Læknablaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 18
240
LÆKNABLAÐIÐ
NIÐURSTÖÐUR
Meðalgildi serumlípíða eru sýnd í töflu I.
Bomar eru saman mæliniðurstöður eftir fjórar
og sex vikur á lýsi, og viðmiðunargildi á
sambærilegum tíma. Þannig líða að minnsta
kosti fjórar vikur ýmist á lýsi eða án lýsis
áður en mælingar eru gerðar og á þeim tíma
má ætla að jafnvægi hafi náðst í líkamanum
með tilliti til þessara breytinga á mataræði.
Einnig benda mæliniðurstöður í hópi B
til þess að blóðfitubreytingar af völdum
hjartadrepsins séu komnar í jafnvægi, enda
liðnar um sex vikur frá áfallinu þegar fyrsti
samanburður er gerður. Enginn munur sést
í neinum af þeim þáttum sem mældir voru,
nema þríglýseríðum. Lýsistakan lækkaði
meðaltal þríglýseríða frá 2,08 mmol/1 í 1,82
mmol/1. Þetta er marktækur munur, þegar
notað er parað t-próf (p<0,03). Aðrir hafa
greint frá sambærilegum áhrifum, bæði í
heilbrigðu fólki, sjúklingum og tilraunadýrum
(2). Á mynd sjást þríglýseríðgildi allra
þátttakenda fyrir og eftir lýsistöku og sést þar
að þríglýseríð lækka í blóði 17 þátttakenda,
hækka lítillega í fjórum en hækka verulega í
blóði eins.
í töflu II sést hver áhrif lýsistakan hefur á
arachidónsýru (20:4n6), EPS (20:5n3) og
DHS (22:6n3) í þríglýseríðum, fosfólípíðum
og kólesterólesterum í plasma. Marktæk
hækkun er á EPS og DHS í umræddum
lípíðum, meðan arachidónsýran breytist ekki.
Styrkur EPS eykst mun meir en DHS í öllum
lípíðunum, þótt magn beggja fitusýra sé mjög
áþekkt í lýsinu, þ.e. 1,6 g EPS og 1,8 g DHS í
20 ml lýsi, sem var dagskammturinn.
UMRÆÐA
Þessi rannsókn var upphaflega gerð til að
kanna áhrif lýsis á tíðni takttruflana eftir
hjartadrep og hafa þær niðurstöður þegar
verið birtar (5). Samhliða voru gerðar ítarlegar
mælingar á blóðfitu og eru þeim niðurstöðum
gerð skil hér.
Eins og að framan greinir hafði lýsisneyslan
ekki áhrif á magn kólesteróls, HDL-kólesteróls
eða apólípóprótína A1 og B. Þess ber að geta
að þátttakendur breyttu ekki um neysluvenjur
meðan á rannsókninni stóð, en magn og
samsetning annarrar fitu en lýsis sem neytt var
á tímabilinu er óþekkt. í tilraunum þar sem öll
fituneysla hefur verið mæld nákvæmlega hefur
Table I. Serum lipids and lipoproteins, mean values (S.D.)
after four and six weeks on cod liver oil (CLO) and cross
over control at equivalent times.
Not CLO CLO
Total cholesterol 6.77 (1.37) 6.91 (1.45) mmol/l
HDL cholesterol 1.46 (0.30) 1.45 (0.30) mmol/l
Triglycerides )j 2.08 (1.19) 1.82 (1.11) mmol/l
Apolipoprotein A1 1.22 (0.15) 1.18 (0.17) g/i
Apolipoprotein B 1.05 (0.33) 1.04 (0.39) g/i
t) Paired t-test: p<0.03
Table II. The amount of arachidonic acid (AA), eicosapen-
taenoic acid (EPA) and docosahexaenoic acid (DHA) as %
of total fatty acids in plasma triglycerides, plasma phospho-
lipids and plasma cholesterol esters with and without cod
liver oil substitution.
Not CLO CLO Paired t-test
Triglycerides
20:4 n6 (AA) 0.81 0.85 NS
20:5 n3 (EPA) 0.51 1.76 0.0001
22:6 n3 (DHA) 1.43 3.43 0.0001
Phospholipids
20:4 n6 (AA) 6.22 5.88 NS
20:5 n3 (EPA) 2.18 5.92 0.0001
22:6 n3 (DHA) 5.93 7.85 0.002
Cholesterol esters
20:4 n6 (AA) 4.26 4.61 NS
20:5 n3 (EPA) 2.25 6.02 0.0001
22:6 n3 (DHA) 1.16 1.56 0.004
TG, all participants
Participants
Figure Triglyceride values of all participants, first column
when not on cod liver oil, second column after taking cod
liver oil for four to six weeks.
komið í ljós að hátt hlutfall af bæði n-6 og n-
3 ómettuðum fitusýrum í heildarfitu fæðunnar,
veldur lækkun á kólesteróli, aðallega LDL-
kólesteróli og um leið apólípóprótíni B