Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 58

Læknablaðið - 15.02.1990, Page 58
126 LÆKNABLAÐIÐ og skyldur. En reynum nú að beita þessum hugtökum á siðfræði læknisfræðinnar og á siðfræði heilbrigðisþjónustunnar: Við skulum þá fyrst huga að siðfræðilegrí röksemdafœrslu á einstaklingsstigi. Hún er að vísu ekki beinlínis á dagskrá í dag, en samhengisins vegna þarf að drepa stuttlega á hana. Hlutverk læknisins er fyrst og fremst það, að ákvarða hvaða gerð, athöfn, meðferð hefir beztar afleiðingar fyrir sjúklinginn við gefnar aðstæður. Þetta viðhorf getur hins vegar ekki staðið eitt sér, án þess að enda í stækri forræðishyggju. Klíníski læknirinn verður að virða sjálfsákvörðunarrétt sjúklingsins, sem felur meðal annars í sér, að fara ekki að ráðum læknisins, sýnist sjúklingnum svo. Það er hrein skyldusiðfræðileg íhugun. Hægt er að segja, að læknirinn hafist að samkvæmt nytjahyggju, en að settar séu skyldusiðfræðilegar takmarkanir. í framhaldi af því koma svo hugleiðingar um það, hvað muni gerast, til dæmis ef tiltekinni meðferð er beitt á alla sjúklinga, með öðrum orðum: »Hvað er bezt fyrir alla sjúklinga.« Næst er þá að hyggja að rökfœrslunni á samfélagsstigi og hún er mjög flókin. Við getum samt reynt að smeygja okkur inn á vandamálin, með því að bera fram eftirfarandi spumingu: Hver vegna eigum við að hafa opinbert heilbrigðiskerfi? Við henni eru til að minnsta kosti þrenns konar svör. 1. Við eigum að hafa opinhert heilhrigðiskerfi, vegna þess að allir eiga rétt á heilhrigðisþjónustu. Þetta er eðlileg hugsun, sem samræmist innsæi okkar. Við tölum nú einu sinni mikið um mannréttindi: Sjálfsákvörðunarrétt, málfrelsi, ritfrelsi, eignarétt og svo framvegis og þvf þá ekki rétt á heilbrigðisþjónustu? Menn tala um náttúruréttindi manna, en hvað táknar það? Hvemig getum við leitt þessi réttindi af þekkingu okkar á eðli mannsins? Er þetta nokkuð annað en orðafiaumur? Ég veit fullvel, að menn nota þessi hugtök í fínum skjölum eins og stofnskrá Sameinuðu þjóðanna, en ég á samt erfitt með að taka boðskapnum. Það er erfitt að koma orðum að því, en ég tel, að sjálf hugmyndin um það að maðurinn eigi náttururéttindi, minni dálítið á nýju fötin keisarans. Rökfærslan er hreinlega berskjölduð. Þama er einnig annar vandi á höndum. Við heyrum aldrei talað á sama hátt um náttúruskyldur mannsins og ég held, að ójöfnuður milli þessara réttinda og þeirra kvaða sem menn taka á sig, sé uppspretta margra alvarlegra samfélags- og umhverfisvandamála á vorum dögum. Ég vil gjaman útfæra þetta nánar, vegna þess að þetta hefir mikla þýðingu fyrir það, sem ég kem til með að segja síðar um hugtakið réttlæti. Þegar að við nú á dögum tölum um sjálfsákvörðunarrétt, þá vísa menn oft til sjálfsforræðishugtaks þýzka heimspekingsins Immanuels Kants. Við segjum, að við eigum að virða sjálfsforrœði sjúklinganna og þá er átt við sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Ég álít einnig að við eigum að virða þennan rétt, en út frá öðru sjónarmiði og ég vil einnig benda á, að ég tel að þessi réttur leiði ekki beint af sjálfsforræðishugtaki Kants. Ég ætla nú ekki að hætta mér allt of langt út á afrétti heimspekinnar, en ég skal samt reyna að segja dálítið um viðhorf Kants. Hann lítur ekki á sjálfsforræði fyrst og fremst sem siðfræðilegt hugtak. Ég held að hægt sé að tjá hugsunina á þennan hátt: Maðurinn er með tvö augu og tvo fætur. Það er staðreynd. A sama hátt, segir Kant, er maðurinn frjáls, framtakssöm vera. Hún hefir frjálsan vilja og sjálfsforræði. Það er einnig staðreynd og hefir í rauninni ekkert með siðfræði að gera. Sjálfsforrœði er nú til dags túlkað sem sjálfsákvörðunarréttur, en réttara væri að nota hlutlausara hugtakið sjálfsákvörðunarhœfni. Sú staðreynd, að ntaðurinn hefir sjálfsákvörðunarhæfni, gefur hins vegar siðfræðilegar vísbendingar. Þessar vísbendingar fela samt ekki í sér, að maðurinn hafi rétt til að ákveða hvað sem er. Samkvæmt því sem Kant segir, felast vísbendingamar f því, að manninum heri skylda til að taka ákvarðanir á ákveðinn hátt.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.