Læknablaðið - 15.05.1990, Blaðsíða 10
234
LÆKNABLAÐIÐ
rannsókninni. Aðrir þættir sem litið var til
höfðu ekki áhrif á sýklun, að sýklalyfjagjöf
undanskilinni (töflur III og IV). í þeim hópi
einstaklinga sem langtímarannsókn var gerð á,
var marktæk fylgni sýklunar Gram-neikvæðra
stafa við fyrri sýklalyfjagjöf og er það í
samræmi við ýmsar fyrri rannsóknir (2,3),
þó tengsl þessi hafi ekki komið fram í öðrum
athugunum (17). Niðurstöður fyrri rannsókna
af svipuðu tagi á öldruðum hafa einnig leitt
í ljós að engin tengsl eru við ýmsa þætti í
fari sjúklinga er lúta að færni og heilsufari
(17). Niðurstöður athugana á bráðveikari
sjúklingum, sérstaklega þeim sem á gjörgæslu
liggja, hafa hins vegar leitt í ljós, að tengsl
voru milli sýklunnar og ýmissa þátta, svo sem
lengdar sjúkrahúsvistar og sjúdómsþyngdar
(5, 6), tilvistar krabbameins (2), langvinns
teppusjúkdóms í lungum (2), sykursýki (21),
áfengissýki (21), þvagleka (22) og lélegrar
hreyfifæmi (16). Aðrly þættir virðast því
ráða sýklun meðal aldraðra en þeirra sem
bráðveíkír eru.
Þótt allmargar rannsóknir hafi verið gerðar á
tíðni sýklunar Gram-neikvæðra stafa í hálsi
fólks hafa þær flestar verið sneiðrannsóknir.
Þær hafa leitt í ljós að allt frá 2-18%
heilbrigðra einstaklinga bera Gram-neikvæða
sýkla í koki á hverjum tíma (15,21, 23-25).
Sýklun hefur þó verið talin tímabundin hjá
þessum hópi án þess að ljósar upplýsingar séu
þar um (5,24). Tíðni sýklunar af þessu tagi er
einnig lág meðal starfsfólks sjúkrastofnana
og lítt veikra sjúklinga sem Iigg.ja inni á
sjúkrahúsum (15, 25). Hins vegar bera allt
að 20% bráðveikra sjúklinga sem á sjúkrahús
leggjast Gram-neikvæða stafi í hálsi við komu
og algengi sýklunar eykst á fyrstu dögum legu
(6,24). Einnig hefur komið fram að algengi
sýklunar er allt að 40-60% hjá sjúklingum
á gjörgæsludeildum, svo og hjá öldruðum á
hjúkrunarheimilum (16,17,22).
Sú niðurstaða sem helst er athyglisverð í þeirri
athugun sem hér er kynnt er lítill stöðugleiki
sýklunarinnar (mynd). Reyndar fór hlutfall
sýklaðra einstaklinga lækkandi eftir því sem á
legutíma leið, úr 23% í fyrstu viku legu í 7%
á 10. viku sjúkrahúsvistar. Engar ályktanir
verða dregnar af niðurstöðum (þótt birtar
séu) frá sjúklingum sem dvöldu lengur en 17
vikur á deildinni, enda þeir aðeins fjórir. Hjá
einungis sjöunda hluta sjúklinganna ræktaðist
sama tegund Gram-neikvæðrar stafbakteríu
í þrjár vikur eða lengur samfleytt. Sýklun S.
aureus var einnig slitrótt.
Þessar niðurstöður eru í samræmi við
rannsókn Irwins og samstarfsmanna frá
1982 (17) þar sem tilvist Gram-neikvæðra
stafa meðal aldraðra reyndist einnig mjög
breytileg og skammæ. Ástæður þessa eru ekki
Ijósar en ólíklegt er að sveiflur þessar megi
rekja til sýnatöku eða ræktunaraðferða. Sami
greinarhöfundur (S.S.) tók öll sýni og beitti
staðlaðri aðferð.
Niðurstöður þessar undirstrika einnig
mikilvægi langtímarannsókna af þessu
tagi umfram sneiðrannsóknir. I þeim hópi
er rannsakaður var reyndust engin tengsl
milli sýklunar Gram-neikvæðra stafbaktería
og tilurðar neðri öndunarfærasýkinga.
Vissulega er sú niðurstaða byggð á einungis
sex tilvikum öndunarfærasýkinga. Er hún
þó í samræmi við svipaða fyrri rannsókn
(17) en andstæð niðurstöðum rannsókna á
sjúklingum gjörgæsludeilda þar sem tengsl
sýklunar og lungnabólgu eru skýr (6). Óstöðug
sýklun getur ef til vill skýrt að í nýlegri
athugun á Borgarspítala var ekkert tilvik
spítalalungnabólgu af völdum Gram-neikvæðra
stafa (12). Skýring skammæjar sýklunar í
þessari rannsókn liggur ekki á lausu. Eins og
áður getur voru engin tengsl á milli þeirra
ytri þátta sem kannaðir voru og sýklunar.
Samkeppni baktería í milli er ólíkleg þar
sem »venjuleg« hálsflóra fannst í öllum
sýnum, hvort sem Gram-neikvæðir sýklar
eða S. aureus greindust eða ekki. Einnig er
erfitt að skýra hvers vegna tíðni sýklunar
minnkaði eftir komu á öldrunardeild þó bætt
næringarástand kunni að skipta þar máli.
ÞAKKIR
Starfsfólki sýkladeildar Borgarspítala eru
færðar þakkir fyrir vinnslu sýna.
HEIMILDIR
1. Dorff GJ, Rytel MW, Farmer SG, Scanlon G.
Etiologies and characteristic features of pneumonias
in a municipal hospital. Am J Med Sci 1973; 266:
349-58.
2. Tillotson JR, Finland M. Bacterial colonization
and clinical superinfection of the respiratory tract
complicating antibiotic treatment of pneumonia. J
Infect Dis 1969; 119: 597-624.
3. Kneeland Y Jr, Mills Price K. Antibiotics and
terminal pneumonia. A postmortem microbiological
study. Am J Med 1960; 29: 967-79.