Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.05.1990, Page 14

Læknablaðið - 15.05.1990, Page 14
238 LÆKNABLAÐIÐ kanna samhengi milli stigs (væg, nokkur, svæsin) elliglapa, þvagleka og hreyfigetu, svo að dæmi séu tekin, og sýklunar í hálsi. Loks er rétt að hafa í huga að enda þótt sýklun hafi verið algengust meðal aldraðra á öldrunarlækningadeild, eru tiltölulega fáir innlagðir þangað beint eða bráðveikir. Bráðveikustu sjúklingar lyfjadeildar tóku því ekki þátt í þessari rannsókn og minnkar það ef til vill líkumar á því að finna samhengi milli Garm-neikvæðrar sýklunar í hálsi og lungnabólgu. Þá er rannsóknarhópurinn full smár (52) til að nokkuð verði sagt með vissu um samhengi eða samhengisleysi milli sýklunar og lungnasýkinga (6). Tafla V í grein Sigurlaugar Sveinbjömsdóttur og félaga, sem sýnir tegundir og fjölda Gram-neikvæðra sýkla sem ræktuðust úr hálsi þátttakenda, er í senn athyglisverð og ógnvænleg. Lungnabólga hefur verið nefnd vinur gamla mannsins og skiptir þá ekki máli hvort hún orsakast af bláum kokkum eða bleikum stöfum. Ef lungnabólga er hins vegar ekki eðlileg dauðaorsök gamallar manneskju, er erfitt að sniðganga upplýsingamar úr töflu V í einstökum bráðveikum sjúklingum. Gott hrákasýni er þá gulls ígildi og leyfir val þröngvirkustu sýklalyfjanna, en ef slíkt sýni næst ekki og grípa verður til blindrar sýklalyfjagjafar, má ekki gleyma Gram- neikvæðum stöfum, sem hugsanlegri orsök lungnabólgunnar. Pálmi V. Jónsson, lyfjadeild Bergarspitala HEIMILDIR 1. Sveinbjömsdóttir S, Guðmundsson S, Briem H. Sýklun í hálsi aldraðra. Læknablaðið 1990; 76: 229- 35. 2. Johanson WG Jr, Pierce AK, Sanford JP, et al. Nosocomial respiratory infections with gramnegative bacilli. The significance of colonization of the respiratory tract. Ann Intem Med 1972; 77: 701-6. 3. Valenti WM, Trudell RG, Bentley DW. Factors predisposing to oropharyngeal colonization with gramnegative bacilli in aged. N Engl J Med 1978: 298 (20): 1108-11. 4. Bentley DW, Torkelson A. Pneumonia in the institutionalized elderly. Gerontology 1980; 20: 66. Pálmi V. Jónsson lyfjadeild Bergarspítalans. N

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.