Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 17

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 17
Triquilar -nú öruggari inntaka Pakkning mest notuöu þriggjafasa P-pillunnar á íslandi er orðin: -auöveldari -handhægari -einfaldari Þannig er farið að: Losaðu hringlaga límmiðann. ; Festu hann á miðjuna á framhlið Triquilar spjaldsins •: þannig að réttur byrjunardagur nemi við rauða byrjunarreitinn. Triquilar - nú í skífupakkningu TÖFLUR: G 03 A B 03. Hver pakkning inniheldur 6 Ijósbrúnar töflur, 5 hvitar töflur og 10 gular töflur. Hver Ijósbrún tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 50 mikróg, Ethinylestradiolum INN 30 mikróg. Hver hvít tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 75 míkróg, Ethinylestradiolum INN 40 míkróg. Hver gul tafla inniheldur: Levon- orgestrelum INN 0,125 mg, Ethinylestradiolum INN 30 míkróg. Eiginleikar: Getnaðarvarnalyf, blanda af östrógen/prógestógen í breytilegu hlutfalli eftir tíðahringnum. Hindrar egglos, breytir leghálsslimi þannig, að sæðisfrumur komast siður í gegn og breytir einnig legbolsslímhúð þannig, að frjóvgað egg getur síður búið um sig. Frá- sogast vel, helmingunartimi 24—26 klst. Umbrotið í lifur. Ábendingar: Getnaðarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfið eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki að gefa það konum með æðabólgur i fótum, slæma æðahnúta eða sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eða góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og háþrýstingur geta versnað. Tíðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverk- ur, migreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) í fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: Æðabólgur og stíflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás i bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tíðateppa í pilluhvíld. Varúö: Konum, sem reykja er miklu hættara við alvarlegum aukavérkunum af notkun getnaðarvarnataflna, en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rifampicin geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf áhrif á ýmsar niðurstöður mælinga i blóði, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Ein tafla daglega frá og með 1. degi tíðablæð- inga í 21 dag samfleytt. Fyrst eru teknar 6 Ijósbrúnar töflur, þá 5 hvitar og síðan 10 gular töflur. Síðan er 7 daga hlé, áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og áður. Pakkningar: 21 stk. (þynnupakkað); 21 stk. (þynnupakkað) x 3. Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja íslenskur leiðarvísir með leiðbeiningum um notkun lyfsins og varnaðarorð. SCHERING AS Fjeldhammervej 8 DK-2610 Redovre St&an Thorarensen Síðumúli 32 HF.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.