Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1990, Side 11

Læknablaðið - 15.03.1990, Side 11
Hver tafla inniheldur Mianserinum Inn, klóríð, 10 mg eða 30 mg. EIGINLEIKAR: Fjórhringlaga geðdeyfðarlyf, sem hefur ekki and- kólínerg áhrif. Lyfið blokkar atfa-adrenerg viðtæki í taugaendum og eykur umsetningu noradrenalíns í heila. Míanserín frásogast hratt og næstum algjörlega frá meltingarvegi. Ekki hefur tekist að sýna fram á samband milli blóðþéttni og verkunar. Próteinbinding er um 90%. Helmingunartími er um 10-17 klst. Stöðug blóðþéttni (steady-state) næst eftir u.þ.b. 2 vikna meðferð. Lyfið umbrýst í lifur, en ekki er vit- að hvort umbrotsefnin eru virk. Pau skiljast út með þvagi og saur. ÁBENDINGAR: Geðdeyfð, einkum innlæg (endogen depression). FRÁBENDINGAR: Meðferð með MAO-hemjandi lyfjum minna en 14 dögum fyrir upphaf meðferðar. AUKAVERKANIR: Syfja, sem yfir- leitt minnkar við áframhaldandi gjöf lyfsins. Lyfið getur valdið truflun á blóðsykurgildum sykursjúkra. Lyfið virðist hafa minni áhrif á hjarta en önnur sambærileg lyf. Rétt er að gæta fyllstu varúðar við gjöf lyfs- ins hjá sjúklingum með hjartsláttaróreglu. Blóðþrýstingslækkun hef- ur verið lýst, enn fremur svima og yfirliði, e.t.v. vegna blóðþrýstings- lækkunar. Neutropenia og agranulocytosis geta komið fyrir. Krömpum hefur verið lýst og verður því að gæta varúðar við gjöf lyfs- ins hjá sjúklingum með flogaveiki. MILLIVERKANIR: Varast ber að neyta áfengis samtímis töku lyfsins. VARÚÐ: Vara ber sjúklinga við því að aka vélknúnum ökutækjum eftir gjöf iyfsins. EITURVERK- ANIR: Míanserín hefur ekki eins alvarlegar eiturverkanir og þríhring- laga geðdeyfðarlyf. ElNKENNl: Syfja, meðvitundarleysi, hækkun eða lækkun blóðþrýstings, of hraður eða of hægur hjartsláttur, vitt eða þröngt ljósop, uppköst, svimi og óregluhreyfingar (ataxia) hafa komið fyrir. Krampar og lífshættulegar hjartsláttartruflanir virðast ekki hafa verið eins mikið vandamál og eftir amítryptilín-eitranir. MEÐFERÐ: Magatæming og magaskolun. Lyfjaskol. Symtómatísk meðferð. SKAMMTASTÆRÐIR HANDA FULLORÐNUM: Venju- legur byrjunarskammtur er 30 mg á dag, sem aukinn er smám saman í 40-90 mg á dag. Lyfið má gefa í einum skammti að kvöldi eða skipta í tvo skammta, kvölds og morgna Aldraðir þurfa oft minni skammta. SKAMMTA- STÆRÐ HANDA BÖRNUM: Lyfið er ekki ætlað börnum. PAKKNINGAR: Töflur 10 mg. 30 stk. _ (þynnupakkað); 100 stk. (þynnupakkað). Töflur Æ MFITA 30 mg: 30 stk. (þynnupakkað); 100 stk. (þynnu- pakkað)' —RBKJAVIKURVEGI78, 222 HAFNARFIRÐI

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.