Læknablaðið - 15.04.1987, Side 25
LÆKNABLAÐIÐ
129
tvö tilfelli, eða 3 af hundraði, eru í aldurshópnum
9-12 ára.
Sjúkdómseinkenni: Við skoðun sjúkraskýrslna
hefir börnunum verið skipt í þrjá flokka m.t.t.
einkenna við komu. Þó var sjúkraskýrsla einnar
stúlku það ófullkomin að ekki var hægt að ráða
af henni hversu alvarleg einkenni stúlkunnar
voru.
Í flokki I, sem telur 18,8 af hundraði barnanna,
eru þau, sem höfðu væg einkenni við komu, svo
sem hálssærindi, kyngingarörðugleika og hita
(yfir + 38° C).
í flokki II eru 65,6 af hundraði barnanna: Höfðu
þau alvarleg einkenni, svo sem
öndunarörðugleika, öndunarsog og slefu.
í flokki III eru síðan þau börn, sem voru verulega
meðtekin við komu á sjúkrahúsið, eða höfðu auk
einkenna barna í flokki II, bláma, einkenni losts
og voru aðframkomin. Reyndust það 15,6 af
hundraði barnanna eða 10 börn.
Sést á mynd 4 nánari skipting milli hópanna.
Á mynd 5 sést dreifing barnanna m.t.t. aldurs og
einkenna. Ef sú dreifing er skoðuð nánar og
prófuð tölfræðilega með breytugreiningu kemur í
ljós að ekki er marktækur munur á
aldursdreifingu innan flokkanna þriggja.
Meðferðarferli: Svo sem áður segir voru börn
með öndunarörðugleika skoðuð án tafar af
vakthafandi lækni HNE-deildar þegar við komu á
sjúkrahúsið. Með tilliti til einkenna barnsins og
speldisþrota var meðferð síðan ákveðin í samráði
við reyndan háls-, nef- og eyrnalækni. Voru 20
börn lögð á legudeild HNE-deildar til meðferðar
án þess að þörf væri pípusetningar. Var fjórum
þeirra gefið breiðvirkt sýklalyf um munn en
sextán fengu sýklalyf í æð, oftast klóramfenikól,
auk barkstera m.t.t. einkenna og likamsþunga.
Var náið fylgst með börnunum þar til þau voru
einkennalaus. Fjörutíu og fimm börn eða riflega
tveir þriðju hlutar barnanna, fengu pípu setta
Symptoms:
Severe
Moderate
Mlld
Number o( cases
Mynd 4. Symptoms at admission.
Number of cases
|
□ Mild
~t Moderate
I Severe
4
i \mmmm
m —M,
0123456789 10 11 12
Age in years
Mynd 5. Symptoms - age distribution.