Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.03.1990, Side 13

Læknablaðið - 15.03.1990, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 137-40 137 Hjördís Haröardóttir, Erla Sigvaldadóttir, Ólafur Steingrímsson ATHUGUN Á LYFJANÆMI CAMPYLOBACTER PYLORI ÚTDRÁTTUR Kannað var næmi 26 stofna af Campylobacter pylori fyrir 16 lyfjum, cimetidíni, súkralfati, bismúti og 13 sýklalyfjum. Mæld voru hammörk (MIC - Minium Inhibitory Concentration) með raðþynningum í föstu æti. Bakteríustofnarnir voru einangraðir frá íslenskum sjúklingum, sem höfðu óþægindi frá meltingarfærum. Penisillín, ampisillín, erýtrómýsín og asitrómýsín reyndust virkust með 90% hammörk (MIC 90)<0.25 /rg/ml. Kefoxitín, kefótaxím, keftríaxón, gentamísín, tóbramýsín og klóramfenfkól höfðu einnig ágæta virkni með MIC 90<2 /íg/mi. Kefradín hafði litla virkni, MIC 90 var 8//g/ml og sömuleiðis metrónídasól, MIC 90 var 16 /zg/ml og Bactrim enn minni, með 128 //g/ml. Ekki tókst að sýna fram á bakteríudrepandi áhrif címetidíns eða súkralfats. Niðurstöður fyrir bismút voru óljósar. INNGANGUR Spírallaga bakteríum var fyrst lýst í mögum manna og dýra 1893 (1) og 1896 (2). Síðar urðu fleiri til að lýsa þessu fyrirbrigði (3- 5), en það var ekki fyrr en árið 1982 að Marshall og Warren ræktuðu fyrstir manna bakteríu þessa og þeir urðu einnig fyrstir til að gera grein fyrir hugsanlegri klínískri þýðingu hennar (6, 7). Á þeim 7 árum sem síðan eru liðin hefur bakterían, Campylobacter pylori, verið mikið rannsökuð (8-12). Það sem hefur hrint af stað flestum rannsóknum og valdið mestri umræðu er spurningin um sýkingarmátt bakteríunnar. Campylobacter pylori hefur nú verið sett í samband við magabólgu, skeifugarnarsár, magasár, faraldra af saltsýruskorti í maga (epidemic hypochlorhydria) og meltingartruflun án sársjúkdóms (nonulcer dyspepsia) (8-12). Frá sýklarannsóknadeild Landspítalans. Barst 28/11/1988. Samþykkt 17/09/1989. Á tímabilinu nóvember 1986 til febrúar I987 var gerð faraldsfræðileg athugun á tíðni C. pylori hjá sjúklingum, sem gengust undir magaspeglun á Landspítalanum vegna magaóþæginda (13). Þá áskotnuðust sýklarannsóknadeild Landspítalans 26 stofnar af þessari bakteríu, sem ekki hafði verið ræktuð hérlendis áður. Var ákveðið að kanna nánar sýklalyfjanæmi þessara stofna í tilraunaglösum. Slfk vitneskja er nauðsynleg vegna hugsanlegrar meðferðar sjúklinga, sem bakteríuna hafa og einnig til þróunar valæta (selective media) til að auðvelda ræktun hennar og greiningu á rannsóknastofum í framtíðinni. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Ástæðum til sýnatöku hjá sjúklingunum 26 sem Campylobacter pylori ræktaðist frá og greinimörkum sem notuð voru við greiningu bakteríanna hefur verið lýst annars staðar (13). Athugað var næmi stofnanna 26 fyrir 16 lyfjum, bæði sýklalyfjum og öðrum lyfjum. Mæld voru hammörk (MIC - Minimum Inhibitory Concentration) og notaðar raðþynningar í föstu æti. Hvert lyf var fyrst raðþynnt á venjulegan hátt með helniingsþynningum í eimuðu vatni eða etanóli eftir því sem við átti. Hver þynningarröð spannaði styrkleika frá 4096 /zl/ml og niður í 0,002 /zl/ml eftir að búið var að blanda innihaldi hvers glass saman við 19 ml af fljótandi blóðagar (Heart Infusion agar með 5% hestablóði). Næmisagarinn var gerður fáum klukkustundum fyrir notkun til að tryggja fulla virkni lyfjanna hverju sinni. Reynt var að velja að minnsta kosti einn fulltrúa fyrir hvem fiokk sýklalytja, svo sem penisillín og ampisillín fyrir penisillíntiokkinn, gentamisín fyrir amínóglýkósíðin, kefradín, keftríaxón og kefoxitín fyrir hinar þrjár kynslóðir kefalósporína, erýtrómýsín og

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.