktastur sem vinur og and- stæðingur Kóngulóarmanns­ ins í Spiderman-myndunum þremur auk þess sem hann fór á kostum sem hasshaus í Pin­ apple Express á móti Seth Ro- gen. Hann þykir mjög líkleg- ur til að hreppa Óskarinn fyrir túlkun sína á angist göngu- garpsins sem stendur frammi fyrir því að þurfa að sarga af sér handlegg. Boyle er fjölbreyttur kvik- myndagerðarmaður sem er lítið fyrir að endurtaka sig en hann á að baki Shallow Grave, Trainspotting, 28 Days Later, A Life Less Ordinary, The Beach, Sunshine og svo Slumdog Million aire. Hann hafði haft hug á að kvikmynda þjáningar Arons Ralston í fjögur ár áður en hann lét til skarar skríða en hann segir myndina vera spennumynd um mann sem getur ekki hreyft sig. Gert er ráð fyrir að 127 Hours komi í kvikmyndahús á Íslandi í lok janúar.. Þórarinn Þórarinsson toti@frettatiminn.is bíó  Danny Boyle: leggur raunir á leikara og áhorfenDur Svimandi 127 klukkustundir 127 Hours er spennu- mynd um mann sem getur ekki hreyft sig. n ýjasta mynd breska leikstjórans Micha-els Winterbottom, The Killer Inside Me, hefur vakið mikil viðbrögð þar sem hún hefur verið sýnd og er að sama skapi umdeild þótt gagnrýnendur hafi víðast ausið hana lofi. Íslendingum gefst nú loksins möguleiki á að sjá myndina þar sem hún verður frumsýnd í Bíó Paradís í dag, föstudaginn 17. desember. The Killer Inside Me byggist á skuggalegri skáldsögu Jims Thompson og segir frá að- stoðarlögreglustjóranum Lou Ford í smábæ í Texas árið 1952. Hann er hvers manns hugljúfi en undir traustu yfirbragðinu leynist sannkall- aður djöfull í mannsmynd. Það sem hann kallar „veiki“ sína felur nefnilega í sér að hann nýtur þess að nauðga og myrða. Hann var við það að lenda í fangelsi mörgum árum áður en fóstur- bróðir hans tók þá á sig sökina. Nú gerir „veikin“ hins vegar vart við sig á ný með skelfilegum afleiðingum. Myndin er vægast sagt ofbeldisfull og ekk- ert er gefið eftir þegar kafað er ofan í dýpstu myrkur sálarteturs aðstoðarlögreglustjórans. Viðkvæmt fólk er varað við og þeir sem vilja ekki missa af þessari mögnuðu mynd ættu að búa sig vel andlega undir fund sinn með „besta syni“ Central City. Casey Affleck þykir sýna stórleik í hlutverki Lou en Jessica Alba og Kate Hudson eru einn- ig í veigamiklum hlutverkum.  frumsýning The killer insiDe me Skuggahliðar mannssálarinnar Morðóður jólasveinn Bíó Paradís býður upp á sannkall- aðan hvalreka fyrir þá unnendur lélegra hryllingsmynda sem komnir eru í jólaskap 18. desember. Þá verður sýnd myndin Silent Night, Deadly Night frá árinu 1984. Myndin segir frá unglingi sem sturlast þegar foreldrar hans eru myrtir og tekur upp á því að myrða fólk á subbulegan hátt íklæddur jólasveinabúningi. Myndin þykir sérlega léleg, sem ljær henni hins vegar ómótstæðilegan sjarma auk þess sem aðalleikarinn Eric Freeman stendur sig eins og hetja með öxina. Laxinn frá Ópal Sjávarfangi er í þægilegum og fallegum sneiðum, tilbúinn á hátíðarborðið. Allur lax frá Ópal Sjávarfangi er beinlaus, þurrsaltaður og unninn úr fersku hráefni. Láttu bragðið og verðið koma þér skemmtilega á óvart. esta hátíðarbragðiðB Casey Affleck þykir frábær í hlutverki geðbiluðu löggunnar Lou Ford. Breski leikstjórinn Mike Leigh hefur einstakt lag á því að gera mann- legar og látlausar bíómyndir sem rista djúpt og snerta við fólki þótt þær líði stundum áfram eins og ekkert sé að gerast. Þetta er einmitt tilfellið í hans nýjustu mynd, Another Year, sem verður frumsýnd á Íslandi um helgina en þar koma öndvegis leikarar súrsætri sögu til skila með mikilli hægð. Leigh hóf feril sinn sem leikskáld og sviðsleikstjóri en fyrsta kvikmynd hans byggðist á eigin verki, Bleak Moments, árið 1971 sem vakti mikla athygli. Hann tók sér síðan langt hlé frá bíómyndum og lét ekki til skarar skríða fyrr en árið 1988 með High Hopes. Síðustu myndir hans eru Vera Drake, Topsy-Turvy, Naked og hin áhrifaríka Secrets&Lies sem var sýnd á Íslandi fyrir nokkrum árum við góðar undirtektir. Í Another Year segir Leigh frá rosknum hjónum sem eru sátt við líf sitt en fólk í kringum þau leitar endalaust til þeirra með vandamál sín. Kvikmyndatímaritið Empire gefur myndinni fimm stjörnur og lofar hana í hástert. Ruth Sheen og Jim Broadbent leika gömlu hjónin en Broadbent er leikari þeirrar náttúru að ekkert virðist honum ofviða og hann er jafnvígur á grín, hádramatík og allt þar á milli.  frumsýning anoTher year Kraftur látleysisinsGömlu hjónin eru sátt við sitt en sömu sögu er ekki að segja af fólkinu í kringum þau. James Franco er spáð Óskarsverðlaunum fyrir frammistöðu sína í 127 Hours en óhætt er að segja að hann beri myndina uppi þar sem hann er nánast einn á tjaldinu alla myndina. Breski leikstjórinn Danny Boyle er óhræddur við að feta ótroðnar slóðir. Nýjustu myndar hans, 127 Hours, er víða beðið með mikilli eftirvæntingu þótt einhverjir sem hafa séð hana hafi fengið í magann.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.