Fréttatíminn - 17.12.2010, Page 90
90 tíska Helgin 17.-19. desember 2010
no5 - st. 41-46 kr. 4195
no4 - st. 37-42 kr. 4195
no6 - st. 37-42 kr. 4560
Tilvalin
jólagjöf
Grensásvegi 8
S: 517-2040
www.xena.is
Opnunartími
virka daga 12-18
laugardag 12-16
no3 - st. 37-42 kr. 4560
no2 - st. 37-42 kr. 4195
no1 - st. 41-46 kr. 3350
Kauptu stílinn amber rose fer eigin leiðir
Óhefðbundin herferð
Nýjasta herferð tískuvörufyrirtækisins Givenchy hefur
nýlega verið sett af stað og vakið gríðarlega athygli. Þar
er fyrirsætan Stephen Thompson í fararbroddi ásamt
Daphne Groeneveld. Það sem hefur vakið mesta athygli
varðandi herferðina er að andlit fyrirtækisins, Stephen,
er albínói. Fyrirsæturnar sitja mjög þétt saman og hefur
hár Daphne verið aflitað hvítt til þess að passa við hans
háralit.
Auglýsingar Givenchy brjóta í bága við hefðbundnar
herferðir og leyfir skapandi hugsunarhætti að stjórna ferð-
inni. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem fyrirtækið tekur upp
á því að nota óvenjulegar fyrirsætur því í fyrra var kyn-
skiptingurinn Lea T andlit fyrirtækisins. -kp
Alltaf vel til fara
Ashanti Shequoiya Douglas hefur verið ein þekktasta söngkona Bandaríkjanna
síðustu ár. Hún hóf feril sinn ung
að aldri, hefur selt mörg hundruð
þúsund platna og unnið með helstu
tónlistarmönnum samtímans. Það
er þó ekki eingöngu rödd hennar
sem kemur henni svo langt á
framabraut. Hún er bæði falleg og
hefur góðan smekk þegar kemur að
fatavali. Hún er alltaf vel til fara og
fylgist með nýjustu tískunni.
Fókus 11.990 kr.
Vero Moda 3.990 kr.
Cosmo 14.990 kr.
Kultur 36.990 kr.
Þrír
sérhannaðir
kjólar
Einn brúðarkjóll er aldrei
nóg fyrir ríka og fræga
fólkið. Hin 29 ára Nicole
Richie giftist söngvar-
anum Joel Madden um
síðustu helgi og hafði hún
þrjá kjóla til skiptanna.
Mikið var lagt upp úr
kjólunum og fékk hún
heimsþekkta hönnuði til
að sérsauma þá á sig. Hún
vildi hafa allt fullkomið.
Þetta var mikill dagur
og eftirminnilegt kvöld.
Stór tjöld voru sett upp,
lifandi fíll var á svæðinu
og veglegar veitingar í
boði. Gestalistinn var ekki
af verri endanum; stór,
langur og helstu stjörn-
urnar mættu í sínu fínasta
pússi. Það vakti þó mikla
athygli að fyrrum vinkona
Nicole, Paris Hilton, var
ekki á svæðinu. -kp