Læknablaðið - 15.02.1990, Blaðsíða 42
112
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla I. Reykingavenjur kvenna á meögöngu í heildarúrtaki og eftir aidurshópum.
<19 20-25 26-35 >36
Aldur N *) % *) N % N % N % N %
Aldrei reykt ................................... 156 35.5 6 23.1 51 32.7 83 37.0 15 45.5
Hætti fyrir meögöngu............................. 68 15.5 1 3.8 20 12.8 40 17.9 7 21.2
Hætti á meögöngu................................. 63 14.3 10 38.5 28 17.9 20 8.9 5 15.1
Reykir sjaldnar en daglega ...................... 31 7.1 1 3.8 15 9.6 15 6.7 0
Reykir daglega.................................. 119 27.2 5 19.2 42 26.9 66 29.5 6 18.2
Svara ekki................................... 3 0.7 3 11.5 0 0 0
Heildarfjöldi svara ......................... 440 100 26 156 224 33
*) á viö heildarúrtak
Tafla II. Breytingar á reykingavenjum kvenna á meðgöngu; heildarúrtak og eftir aldurshópum.
<19 20-25 26-35 >36
Aldur N *) % *) N % N % N % N %
Óbreyttar reykingar....................................... 52 34.7 0 17 29.8 34 42.0 1 16.7
Minni reykingar........................................... 90 60.0 5 83.3 37 64.9 45 55.5 3 50.0
Meiri reykingar............................................ 8 5.3 1 16.7 3 5.3 2 2.5 2 33.3
*) á viö heildarúrtak
NIÐURSTÖÐUR
Aldursdreifing kvennanna (440) sýndi að
5,9% voru undir 20 ára, 35,5% 20-25 ára,
50,9% 26-35 ára og 7,5% yfir 35 ára aldri.
Reykingavenjur í meðgöngu eru sýndar í töflu
I. Alls reyktu 34,3% kvennanna á meðgöngu,
en af þeim reykti fimmtungur lítið, það er
ekki daglega. Ekki var marktækur munur á
aldursdreifingu þeirra sem ekki reyktu, þeirra
sem hættu reykingum fyrir eða í meðgöngu
eða þeirra sem reyktu á meðgöngunni.
Af konum yngri en 20 ára reyktu alls 23%
og 11 af 17 konum hættu reykingum fyrir
eða á meðgöngunni. Með hærri aldri jókst
hlutfall þeirra sem reyktu og þeim fækkaði
sem hættu reykingum á meðgöngunni. Af
konum 20-25 ára reyktu 36,5% og aðeins tæp
27% hættu á meðgöngunni. Af konum 26-35
ára reyktu 36,2% og 14,2% hættu reykingum
á meðgöngunni. í elsta aldurshópnum voru
reykingar minni fyrir og í meðgöngunni.
Fjórðungur allra kvennanna reykti daglega.
Af þeim sem reyktu á meðgöngunni breytti
þriðjungur engu um reykingar sínar, en 60%
minnkuðu þær (tafla II). Enginn marktækur
munur var á aldursdreifingu hjá þeim sem
héldu óbreyttum reykingum og hinum sem
minnkuðu þær. Af þeim 153 konum, sem
svöruðu spumingu um ástæður fyrir því
að þær hættu eða minnkuðu reykingar á
meðgöngu, voru flestar (132 eða 83%) sem
sögðu ástæðuna vera hið ófædda bam, 65
(42%) hættu vegna fræðslu um skaðsemi
reykinga, 52 (34%) vegna þrýstings á heimili
eða vinnustað og 24 (16%) vegna vanlíðunar
af reykingunum á meðgöngunni.
Af þeim sem reyktu daglega sögðust
28% hafa reykt eina til fimm sígarettur á
dag síðustu dagana fyrir fæðingu, 26,7%
reyktu fimm til tíu, 33,3% 11-20 og 12%
reyktu meira en 20 sígarettur á dag. Elstu
reykingakonumar (6) reyktu allar 11 eða fleiri
sígarettur á dag.
UMRÆÐA
Aðeins er vitað um tvær íslenskar
athuganir sem áður hafa verið gerðar á
reykingavenjum á meðgöngu. Önnur var gerð
af hjúkrunarfræðinemum í Háskóla Islands
1987. Hún fjallaði um reykingavenjur á
meðgöngu og þekkingu og viðhorf þungaðra
kvenna til reykinga (8). Könnunin náði til
109 þungaðra kvenna á Reykjavíkursvæðinu
(úrtak frá Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur og
heilsugæslustöðvum á höfuðborgarsvæðinu),
en af þeim reyktu 22,3% á meðgöngunni. í
okkar athugun reyndist hlutfall kvenna sem
reyktu mun hærra eða rúm 34%. Svipuð
tala (32%) hefur áður fundist í athugun á
Kvennadeild Landspítalans (Geirsson RT,
X