Læknablaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 4
FLEMOXIN SOLUTAB®
Amoxicillin
Mjög gott aðgengi
%
■
Hver tafla inniheldur: Amoxicillinum INN, tríhýdrat,
samsvarandi Amoxicillinum INN 250 mg, 375 mg,
500 mg eða 750 mg.
Eiginlelkar: Breiðvirkt beta-laktam sýklalyf með
áhrif bæði á Gram-jákvæða og Gram-neikvæða sýkla,
þó ekki staphylococca. Sérlega virkt gegn H. influenzae
og gónókokkum. Er bakteríudrepandi. Frásogast vel,
yfir 90% frá meltingarvegi. Helmingunartími i blóði er
u.þ.b. 1 klst. 50-70% útskilst óbreytt með þvagi.
Há þéttni í galli.
Ábendingar:,Sýkingar af völdum amoxicillinnæmra
(ampicillinnæmra) sýkla, t.d. berkjubólga, þvagfærasýk-
ingar. Lekandi.
Frábendingar: Ofnæmi gegn penicillínsamböndum.
Mononucleosis infectiosa og ýmsar aðrar veirusýkingar
stórauka likur á útbrotum við töku lyfsins.
Aukaverkanir: Húðútbrot. Meltingaróþægindi, svo sem
niðurgangur eða ógleði.
Lyfjaform sem má:
- gleypa
- leysa upp í vökva
Milliverkanir: Só lyfið gefiö samtímis allópúrinóli, aukast
líkur á útbrotum.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Solutab má annað
hvort gleypa eða leysa upp i örfáum ml af vatni, jógúrt,
súrmjólk, ávaxtasafa eða öðrum vökva. Venjulegur skammt-
ur er 750-2000 mg á sólarhring, gefið i þremúr til fjórum
jöfnum skömmtum. Við sýkingar i efri loftvegum,
miðeyrum, þvagfærum og við lungnabólgu af völdum
pneumococca og H.influenzae má gefa lyfið i tveimur
jöfnum skömmtum á sólarhring. Vlð lekanda: 2 g gefið
i einum skammti '/2-1 klst. eftir gjöf 1 g af próbeneciði.
Skammtastærðir handa börnum: Venjulegur skammtur
er 25-50 mg/kg á sólarhring, gefið i þremur til fjórum
jöfnum skömmtum. Við sýkingar í efri loftvegum, miðeyrum,
þvagfærum og við íungnabólgu af völdum pneumococca
og H.influenzae má gefa lyfið í tveimur jöfnum skömmtum
á sólarhring.
Pakkningar:
Solutab 250 mg: 20 stk.
Solutab 375 mg: 20 stk.
Solutab 500 mg: 20 stk.
Solutab 750 mg: 20 stk.
Cfistbrocades
Einkaumboð á íslandi: PHARMACO H.F.