Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1990, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.02.1990, Blaðsíða 46
116 LÆKNABLAÐIÐ að líffærið sé lífvænlegt. Sá tími, sem líður frá því hjarta gefandans hættir að slá, þar til líffærið er fjarlægt (svonefndur »heitur« blóðleysistími) skiptir sköpum og má hann, hvað snertir nýru og bris, ekki vera lengri en fáeinar mínútur. Svokallaður »kaldur« blóðleysistími frá því líffærið er tekið út, þar til það er grætt í þiggjandann er miklu íengri og getur numið einum til tveimur sólarhringum, sem gerir kleift að flytja líffæri milli landa. Sé unnt að færa hinn »heita« blóðleysistíma niður í núll, þ.e. taka líffærið út meðan hjartað enn slær og flytur því súrefni og næringu, er slíkt til mikilla bóta, ef um nýru og bris er að ræða og er beinlínis forsenda þess, að unnt sé að flytja hjörtu, lungu og lifrar milli manna. Viðurkenning heiladauða hefur leitt til þess, að leyft er að taka líffæri til flutnings úr heiladauðu fólki áður en slökkt er á öndunarvélum og gerir kleift að stunda ígræðslu hjarta, lungna og lifra auk þess að stórbæta árangur nýma- og brisígræðslu. Þar sem slíkt er leyft þarf að uppfylla ákveðin skilyrði. Dæmi slíkra er, að dauði gefandans sé staðfestur af öðrum (gjama tveimur) læknum en þeim, sem að líffæraflutningnum standa. Víða er þess krafist, að samþykki gefandans eða aðstandenda liggi fyrir, þótt ekki sé slíkt ófrávíkjanlegt. Loks er allvíða krafist ítrustu staðfestingar heiladauða svo sem með æðamyndatöku. Nýru hafa verið grædd í íslenska sjúklinga síðan 1970 og hafa til þessa verið grædd í 50 nýru. Af þeim voru 34 úr nýlátnu fólki. Allar nýrnaígræðslur hafa verið gerðar erlendis og öll nýru úr nýlátnum hafa verið grædd í á vegum Scandiatransplant, en það er stofnun, sem sér um dreifingu Ifffæra (einkum nýma) til hentugra þiggjenda á Norðurlöndum. Eitt hjarta og annað hjarta ásamt lungum hafa verið grædd í tvo íslenska pilta á síðastliðnum tveimur árum í Englandi. Þá hafa þrjár lifrar verið græddar í íslenska sjúklinga, tvær í Bretlandi og ein í Bandaríkjunum. Ég fjalla hér ekki um homhimnuígræðslur, sem alllengi hafa verið stundaðar hér né mergflutning, sem gerður hefur verið erlendis, enda er að þeim flutningum staðið með öðrum hætti. Af hálfu Scandiatransplant hefur þess ekki verið krafist, að íslendingar legðu til líffæri til ígræðslu. Lengi vel var ekki talið að slíkt umstang svaraði kostnaði. Hin seinustu ár hefur þó í æ ríkari mæli verið innt eftir því, hvort við legðum til nýru í framtíðinni. Mörgum er í minni sú umræða, sem upp kom síðastliðið vor eftir seinni hjartaígræðsluna, þegar hvatt var til að við legðum til líffæri til ígræðslu í Bretlandi. Tvennt skal tekið skýrt fram: Ekki er líklegt að líffæraígræðslur verði teknar upp hérlendis á næstunni og kemur þar til fólksfæð. Þá er þess og að geta, að þau tilfelli þar sem þörf er að beita heiladauðaskilgreiningu eru tiltölulega fá og þeir einstaklingar, sem nýta mætti úr líffæri eru enn færri og tæpast fleiri en 4-6 að meðaltali árlega hérlendis. Eigi að síður væri um marktækt framlag Islendinga að ræða og svaraði væntanlega til árlegrar þarfar á ígræðslu hér á landi. Olíklegt væri raunar, að líffæri héðan nýttust í íslenska þiggjendur, en á móti kæmu væntanlega fleiri tilboð um líffæri erlendis frá. Kostir þess að hafa heiladauðaskilgreiningu eru auðsæir ef iðka skal hér töku líffæra til ígræðslu. Um hjörtu, lungu og lifrar er þegar fullrætt, en hvað nýru og jafnvel bris varðar eru ljósir kostir þess að taka líffærin út á tíma sem samræmist flugsamgöngum við útlönd. Það jaðrar við feimnismál að ræða líffæraflutninga samtímis heiladauðaskilgreiningu. Líffæraflutningar og þörf nýtanlegra líffæra eru eigi að síður staðreynd og árangurinn virðist réttlæta þá staðreynd. Nýtingu líffæra til bjargar mannslífum má líta á sem veglega gjöf hins látna til samfélagsins. Vel verður þó að gæta þess, að líkumar á ígræðslulíffærum móti aldrei meðferð sjúklingsins meðan hann enn lifir. Sé rétt að málum staðið á ekki að vera gengið á rétt hins látna og ástvina hans til að mæta dauðanum á þann hátt, sem þeir telja tilhlýðilegastan og varðveita best virðingu hins látna. Páll Asmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.