Læknablaðið - 15.10.1989, Blaðsíða 28
296
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla VI sýnir dreifinguna eftir ávísanafjölda
sem hver sjúklingur fékk. Töflumar
gefa upplýsingar um mjög mismunandi
ávísanavenjur, annars vegar fyrir sefandi lyf
og róandi lyf og hins vegar fyrir svefnlyf
og að nokkru geðdeyfðarlyf. Flestir (78%)
þeirra sem fá ávísað sefandi lyfjum og róandi
lyfjum í mánuðinum fá 30 SDS eða minna.
Hins vegar fá nærri 75% þeirra sem er ávísað
svefnlyfjum meira en 30 SDS og 65% þeirra
sem er ávísað geðdeyfðarlyfjum fá meira
en 30 SDS. A töflu VI kemur fram að mjög
svipaður fjöldi fékk einn lyfseðil með sefandi
lyfjum og róandi lyfjum og hafði fengið sem
svaraði eins mánaðar skammti eða minna af
lyfjunum. Hins vegar fá 84-87% þeirra sem
er ávísað svefnlyfjum og geðdeyfðarlyfjum
aðeins einn lyfseðil fyrir hvorri tegund.
Samkvæmt þessu ávísa læknar verulegum
fjölda sjúklinga meiru en sem svarar einum
SDS á dag af þessum lyfjum á hverjum
lyfseðli. Að því er varðar geðdeyfðarlyfin
getur verið um að ræða eðlilega skýringu
vegna þess að skammta þarf lyfin eftir verkun
og margir þurfa stærri skammt en einn SDS á
dag. En að því er varðar svefnlyfin vekur þetta
upp þá spumingu hvort ávísað sé óþarflega
miklu eða hvort SDS séu of lágt áætlaðir
miðað við venjulega notkun. Tiltölulega fáir
sjúklingar fá örvandi lyf og væntanlega allir
Table VI. Percentage distribution of the number of pre-
scriptions per person per month by ATC-gropus.
Number of prescriptions
Number of
ATC-groups 1 2 3 or more All prescriptions
Neuroleptics .. 76.9 17.5 5.6 (100.0) 468
Tranquillizers.. 77.8 14.6 7.6 (100.0) 2,827
Hypnotics 84.1 11.7 4.2 (100.0) 2,162
Antidepressants 87.4 11.2 1.4 (100.0) 652
Stimulants .... 64.5 12.9 22.5 (99.9) 31
X2 =66.373 df=6 p<0.00001.
með sérstöku leyfi landlæknis, svo að ekki er
ástæða til að ræða frekar skammtadreifingu og
lyfseðlafjölda þeirra hér.
Vilji menn hafa uppi einhverjar ágiskanir um
hvort eitthvað sé athugavert við ávísanir á
róandi lyf og svefnlyf, má ef til vill telja að
um ofnotkun sé að ræða ef einstaklingar fá
ávísað meiru en 90 SDS í mánuðinum eða
fá þrjá eða fleiri lyfseðla. Tæp 5% karlanna
og 3,5% kvennanna eða 4% þeirra, sem fá
róandi lyf, fá meira en 90 SDS á mánuði og
11% karla og rúm 9% kvenna fá tilsvarandi
magn af svefnlyfjum á mánuði. Þrjá eða
fleiri lyfseðla fyrir róandi lyfjum fá 7,6%
(9% karla og tæp 7% kvenna) á mánuði, en
4,2% (5% karla og 3,6% kvenna) fá þrjá eða
fleiri lyfseðla vegna svefnlyfja í mánuðinum.
Samkvæmt þessu má áætla að hugsanlega sé
eitthvað athugavert við notkun róandi lyfja
0,1-0,2% fólks, sem er eldra en 15 ára, og
sama gildir um svefnlyf.
Á töflu VII er sýndur fjöldi SDS á 1000
íbúa 15 ára og eldri í fimm geðlyfjaflokkum
skipt eftir kyni ásamt algengi geðlyfjaávísana
handa fullorðnum í mánuðinum. Þar sést að
konum er ávísað 57% fleiri dagskömmtum
á 1000 íbúa en körlum. Munurinn á sefandi
lyfjum milli karla og kvenna er hverfandi, en
konur fá 70% meira af þunglyndislyfjum og
svefnlyfjum, og tæplega 50% meira af róandi
lyfjum.
Þær upplýsingar sem fást með því að athuga
fjölda SDS á hverja 1000 íbúa gefa ekki nema
takmarkaðar upplýsingar um þann fjölda fólks
sem notar geðlyf. Til þess að áætla hann
verður að athuga hve mörgum einstaklingum,
15 ára og eldri, var ávísað geðlyfjum og
bera saman við íbúafjöldann sem hefur náð
15 ára aldri. Á töflu VII kemur fram, að
heildaralgengi geðlyfjanotkunar er í kringum
Table VII. Prevalence of prescriptions for psychotropic drugs by sex and ATC-groups and DDD per 1000 popu-
lation aged 15+ years (± standard error).
ATC-groups Prevalence per 1,000 population DDD per 1,000 population
M F M F
Neuroleptics 6.1 ±0.43 7.5±0.45 5.0±0.39 5.2±0.38
Tranquillizers 31.3±0.96 50.7±1.16 33.9±1.00 50.2±1.15
Hypnotics 22.7±0.82 39.9±1.03 43.1 ±1.12 73.8±1.38
Antidepressants 7.0±0.46 11.8±0.57 10.5±0.56 17.3±0.69
Stimulants 0.6±0.13 0.3±0.09 1.4±0.20 0.9±0.15
All psychotropic drugs 53.4±1.25 86.3±1.49 93.9±1.62 147.6±1.88