Læknablaðið - 15.05.1990, Qupperneq 6
230
LÆKNABLAÐIÐ
þýðingu þessa í ofangreindum hópum, enda
hafa þessar athuganir byggst á einni ræktun
frá hverjum einstaklingi (cross-sectional),
og þeim ekki fylgt eftir. Há tíðni Gram-
neikvæðra lungnabólgna hefur verið rakin til
sýklunar Gram-neikvæðra stafbaktería í hálsi
veikra sjúklinga, þótt þessi tengsl hafi ekki
verið könnuð til hlítar nema hjá sjúklingum á
gjörgæsludeildum (6).
Nýleg könnun (17) meðal vistmanna
hjúkrunarheimilis gaf þó til kynna að sýklun
meðal þeirra væri breytileg og tímabundin auk
þess sem enginn þátttakenda, hvorki sýklaðir
né ósýklaðir, fengu lungnabólgu meðan á
rannsókninni stóð. Samhengi sýklunar og
lungnabólgu aldraðra er því ekki með öllu
ljóst.
Með ofangreint í huga könnuðum við sýklun í
hálsi sjúklinga á öldrunarlækningadeild, bæði
með sneiðrannsókn (cross-sectional), þar sem
ein ræktun var tekin úr hálsi hvers sjúklings
án tillits til legutíma, og langtímarannsókn
(longitudinal), þar sem hálsræktanir voru
teknar vikulega frá innlögn til útskriftar.
Til samanburðar voru annars vegar gerðar
sneiðrannsóknir á öldruðum einstaklingum á
vistheimili og hins vegar á einstaklingum er
bjuggu á eigin heimilum.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Sjúklingar: Til sneiðrannsóknar voru
valdir sjúklingar er lágu á öldrunardeild
Borgarspítala í annarri viku janúarmánaðar
1986 (hópur A, 39 sjúklingar), íbúar
vistheimilis aldraðra (Seljahlíðar, hópur B,
30 manns) og aldraðir sem bjuggu á eigin
heimilum (hópur C, 21 einstaklingur). Sýnum
frá hópi A var safnað á þremur dögum, frá
hópi B við vitjanir að vistheimilinu á tveimur
aðskildum dögum í sömu vikunni og frá hópi
C við þjónustuvitjanir í heimahús. Jafnframt
var gerð langtímarannsókn með vikulegum
hálsræktunum á sjúklingum sem lögðust inn
á öldrunardeild á tímabilinu 1. janúar til 30.
júní 1986 og voru tekin 2-22 sýni frá hverjum
sjúklingi (hópur D, 52 sjúklingar). Að jafnaði
voru fyrstu sýni tekin við komu og ekki síðar
en þremur dögum eftir innlögn. Síðasta sýni
var tekið í útskriftarviku. Enginn sjúklinga
í hópi A var jafnframt í hópi D eða öfugt.
Ekki var reynt að para einstaklinga innan
hópanna saman, enda þeir ekki sambærilegir
að því er heilsufar og búsetu snerti. Rannsókn
þessi var samþykkt af starfsnefnd (siðanefnd)
Borgarspítala.
Skráðar upplýsingar: Eftirfarandi upplýsingar
voru skráðar fyrir einstaklinga í öllum hópum:
Persónulegar upplýsingar, sjúkdómsgreiningar,
elliglöp, sjálfsbjargargeta, þvagleki, saurleki,
reykingar, tilvist gervitanna og þvagleggs
og sýklalyfjagjafir innan tveggja vikna fyrir
sýnatöku. Ennfremur voru skráð tilfelli
neðri öndunarfærasýkinga (berkjubólga,
lungnabólga) meðal sjúklinga í hópi D meðan
á rannsókn stóð. Upplýsingar voru fengnar
frá sjúklingunum sjálfum, úr sjúkraskrám og
frá starfsfólki auk þess sem einn höfunda
(S.S.) tók þátt í umönnun sjúklinganna sem
aðstoðarlæknir á öldrunardeild Borgarspítala
þann tíma sem rannsóknin fór fram.
Vinnsla sýna: Einn höfunda (S.S.) tók öll
sýnin. Voru þau tekin á rayon ræktunarpinna
(Culturette ®, Marion Scientific, Kansas
City, Missouri), sem strokið var vandlega
yfir hálskirtla og munnkok með staðlaðri
tækni (18). Sáð var frá ræktunarpinnunum
á 5% kindablóðagar, Thayer Martin agar,
MacConkey agar og í thioglycollate
hálffljótandi broð. Sýnin voru höfð í hitaskáp
við 35°C í 5% koldíoxíði í að minnsta kosti
18-24 klst. Gram-neikvæðar stafbakteríur
sem uxu voru greindar með API-20 E
greiningarkerfi (La Balme Les Grottes,
Montalieu Vercieu, Frakklandi) en aðrir
sýklar með venjulegum aðferðum (19) á
sýklarannsóknadeild Borgarspítala. Sýklun
var skilgreind sem tilvist Staphylococcus
aureus, Pseudomonas spp., Enterobacteriaceae
eða Achromobacteriaceae á agarskálum eða í
broði.
Staðtöluleg úrvinnsla: Staðtölulegt mat var
lagt á niðurstöður með kí-kvaðrat (chi-square)
prófi og t-prófi Student’s (StatView 512+,
BrainPower Inc., Calabasas, Califomia) svo
og stefnuprófi (trend test, 20) eftir því sem við
átti.
NIÐURSTÖÐUR
Sjúklingar: Samanburður á helstu sérkennum,
ástandi og sjúkdómsflokkun þátttakenda er
sýndur í töflu I. Meðalaldur sjúklinganna í
hópunum fjórum var 75,8-84,3 ár, og var
hópur C marktækt yngri en hinir (p<0,05).